21.11.1962
Sameinað þing: 14. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í D-deild Alþingistíðinda. (3306)
249. mál, virkjunarmöguleikar Jökulsár á Fjöllum o.fl.
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Fsp. sú, sem hér um ræðir, er í fjórum liðum, og hefur hv. fyrsti fyrirspyrjandi lesið fsp. upp, og er því óþarfi að endurtaka þær hér. En það er rétt að hafa það í huga, að þegar rætt er um að virkja stórvirkjun með það fyrir augum að koma á stóriðju, þá er þetta mjög kostnaðarsamt, og til þess að finna það bezta út, sem við höfum, verður að rannsaka þau vatnsföll, sem til greina koma, til þess að fá réttan og hagstæðan samanburð. Og þau vatnsföll, sem helzt koma til greina til stórvirkjunar, það er Jökulsá á Fjöllum, það er Þjórsá og það er Hvítá í Árnessýslu. Ég mun leitast við að svara þessari fsp. og styðst þá vitanlega við þær upplýsingar, sem raforkumálastjóri hefur látið mér í té. Vænti ég, að þau svör verði fullnægjandi og sýni það, að till. sú, sem borin var fram hér og samþ. á Alþ., hefur verið tekin til greina og árangur fengizt af því.
Það er langt síðan Jökulsá á Fjöllum varð fyrir augum manna, sem heppilegt vatnsfall til stórvirkjana á íslenzkan mælikvarða. Þetta er mikið vatnsfall og vatnsrennslið er jafnara allt árið um kring en í flestum öðrum jökulám eða dragám landsins. En augljóslega er það þó fallið kringum Dettifoss, sem bezt liggur við til virkjunar. Allra fyrstu mælingar fyrir virkjun við Dettifoss voru framkvæmdar þegar á árunum 1915–1920, er Guðmundur Hlíðdal póst- og gímamálastjóri mældi þar fyrir þau firmu, er þá höfðu á hendi vatnsréttindi árinnar. Kringum 1955 gerði Sigurður Thoroddsen á vegum raforkumálaskrifstofunnar áætlun um fullvirkjun Jökulsár og taldi þá, að aðalfalli árinnar yrði að skipta í tvennt: fall frá Selfossbrún og niður fyrir Hafragilsfoss annars vegar og hins vegar það, sem þá var eftir, allt niður fyrir eða niður að Löndum í Axarfirði. Smávirkjun væri þó auk þess hægt að gera upp við Möðrudal. Sigurður miðaði áætlun sína við mjög háa stíflu og á þann hátt fulla miðlun og taldi, að virkja mætti í ánni 1/2 millj. kwst. á ári, meðalári. Árið 1957 var svo að tilhlutan þáv. raforkumrh. leitað til ameríska firmans Harza Enginæring Company til að fá þá til að gera nánari áætlun um virkjun í Jökulsá í samvinnu við íslenzka verkfræðinga með það fyrir augum að ákveða með meiri nákvæmni en enn hafði fengizt, á hvaða verði unnt væri að bjóða stóriðju raforku úr Jökulsárvirkjun eða úr svipuðum stórvirkjunum hérlendis. Til að fá fram örugga áætlun á skömmum tíma var það ráð tekið að áætla í fyrstu virkjunartilhögun, sem ekki byggist á háum stíflum og mikilli miðlun, heldur væri miðað við minnsta rennsli árinnar eða lítið eitt þar fram yfir. Þá væri hægt að komast af með lægri og mun ódýrari stíflur og í bili hægt að komast hjá tímafrekum rannsóknum, sem gera þurfti, ef áætlun fylgdu stórar vatnsuppistöður, sem breiddu sig yfir mikið landflæmi. Með því að hafa samvinnu við þetta heimsþekkta verkfræðifirma vannst það, að erlendir bankar, svo og erlend iðjufyrirtæki, mundu treysta tölum áætlunar, en hætt við, að þessir aðilar mundu ekki vilja láta sér nægja áætlanir gerðar af íslenzkum verkfræðingum einum. Niðurstöður þessara áætlana voru þær, að á þennan hátt mátti fá í Dettifossfallinu rúmlega 100 þús. kw. og álíka mikið í neðri hluta fallsins. Virkjunarkostnaður við Dettifoss var mjög lágur og orka þeirrar virkjunar því mjög ódýr, en virkjun neðra hluta fallsins, þar sem vegalengd vatnsvega var mörgum sinnum meiri en upp frá, var miklu meiri og orkan til muna dýrari.
Síðan þessar áætlanir voru gerðar, hefur átt sér stað nánari athugun á skilyrðum til þess að koma upp alúminíumverksmiðju hér á landi. í þeim athugunum hefur kamið skýrar fram ýmislegt varðandi stærð verksmiðja, aflþörf þeirra og rekstrarskilyrði. Í sambandi við þær athuganir hefur nú verið unnið að rannsóknum og áætlanagerð um virkjunarmöguleika til að fullnægja aflþörf slíkra verksmiðja eða verksmiðju. Þessar rannsóknir hafa farið fram samtímis í þremur ám: Jökulsá á Fjöllum, Þjórsá og Hvítá í Árnessýslu. í Jökulsá er það Dettifossvirkjun, sem kemur til greina í þessu sambandi, Þjórsárvirkjun við Búrfell, og í Hvítá voru athugaðar Tungufellsvirkjun og Sandárversvirkjun uppi undir Bláfelli.
