19.12.1962
Sameinað þing: 24. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 455 í B-deild Alþingistíðinda. (321)

1. mál, fjárlög 1963

Frsm. samvn. samgm. (Sigurður Ágústsson):

Herra forseti. Á þskj. 208 hefur samvinnunefnd samgöngumála lagt fram nái., þar sem hún gerir till. sínar um framlög úr ríkissjóði til flóabáta og vöruflutninga á fjárl. fyrir árið 1963. Allir nm. standa sameinaðir að þessum till., eins og nál. ber með sér. Ég mun með nokkrum orðum gefa hv. alþm. nokkru fyllri upplýsingar varðandi fjárframlög ríkissjóðs til þessarar þjónustu en fram kemur í nái., svo og um ráðstafanir, sem gerðar hafa verið á þessu ári og miða að því að bæta þessa þjónustu.

Í sambandi við Norðurlandssamgöngur leggur n, til, að framlag til Drangs, sem hefur reynzt hentugt og gott skip, verði hækkað um 100 þús. kr. eða verði ákveðið 800 þús. kr. á næsta árs fjárl. — Strandabátur hefur fengið 160 þús. kr. framlag í 3 ár eða fyrir árin 1960–1962, en eftir upplýsingum frá formanni Skipaútgerðarinnar var úthaldstími bátsins 6 mánuðir árið 1960, 61/2 mánuður á árinu 1961, en aðeins 4 mánuðir á þessu ári. N. hefur þó öll þessi ár bundið fjárframlagið því skilyrði, að úthaldstími bátsins væri allt að 8 mánuðum. N. hefur þrátt fyrir þessar misfellur enn gert till. um, að Strandabátur fái 760 þús. kr. framlag, og enn gert tilmæli um það, að úthaldstími bátsins verði allt að 8 mánuðum. Lagt er til af n., að Haganesvíkurbátur fái 5 þús. kr. hækkun eða nú 25 þús. kr., sem í raun og veru er framlag vegna hins háa tilkostnaðar, sem íbúar Haganesvíkur og nágrennis hafa af þeim vandkvæðum, að Drangur hefur oftast viðkomu að næturlagi, sem veldur stórauknum kostnaði fyrir þá aðila, sem vörurnar eiga. — Hríseyjarbáti er ætlað sama framlag í ár, sem er 30 þús. kr. — Framlag til Flateyjarbáts á Skjálfanda hækki um 7 þús. kr. eða í 50 þús. kr. Þá leggur n. til, að veittar verði 20 þús. kr. til hreppsnefndar Grímseyjar til að tryggja eyjarbúum flugferðir á hálfs mánaðar fresti. Fyrirhugað er að semja við Tryggva Helgason flugmann, að hann taki að sér að veita þessa þjónustu.

Til Austfjarðasamgangna er gert ráð fyrir sama fjárframlagi til Loðmundarfjarðarbáts eða 50 þús. kr. — Framlag til Mjóafjarðarbáts er gerð till. um að hækka um 20 þús. kr. eða í 130 þús. kr. Er þá ráð fyrir gert, að báturinn haldi uppi ferðum milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar á sama hátt og undanfarin ár. Af framlagi til Mjóafjarðarbáts eiga að renna 50 þús. kr. til snjóbílaferða frá Seyðisfirði yfir Fjarðarheiði til Héraðs, eins og áður hefur tíðkazt.

Um framlög vegna vöruflutninga í VesturSkaftafellssýslu leggur n. til, að upphæðin verði hin sama og á þessu ári eða 270 þús. kr., og að framlag vegna vöruflutninga til Öræfa verði hækkað um 22 þús. kr. eða í 130 þús. kr. — Þá leggur n. til, að framlag til Vestmannaeyjabátsins Herjólfs verði hækkað um 50 þús. kr. eða í 200 þús. kr. Hér er um nokkurt vandamál að ræða. Það munu vera nær 1500 smál. af nýmjólk, sem Herjólfur annast flutninga á frá Mjólkursamsölunni til neytenda í Vestmannaeyjum. Eftir því sem forstjóri ríkisskipa upplýsir, telur Mjólkursamsalan sig taka það mikinn þátt í kostnaði við mjólkurflutningana, að það verð, sem hún fær fyrir Vestmannaeyjamjólkina, sé hið sama og Mjólkursamsalan fær fyrir vinnslumjólk almennt. Herjólfur, sem annast flutninginn, mun ekki geta selt þá þjónustu á lægra verði, og að sjálfsögðu vilja neytendur í Vestmannaeyjum ekki greiða hærra verð fyrir mjólkina en hún er seld öðrum neytendum víðs vegar á landinu. Það er því þrautalendingin, að ríkissjóður taki enn nokkurn kostnað á sig með því að hækka framlagið til Vestmannaeyjabátsins vegna mjólkurflutninga, eins og n. leggur til, eða um 50 þús. kr.

