08.03.1963
Sameinað þing: 37. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í D-deild Alþingistíðinda. (3103)
157. mál, hagnýting síldarafla við Suðurland
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Þegar mál þetta var hér síðast á dagskrá fyrir nokkrum dögum, voru haldnar hér allsérkennilegar ræður, að mér fannst. Það mái, sem til umr. var, var þáttill. á þskj. 287 um hagnýtingu síldarafla við Suðurland. Till. fjallar um það, að Alþingi feli ríkisstj. að láta fara fram ýtarlega rannsókn á, því, hvernig hagnýta megi síldaraftann hér við Suðurland á sem beztan og verðmætastan hátt. Inn í þessar umr. kom hæstv. viðskmrh. og var óvenju viðskotaillur í sambandi við það, sem sagt hafði verið um þetta mál. Hann flutti hér allmikla siðavöndunarprédikun yfir flm. till. og sagði m.a., að hann teldi þessa till. hreint ekki þinghæfa. Enn fremur sagði hann, að rannsóknir teldi hann í þessu máli með öllu óþarfar, það, sem á stæði í þessum efnum, væri eingöngu, að það vantaði framkvæmdir, það vantaði athafnir, til þess að unnið yrði svo úr Suðurlandssíldinni, að mest og bezt verðmæti fengist úr henni. í leiðinni gaf svo hæstv. ráðh. ýmsar upplýsingar varðandi málið, sem mér þóttu æðihæpnar.
Hæstv. ráðh, nefndi, að það hefði vissulega verið gert mikið hér til að bæta alla aðstöðu til að vinna Suðurlandssíldina og sagði, að söltun hefði stóraukizt frá því, sem áður var. Hann nefndi, að árið 1959 hefðu verið saltaðar rúmlega 52 þús. tunnur, árið 1960 hefðu verið saltaðar 78 þús. tunnur og árið 1961 109 þús. tunnur og nú s.l. ár, 1962, 124 þús. tunnur, og sagði svo, að þessar tölur sýndu það alveg ljóslega, að hér væri um mikla framför að ræða, og því væri í rauninni óþarft að sveigja að því, að hér væri eitthvað ógert af hálfu ríkisstj. Um niðursuðu og niðurlagningu á síld komst hæstv. ráðh. þannig að orði, að reist hefði verið á Siglufirði mjög fullkomin verksmiðja til niðurlagningar á síld og sannleikur málsins væri sá, að aðstaða okkar til þess að sjóða niður síld og leggja niður síld væri þannig, að þar hefðum við átt allmikla ónotaða möguleika, — möguleika, sem hefðu ekki verið nýttir. Var því að skilja á honum, að það væri ekki ýkjamikil þörf á því að gera miklu meira í þeim efnum.
Það er auðvitað enginn vafi á því, að það er mikil þörf á því að aðhafast allmikið til þess að koma vetrarsíldinni, svo mikil sem hún er nú orðin, í verðmætara horf en verið hefur. Og það er í rauninni mjög illt til þess að vita, ef ríkisstj. landsins hefur ekki gert sér grein fyrir því, að á — þessu er brýn þörf. í rauninni má segja svipað um sumarsíldina, að það er sams konar þörf á því að gera þar ráðstafanir til að nýta þau verðmæti betur en gert hefur verið, og óskir, sem fram kunna að koma um það, að gerðar séu athuganir á því, hvernig megi bæta úr vinnslunni í þessum efnum, er ekki hægt að afgreiða með því að segja, að við eigum nægilegt af verksmiðjum fyrir, sem séu ekki notaðar, eða þá að hér hafi verið um miklar framfarir að ræða að undanförnu.
Tölurnar, sem hæstv. ráðh. nefndi í þessum umr. um söltun á Suðurlandssíldinni, segja ekkert til um það, að hér hafi verið um einhverjar framfarir að ræða í þessari verkunargrein. Við höfum stundum áður saltað eins mikið og nú. Árið 1956 voru saltaðar hér rúml. 116 þús. tunnur, og ýmis önnur ár var einnig saltað mun meira en þessi ár, sem hæstv. ráðh. nefndi hér. En þá stóð hins vegar svo á, á árunum 1958, 1957 og 1958, að þá var svo að segja öll veiðin, sem um var að ræða, söltuð eða fryst, aðeins örlítið af aflanum fór þá til bræðslu eða í verðminnstu verkunina. En nú hefur orðið sú breyting á, eftir að veiðin óx svona mikið eins og hún hefur gert síðustu tvö árin, að þá fer meginhluti aflans í bræðslu eða í mjög verðtitla verkun, því að sú síld, sem veiðist yfir veturinn, er hreint ekki vel til þess fallin að vera brædd, en aðeins sáratítilt hluti fer til söltunar eða frystingar eða annarrar verkunar.