Af þessum fjórum virkjunarstöðum er Búrfellsfallið langstærsti og aflmesti virkjunarstaðurinn, en jafnframt er hann vegna staðhátta og frá jarðfræðilegu sjónarmiði erfiðastur í rannsókn. Það þótti t.d. ekki fært annað en að gera löng jarðgöng inn í fjallið til rannsóknar á jarðlögum, þar sem virkjunarmannvirkin eiga að vera. En á hinum stöðunum hefur verið talið nægilegt auk þeirra athugana, sem hægt er að gera í hinum djúpu gljúfrum, bæði við Dettifoss og við Gullfoss, að framkvæma jarðboranir og taka sýnishorn af jarðiögunum á ýmsum stöðum. Allmiklar jarðboranir hafa farið fram á öllum þessum stöðum, en þó minnst við Tungufell, enda útlit fyrir, að virkjunarkostnaður þar verði meiri á hverja afleiningu en við Jökulsá eða Búrfell. Þessar síðari rannsóknir, sem hér hafa verið nefndar, hafa kostað u.þ.b. 4 millj. kr. Við Dettifoss hafði áður verið varið um það bil 3 millj. kr. til rannsókna og áætlana, en svo til engu við Búrfell. Rannsóknir og áætlanir við Tungufell og Sandárver hafa kostað til muna minna en við Jökulsá. Af þeim 4 millj. kr., sem varið hefur verið til rannsókna og áætlana við Jökulsá á s.l. 2 árum, eru 2 millj. kr. erlendur kostnaður og 8 millj. kr. af þeim 18 millj., sem til Búrfells hafa farið. Þessi erlendi kostnaður er greiðsla til fyrrnefnds bandarísks verkfræðifyrirtækis fyrir áætlanir þess og sérfræðirannsóknir.
Þess ber að geta í þessu sambandi, að rannsóknirnar við Búrfell ná til umfangsmeiri virkjana en við Dettifoss, vegna þess að reiknað er með, að jafnframt því að virkja á þessum stað til alúminíumvinnslu verði stöðin og virkjunin höfð svo miklu stærri en verksmiðjan þarf á að halda, að hún geti jafnframt séð fyrir þeirri aukningu á eftirspurn rafmagns til almenningsnota, sem fyrirsjáanleg er á næstu árum. Þarna er því verið að gera áætlun um 150–180 þús. kw. virkjun, en við það bætist svo, að jafnframt er áætluð minni virkjun eða aðeins 60 þús. kw., ef hugsanlegt væri, að slíka virkjun mætti gera til almenningsnota einöngu, ef ekkert yrði úr því að reisa hér alúminíumverksmiðju eða verksmiðja yrði refst í öðrum landshluta. Norðanlands við Dettifoss yrði ekki um slíka smávirkjun til að fullnægja almenningsþörfum að ræða vegna þess, hve lítil almenningsnotkunin er, og virkjun handa alúminíumverksmiðju yrði þá einnig að sama skapi minni þar en við Búrfell, ekki nema 100–140 þús. kw.
Til sérstakra rannsókna. og áætlana á öðrum virkjunarstöðum en Dettifossi og Búrfelli hefur verið varið 10 millj. kr.
Að því er tekur til athugana, sem gerðar hafa verið varðandi útflutningshöfn eða hafnir fyrir alúminíum eða aðrar vörur, sem yrðu unnar í stóriðju eða við stórvirkjanir, skal tekið fram: Sunnanlands hafa komið til greina staðirnir Þorlákshöfn annars vegar og nágrenni Reykjavíkur og Hafnarfjarðar hins vegar. En norðanlands er í rauninni meira vafamát, hvar staðsetja ætti alúminíumverksmiðju, og hefur í því sambandi augum verið rennt yfir land- og sjókort allt frá Eyjafirði og austur á Seyðisfjörð og dregnar fram þær upplýsingar, sem fyrir hendi eru og hægt var að afla á þessum tíma um hafnarskilyrði á þessum hluta strandlengju landsins. Út frá þeim upplýsingum, sem þannig var hægt að afla, og með tilliti til þeirra hafnar- og landsskilyrða, sem alúminíumverksmiðja krefst, virðist sem Eyjafjörður komi helzt til greina og þá allra helzt svæðið norðan Akureyrar, vestanvert fjarðarins, í námunda við Dagverðareyri.
Hvað snertir samanburð á virkjunarkostnaði Jökulsár annars vegar og við Búrfell í Þjórsá hins vegar, þá, er hann ekki tímabær, fyrr en áætlanir liggja fyrir, sem nú er von á í kringum áramótin.
Við það, sem nú hefur verið sagt, má enn bæta því, að rannsóknirnar, jarðboranir, gangagerð og landmælingar, eru nú að enda á þeim stöðum. En eins og áður er sagt, verður áætlunum um virkjanirnar lokið og fullgerðar nú um áramót og þá með þeim fyrirvörum, sem gera þarf vegna óvissu atriðanna. Jafnframt er svo gengið út frá því, að á næsta vori verði rannsóknum, svo sem jarðborunum, haldið áfram til þess að ganga úr skugga um, eftir því sem kostur er, hvort þau jarðfræðilegu atriði, sem óvissa er enn um, eru slík sem gengið er út frá í áætlunargerðinni eða ekki.
Ég vænti svo, að hv. fyrirspyrjendur telji, að þetta svar sé nokkurn veginn í samræmi við það, sem þeir hafa óskað að fá upplýst.