31.10.1962
Sameinað þing: 8. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í D-deild Alþingistíðinda. (3296)
248. mál, lán út á landbúnaðarafurðir
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð í tilefni af aví, sem kom fram frá hæstv. landbrh. Eins og menn vita, var sú regla sett af ríkisstj. 1960, að Seðlabankinn skyldi ekki endurkaupa hærri heildarfjárhæð af afurðavíxlum landbúnaðarins en áður hafði verið gert 1959. Og þetta var náttúrlega mjög hættulegt ákvæði fyrir landbúnaðinn, og menn hafa verið afar óánsegðir með það, vegna þess að verðið hefur farið hækkandi, eins og önnur dýrtíð hefur vaxið í landinu, og framleiðslan hefur aukizt. Og þá hlaut náttúrlega þessi regla að verða til þess, að tiltölulega minna yrði lánað ár frá ári úr sjálfum Seðlabankanum, endurkaupin á afurðavíxlum landbúnaðarins yrðu raunverulega minni ár frá ári. Horfði mjög geigvænlega í þessu efni, eins og hefur nú komið fram af því, sem hv. fyrirspyrjandi upplýsti, þar sem þeir, sem kunnugastir eru tölum í þessu tilliti, gerðu ráð fyrir, að endurkaupin færu niður fyrir 50%, ef þessari reglu væri haldið í gildi. Það má þess vegna telja nokkurn árangur af því, sem unnið hefur verið í þessu máli, að nú hefur komið fram yfirlýsing frá hæstv. landbrh. um það, að endurkaupin á afurðavíxlunum verði sem svarar 55% á þessu hausti út á birgðir landbúnaðarafurða, og hlýtur það að þýða, að þetta hámarksákvæði hafi verið fellt úr gildi.
En þá er það þetta, sem hér hefur nokkuð borizt í tal á milli hæstv. ráðh. og hv. fyrirspyrjanda, að málið er ekki komið í höfn með þessu, vegna þess að ríkisstj. hefur látið Seðlabankann minnka endurkaup á afurðavíxlum yfirleitt, þannig að í staðinn fyrir að áður voru endurkeypt 67%, bæði í sjávarútvegi og landbúnaði, þá er nú í haust fyrirhugað, að því er manni skilst, að endurkaupa 55% í landbúnaði og þá sennilega svipað í sjávarútvegi, eins og líka var í fyrra. En þessi minnkuðu endurkaup og minnkuðu afurðalán úr Seðlabankanum hafa orðið framleiðslunni dýr, og skal ég ekki fara út í það hér, en sjávarútvegurinn hefur þó fengið þá úrlausn, og þó að hæstv. ráðh. vilji ekki segja, að það hafi verið alveg föst regla, þá er það næst því rétta, að segja, að það hafi verið nær undantekningarlaust bætt við lánin 15% til sjávarútvegsins af viðskiptabönkunum, þannig að alts hafi verið lánað út á afurðirnar um 70%. Það er þetta, sem landbúnaðurinn hefur farið fram á, en mér skilst hæstv. ráðh. hafi ekki enn þá gert svo mikla gangskör að, að upp hafi verið tekin nokkur regla um það í bönkunum. Hann segir, að því er mér skilst, að stjórnin vilji láta gera þetta. Ég skil hæstv. ráðh. svo, að stjórnin vilji láta gera þetta og hún hafi lýst þessu yfir við viðskiptabankana, og verður þá að búast við því, að það hafi úrslitaáhrif á viðskiptabankana. Verður því að vænta þess, að viðskiptabankarnir fari nú inn á þá, braut að afgreiða þessi viðbótarafurðalán frá sér til landbúnaðarins yfirleitt eftir sömu reglu og gert hefur verið til sjávarútvegsins. Ég vil í lengstu lög álíta, að þar sem hæstv. ráðh. hefur þrýst á viðskiptabankana í þessu efni, dugi það til þess, að þetta verði gert.
Hæstv. ráðh. segir, að kannske sé ekki þörf á því að gera þetta alls staðar, vegna þess að bændur hafi fengið álíka mikla útborgun undanfarið og áður, þó að minna hafi verið lánað út á afurðirnar. En hæstv. ráðh. getur auðvitað ekki notað þetta sem mælikvarða á ástandið, það veit ég, að honum er ákaflega vel ljóst. Það er vegna þess, — að mörg af þeim fyrirtækjum, sem hér eiga hlut að máli og fjalla um afurðir bændanna, verða, eins og nú er ástatt, að taka sér til stórbaga af öðru rekstrarfé til að borga út á afurðirnar, vegna þess, hve afurðalánin hafa verið klipin við nögl frá því, sem áður var. Þetta veit ég, að hæstv. ráðh. er vel ljóst, þannig að þetta rekur allt í strand. Það hlýtur að reka í strand með þessi mál, nema því aðeins að nú rætist verulega úr í þessum lánamálum.
Ég vil sem sagt vona, að þetta, sem hæstv. ráðh. upplýsir, að ríkisstj. hafi þrýst líka á viðskiptabankana, verði til þess, að það fáist í framkvæmdinni hliðstæð úrlausn fyrir landbúnaðinn og fyrir sjávarútveginn.