Hið rétta er það, að um alllangan tíma hefur verið svo gengið frá málum, að það hefur verið tryggt með fyrirframsamningum um sölu saltsíldar, að hægt væri að salta hér suðvestanlands í kringum 100 þús. tunnur. Stundum hefur verið saltað örlítið meira, stundum minna eftir því, hvernig veiðin hefur gengið. En þrátt fyrir stóraukinn afla hafa möguleikar í þessum efnum ekki aukizt frá því, sem áður var. En hitt liggur líka fyrir, að það er auðveldlega hægt að salta hér miklum mun meira magn en gert hefur verið og það er líka hægt að selja miklum mun meira magn af saltsíld en gert hefur verið. En það, sem þar stöðvar framleiðsluna, er, að markaði. sem hafa verið tilbúnir til þess að taka við okkar saltsíld, hefur ekki verið hægt að nýta vegna þeirrar viðskiptastefnu, sem ríkisstj. hefur haldið uppi. Samningar, sem gerðir hafa verið, hafa orðið að falla niður, vegna þess að ríkisstj. hélt uppi þeirri viðskiptastefnu, að hún eyðilagði þá markaði, sem fyrir hendi voru fyrir þessa saltsíld. Þetta atriði hefði auðvitað hæstv. viðskmrh. átt að vita aura manna bezt. Ég er ekki í nokkrum vafa um, að það væri auðvelt að salta hér yfir veturinn 200–300 þús. tunnur af Suðurlandssíld, og það væri auðvett að benda á örugga markaði fyrir þessa framleiðslu. En skilyrði til þess, að þeir markaðir verði nýttir, eru þau, að við verðum að eiga ákveðin við skipti við þær þjóðir, sem þar eiga hlut að máli. Ríkisstj, hefur sem sé greinilega valið þá leiðina að láta heldur síldina fara í verðlitla verkun, til þess að þurfa ekki að eiga viðskipti við þau markaðslönd, sem voru tilbúin að taka þessa framleiðsluvöru okkar. Þannig er sannleikurinn varðandi þessa verkunargreinina á Suðurlandssíldinni, söltunina.
Hvað er svo að segja um niðursuðu og niðurlagningu á síld? Er því raunverulega þannig háttað hjá okkur, að þar hafi verið um ónotaða möguleika að ræða, að þar höfum við átt einhvern verksmiðjukost, sem hafi ekki verið notaður? Þessu er auðvitað algerlega öfugt farið. Hið rétta er það, að við erum með mjög ónógan verksmiðjukost í þessum efnum. Við höfum gert nokkra viðskiptasamninga um sölu á niðursoðinni síld og niðursoðnum sjávarafurðum, og við höfum ekki getað staðið við þá samninga. Við höfum orðið að svíkja þá, vegna þess að við höfum ekki haft hér verksmiðjur til að afkasta upp í þessa samninga. Okkar útflutningsskýrslur sýna, að við höfum ekki flutt út nema nokkur hundruð tonn á ári af niðursoðnum sjávarafurðum og niðurtögðum, á sama tíma t.d. sem keppinautar okkar, Norðmenn, hafa um árabil flutt út niðursoðnar sjávarafurðir og þá fyrst og fremst niðursoðna síld, svo að skiptir tugum þúsunda tonna. Um langan tíma hefur útflutningur þeirra leikið á milli 20 og 30 þús. tonna af niðursoðnum sjávarafurðum, aðallega niðursoðinni síld. En Norðmenn selja mjög mikið af þessari vöru til ýmissa þeirra landa, sem íslenzk stjórnarvöld virðast nú forðast að eiga viðskipti við.
Það er alveg rétt, að það er á ýmsan hátt örðugt að finna hentuga markaði fyrir okkar niðursoðnu vöru í löndum Vestur-Evrópu flestum. Sum þeirra eru beinlínis útflutningslönd að niðursoðnum síldarafurðum, og þar er því miklu þrengra um vik. Það þarf því að leita til annarra staða.
