27.02.1963
Sameinað þing: 33. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í D-deild Alþingistíðinda. (3100)
157. mál, hagnýting síldarafla við Suðurland
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Hv. þm. sagði með allmiklum þunga, að hann mundi ekki standa hér í neins konar yfirheyrslum gagnvart mér um mátefni þess fyrirtækis, sem hann starfaði hjá. En hann getur samt sem áður flutt hér till. í áróðursskyni — í hreinu áróðursskyni, sem grundvallast á beinum blekkingum, — blekkingum, sem honum sem starfsmanni síns fyrirtækis á að vera kunnugt um, því að hugsunin bak við till. þessa er sú, að ríkisvaldið hafi vanrækt eitthvað í þessum efnum. Það er Sambandið m.a., sem er sekt um þá vanrækslu, sem um er að ræða, ef einhver er. Hv. þm. sagðist því ekki svara mínum fsp. Ég átti von á því, að hann vildi ekki svara þeim. Því sagði ég áðan, að gerði hann það ekki, skyldi ég gera það sjálfur, og það skal ég gera nú.
Ég spurði hv. þm., hvort það hefði komið tilboð frá sambandi sænsku samvinnufélaganna til Sambands ísl. samvinnufélaga um aðstoð sænsku samvinnufélaganna til að koma á fót hér á landi fullkominni niðursuðuverksmiðju. Svarið er já. Fór fram athugun á rekstrargrundvelli slíkrar verksmiðju hér á landi? Svarið er já. Ég spurði: Ætlar Sambandið íslenzka að þiggja aðstoð sænska samvinnusambandsins til að koma slíkri verksmiðju á fót? Svarið er nei. Ég spurði: Af hverju ætlar íslenzka Sambandið ekki að þiggja aðstoð sænska sambandsins til að koma slíkri verksmiðju á fót? Svarið er: SÍS taldi sig ekki hagnast nóg á stofnun og rekstri slíkrar verksmiðju. Þetta vil ég sérstaklega undirstrika. Svarið við þessari spurningu, svarið við því, hvers vegna SÍS er ekki búið að þiggja aðstoð sænsku samvinnufélaganna til að koma verksmiðju hér á fót, svarið við því, hvers vegna SÍS hefur vanrækt að koma slíkri verksmiðju hér á fót, er, að rannsókn SÍS sjálfs sýndi, að SÍS hagnaðist ekki nóg á rekstri verksmiðjunnar.
Mér finnst hvorki hv. þm. né neinir aðrir geta verið hissa á því, þótt ég hlífi honum ekki við því að skýra frá þessu, þegar hann flytur till. eins og þá, sem hér er um að ræða, og heldur ræðu eins og þá, sem hann flutti hér áðan.
Þm. kvartaði undan því, að það væri ósmekklegt af mér að vera að draga það fyrirtæki, sem hann starfar við, inn í þessar umr. Þar færist skörin upp í bekkinn. Hann sjálfur blandar sínu eigin fyrirtæki ekki aðeins inn í umr., heldur inn í grg. fyrir till., því að hér stendur, með leyfi hæstv. forseta:
„Ýmsir aðilar hafa sýnt virðingarverða viðleitni til þess að gera tilraunir með betri hagnýtingu síldar. Samband ísl. samvinnufélaga hefur komið upp tilraunaverksmiðju í Hafnarfirði, sem m.a. fæst við reykingu síldar.“
Þetta endurtók hann í sinni ræðu. Það er ekki ég, sem hef blandað Sambandinu inn í þessar umr., heldur hann sjálfur. Og þá getur hann ekki fyrzt, við, þótt honum sé svarað í sömu mynt og talað um þátt Sambandsins í þessu máli. En ég skal bæta við upplýsingar í grg. nokkru, sem hann þar þegir um. Hann er þar að hæla Sambandinu, skjalla Sambandið fyrir framtak þess í þessu máli. Sannleikurinn er sá, að verksmiðjan í Hafnarfirði hefur nær eingöngu reykt ál og lax, en engan áhuga sýnt á þeirri afurð, sem þessi þm. leyfir sér síðan að flytja heita áróðurstill. um hér á Alþingi. Það hefur Sambandið vanrækt. Þm. hefði átt að snúa sér að sínum yfirboðurum og samstarfsmönnum í Sambandinu og fá þá til að gera skyldu sína, í staðinn fyrir að flytja innantómar áróðurstill. hér á Alþingi.
Ég skal enn bæta við, að það er að vísu ekki svo, að Sambandið hafi algerlega vanrækt að stuðla að því, sem till. fjallar um. Till. fjallar um að hagnýta Suðurlandssíldina sem allra bezt. Það er ekki alveg rétt, að Sambandið hafi vanrækt þetta fullkomlega. Sambandið hefur nefnilega reykt ofboðlítið af síld, og það hefur verið flutt út — hvað mikið, haldið þið, af síld frá fyrirtæki SÍS í Hafnarfirði? 50 kg. Hálf tunna. Það er allt framtak Sambandsins til að styðja þann málstað, sem þessi þm. flytur belgingstill. um hér. Allt framlag Sambandsins til þessa er að flytja út hálfa tunnu af reyktri síld. Og þetta er stærsta fyrirtæki Íslendinga.
Þm. hefði átt að neita sér um það að vera að draga skjall um sitt eigið fyrirtæki inn í grg. sína og ræðu sína hér. Þá hefði hann ekki orðið sér til þeirrar minnkunar, sem hann því miður er að verða sér.
En samtímis því, sem SÍS bregzt því hlutverki sínu varðandi hagnýtingu Suðurlandssíldar og reykir ekki til útflutnings nema hálfa tunnu, flytur einn af þm. Framsfl. till. hér á Alþingi um að skora á ríkisstj. að stuðla að aukinni hagnýtingu á Suðurlandssíld, m.ö.o.: meðan hann sjálfur og hans eigið fyrirtæki bregzt skyldu sinni, reynir hann að leiða athygli frá því með því að skora á aðra að bæta úr. Þetta er það, sem kalla má framsóknarmennsku.