Í sambandi við Faxaflóasamgöngur leggur n. til, að framlag til Akraborgar eða til Skallagríms h/f verði hækkað um 100 þús. kr. og verði þar með 960 þús. kr. á árinu 1963. Framlag til Mýrabáts leggur n. til að verði hækkað úr 450 þús. kr. í 500 þús. kr.

Í sambandi við Breiðafjarðarsamgöngur leggur n. til, að framlag til Flateyjarbátsins Konráðs verði hækkað úr 230 þús. kr. í 290 þús. kr. Þessi bátur er allan ársins hring í notkun og veitir mikla þjónustu í hinum strjálu byggðum á norðanverðum Breiðafirði. Af framlagi Konráðs er gert ráð fyrir að 20 þús. kr. renni til vetrarferða á Barðaströnd til Patreksfjarðar eftir óskum héraðsbúa. — Þá leggur n. til, að framlag til Stykkishólmsbátsins Baldurs verði hækkað um 140 þús. kr. í 800 þús. kr. Mótorbáturinn Baldur hefur gengið allan ársins hring og veitt langa og góða þjónustu á Breiðafirði, enda dugmiklir menn og gætnir, sem annazt hafa skipstjórn á bátnum og rekstur hans. A þessu ári hefur hæstv. ríkisstj. ákveðið að fara að óskum Breiðfirðinga um að gefa loforð um að leggja fram nokkurt fé til, að Baldur h/f geti komizt yfir nýtt skip, nýjan Stykkishólmsbát, sem á að gegna sömu þjónustu og Breiðafjarðarbátar hafa veitt Breiðafjarðarbyggðum í 60 ár, sem sé að annast ferðir milli Reykjavíkur og Breiðafjarðarhafna. Er það vissulega ósk allra Breiðfirðinga, að vel takist með kaup og rekstur hins nýja skips. — Þá leggur n. til, að framlag til Langeyjarnesbáts verði hið sama og í ár eða 40 þús. kr.

Í sambandi við Vestfjarðasamgöngur leggur n. til, að Djúpbáturinn Fagranes fái hækkun á framlagi sínu um 140 þús. kr. eða í 800 þús. kr. Þá er jafnframt gengið út frá því, að ekki verði tekin upp á 22. gr. fjárl. heimild til ríkisstj. að greiða bátnum 100 þús. kr., eins og framkvæmt hefur verið á fjárl. fyrir árin 1961 og 1962. Það er eins ástatt með mótorskipið Fagranes og mótorbátinn Baldur, að það er ekki talið fært um að gegna þjónustustörfum sínum við Ísafjarðardjúp miklu lengur, svo að vel sé, og hefur því Djúpbáturinn h/f gert samning um smíði og kaup á skipi frá Hollandi, sem væntanlega kemur til landsins seint á næsta ári. Hefur hæstv. ríkisstj. sýnt áhuga og velvild til þess héraðs með því að lofa hliðstæðri fyrirgreiðslu til hins nýja Djúpbáts og til Stykkishólmsbátsins. Er það vissulega ánægjulegt, að vissa er fengin fyrir því, að þessi tvö byggðarlög, byggðin við Ísafjarðardjúp og við Breiðafjörð, skuli eiga í vændum stórbætta þjónustu á sjó með tilkomu hinna nýju flóabáta. — Þá leggur n. til, að Dýrafjarðarbátur og Skötufjarðarbátur fái hækkun, sem nemi 5 þús. kr. á hvorn bát, þannig að framlag til þeirra verði 15 þús. kr., og framlag til Patreksfjarðarbáts verði hækkað úr 10 þús. kr. í 20 þús. kr.

Eins og tilgreint er í nál. á þskj. 208, gera tili. n. ráð fyrir, að framlögin í heild til flóabáta og vöruflutninga nemi 4 millj. og 800 þús. kr., og í samræmi við það hefur n. flutt brtt. á þskj. 210, V, að liðurinn verði hækkaður úr 4120500 kr. í 4 millj. 800 þús.

Eins og fram er tekið í nál. á þskj. 208, hefur samvinnunefnd samgöngumála það í huga, er þing kemur saman að nýju í janúarlok, að flytja till. til þál, um skipun n. til að endurskoða og gera till. um framtíðarskipun þessara samgöngumála, svo að fjárframlög þau, sem ríkissjóður leggur fram árlega til þessarar þjónustu, megi koma að sem beztum notum fyrir það fólk, sem þeirra á að njóta.

Ég tel óþarft að fara fleiri orðum um nál. og brtt. n., en vænti þess, að hv. alþm. veiti þeim fylgi sitt.