Svo sagði hæstv. viðskmrh., að niðurlagningarverksmiðja síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði væri mjög fullkomin og vönduð verksmiðja. Nei, því miður verður að játa það, að hún er afskaplega frumstæð. Þar hefur verið framkvæmd tilraunavinna nokkur allmerkileg og mjög gagnleg eflaust, en þar er ekki um fullkomna verksmiðju að ræða. Sú síld, sem þar hefur verið lögð niður, hefur öll verið handflökuð, og hún hefur verið handskorin og handlögð niður í dósirnar og allt saman unnið þar í höndum á eins prímitífan hátt og hægt er að hugsa sér. Það er sannleikur málsins. Og heildarafköstin eru lítil. En framleiðslan hefur tvímælalaust verið góð, og menn hafa lært allmikið á þessari starfsemi. Það er mikill misskilningur, ef ríkisstj. heldur, að þarna sé um einhverja fullkomna verksmiðju að ræða og að þeir byrjunarerfiðleikar, sem hafa komið fram varðandi sölu á framleiðslu hennar, sanni eitthvað um þá möguleika, sem eru í þessum efnum.
Það er rétt, að í einni grein verkunarinnar á Suðurlandssíldinni hefur orðið um nokkra framför að ræða nú á s.l. vetri, en það er í hraðfrystingu á síld. Hraðfrysting á síld jókst talsvert mikið nú. Það reyndist mögulegt fyrir allmikið af frystihúsum hér suðvestanlands að koma fram breytingum á vélakosti sínum, þannig að hægt var að auka frystinguna til verulegra muna. Þetta hefur komið fram einnig í auknum útflutningi vegna þess, að það hefur stórlega dregið úr hraðfrystingu á síld fyrir innanlandsnotkunina. Beitunotkun í landinu hefur minnkað svo mikið frá því, sem áður var, að hægt er að flytja miklu meira magn út af þeirri síld, sem fryst er. En það er sem sagt rétt, að þarna hefur orðið um nokkra aukningu að ræða, en þó er það svo, að þarna eru enn þá mjög miklir möguleikar ónotaðir. Við höfum enn ekki komizt upp í það að flytja út nema rúmlega 20 þús. tonn af hraðfrystri síld, en við vitum til þess, að Norðmenn hafa komizt sum árin upp í 70 þús. tonn í útflutningi af frosinni síld, og við vitum enn fremur um það, að við eigum mikla möguleika á því að selja þessa vöru. En þar kemur nákvæmlega það sama upp og með saltsíldina, að við verðum að eiga viðskipti við þau lönd, sem ríkisstj. hefur brotið niður viðskiptin við, annars erum við í strandi með þessa framleiðslu líka. Þetta eru framleiðendurnir margsinnis búnir að benda ríkisstj. á. Samninga, sem gerðir hafa verið um sölu á þessari framleiðslu, hefur ekki verið hægt að framkvæma, vegna þess að hin almennu viðskipti við viðkomandi markaðsland hafa fallið saman. Hið rétta er því þetta, og því vil ég beina alveg sérstaklega til hæstv. viðskmrh. vegna þeirra umr., sem fóru fram áður um þetta mál, að það hefur verið saltað mun minna af Suðurlandssíld nú á s.l. ári og á árinu þar á undan en hægt var að gera, heldur en markaðsmöguleikar leyfðu okkur, vegna þess að mörkuðunum var lokað fyrir okkur vegna viðskiptastefnu ríkisstj. Hið sama er að segja um frystinguna á síld, að það var líka hægt að frysta mun meira af síld en gert var, en það strandaði líka á markaðsmálinu.
Aðrar verkunargreinar koma svo auðvitað líka til greina til hagnýtingar á vetrarsíldinni. Við vitum, að það er möguleiki á því að reykja allmikið af síld. Reynsla Norðmanna hefur líka sýnt okkur það, að þeir hafa verkað allmikið af sinni vetrarveiddu síld á þann hátt og fundið markað fyrir reyktu síldina í mörgum löndum. Við höfum svo að segja ekkert framleitt af þeirri vöru. Og hvaða ástæður eru til þess, að við höfum ekki getað verkað síldina á þennan hátt, og einnig til þess, að ýmsir þeir hafa ekki getað tekið þátt í framleiðslu á hraðfrystri síld, sem það hefðu þó viljað? Ástæðurnar eru þær, að það er vitanlega hægara sagt en gert að koma upp vinnslustöðvum eða verksmiðjum, þar sem svo stendur á, að ekki er hægt að fá nein stofnlán til framkvæmdanna. Í okkar landi háttar þannig til, að þó að um væri að ræða aðila, sem vildu koma upp vinnslustöð til þess að reykja síld til útflutnings, þá er engin stofnun til í landinu, sem veitir stofnlán til byggingar slíkrar stöðvar. Fiskveiðasjóður, sem helzt ætti að sinna því verkefni, hefur ekki nægilegt fé til þess og svarar öllum, sem til hans leita, að hann hafi ekki fé í slíkt að leggja. Enginn vafi er á því, að ýmsir mundu leggja í það að koma upp niðursuðuverksmiðjum og einnig reykingarverksmiðjum, ef möguleikar væru á því að fá nægileg stofnlán til þess að koma upp slíkum rekstri. Fleiri atriði grípa svo hér inn í, sem hæstv. ríkisstj. ætti að þekkja betur til en nokkur annar. Sannleikur málsins er líka sá, að útlánapólitík ríkisstj. og vaxtapólitíkin standa mjög gegn því, að nokkrir aðilar ráðist í að vinna vöru, þar sem það kostar langan tíma að fullvinna vöruna til útflutnings. Það er oft og tíðum miklu hentugra og oft og tíðum eina leiðin, sem framleiðendur geta valið, að taka síldina beint upp úr veiðiskipinu, koma henni út í útflutningsskip, láta útflutningsskipið sigla með vöruna óunna á erlendan uppboðsmarkað og auðvitað sæta þar misjafnlega góðu verði. Það er oft og tíðum, að þessi leið er valin til þess að komast undan þeim mikla vanda að fá nægilegt fé í vinnslukostnaðinn og til þess að komast fram hjá hinum háu vöxtum, sem hér hvíla á framleiðslunni. Þeir, sem taka vöruna og þurfa að hafa hana í vinnslu í marga mánuði og jafnvel allt upp í eitt ár, eins og getur verið um sumar verkunaraðferðir, verða að borga óheyrilega háa vexti og fá til rekstrarins mjög knöpp rekstrarlán skv. reglum þeim, sem ríkisstj. hefur sett, og þetta hefur orðið til þess, að menn draga það við sig að fara í fullvinnstu á vörunni og sæta heldur hinu, að flytja vöruna út tiltölulega lítið unna. Það, sem gera þarf, til þess að síldarafli okkar, bæði sumarsíldarafli og vetrarsíldarafli, verði unninn á hagnýtari og verðmeiri hátt en gert hefur verið, er í fyrsta lagi það, að það þarf að gerbreyta um fyrirkomulag varðandi veitingu á stofnlánum. Það þarf að breyta um vaxtapólitík. Það þarf að breyta um rekstrarlánapólitík frá því, sem verið hefur. Og síðast, en ekki sízt, þarf að breyta um viðskiptastefnu hjá ríkisstj. til þess að hægt sé að nýta þá markaði, sem alveg er vitanlegt að liggja á borðinu hjá okkur fyrir þessa framleiðslu. Hitt þarf svo gjarnan að gera líka, þegar er verið að ráðast í nýjar framleiðslugreinar eins og niðursuðu og niðurlagningu á síld, þá þarf á mikilli sérfræðiþekkingu að halda. Og af því hafa verið fluttar hér till, á Alþingi æði oft um það, að ríkisstj. beiti sér fyrir því að fastráða nokkra sérfræðinga, sem gætu gengið á milli framleiðenda og leiðbeint þeim, veitt þeim sérfræðilegar upplýsingar varóandi slíkar nýjar framleiðslugreinar.
Ég álít því, að það hafi verið hinn mesti misskilningur, sem hér kom fram í ræðu hæstv. viðskmrh., varðandi þessi mál, að það væri með öllu ástæðulaust að tala um, að það þyrfti að athuga, hvernig hægt væri að hagnýta á betri og verðmætari hátt síldaraflann, að þar væri allt athugað í botn. Ég segi það, að mér fannst, að það, sem hæstv. viðskmrh. sagði um málið, sýndi, að ríkisstj. hefði ekki áttað sig á því, hvað þyrfti að gera. Ég skal að vísu játa, að það eru ýmsir aðilar í þessu landi, sem hafa gert sér grein fyrir því í aðatatriðum, að hverju þessi athugun þyrfti að beinast og hvað það er, sem gera þarf til þess að fá úrbætur í þessum efnum. En það er nú svo, að þó að einstakir aðilar séu að halda fram sínum skoðunum á því, hvað gera þurfi, þá virðist hitt æði oft vera kröftugra, að Alþingi ákveði að setja niður nefnd manna, sem síðan geri almenna athugun á málinu og leggi þar fram till. um leiðir til úrbóta. Því tel ég fyrir mitt leyti, að sú till., sem hér er til umr., sé fyllilega réttmæt og í alla staði þinghæf till., og ég hef ekki áttað mig á því að öllu leyti enn, hvernig stóð á því, að hæstv. viðskmrh. tók þessu máli svo illa sem hann gerði, nema það sé þá raunverulegt, sem ég á erfitt með að trúa, að hann haldi, að málin standi á þann hátt, sem hann túlkaði þau. En ég held nú, að hann hljóti að vita betur í málinu.