12.12.1962
Sameinað þing: 20. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 452 í D-deild Alþingistíðinda. (3320)
111. mál, verndun hrygningarsvæða
Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 153 fsp. til hæstv. sjútvmrh. um framkvæmd þál., sem Alþingi samþ. hinn 11. apríl 1982, varðandi verndun hrygningarsvæða við strendur landsins.
Á síðasta Alþingi flutti ég á þskj. 61 till. til þál. varðandi þetta mál, og var till. þá vísað til hv. allshn. Breytti n. nokkuð orðalagi till., en skilaði hinn 3. apríl s.l. svo hljóðandi samhljóða áliti á þskj. 614, með leyfi forseta:
„N. hefur rætt till. þessa og leitað umsagnar Fiskifélags Íslands og fiskideildar atvinnudeildar háskólans, og eru umsagnir þessara aðila prentaðar hér með sem fskj. Það kemur fram í umsögnunum, að en kortir mikið á, að framkvæmdar hafi verið þær rannsóknir, sem þyrftu að vera undanfari hvers konar framkvæmda, er miða að friðun hrygningarsvæða nytjafiskanna við landið. Að athuguðu máli hefur n. orðið sammála um að mæla með því, að till. verði samþykkt með eftirfarandi breyt.: Till. orðist svo: Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að gera hið fyrsta nauðsynlegar ráðstafanir til, að framkvæmdar verði rannsóknir á hrygningarsvæðum nytjafiska við landið.“
Var þál. þannig orðuð samþ. hér í þessari hv. d. hinn 11. apríl s.l.
Ég tel, að mál það, sem hér um ræðir, sé svo mikilvægt fyrir aðalatvinnuveg þjóðarinnar, sjávarútveginn, að alveg sé sjálfsagt að hraða þeim rannsóknum, sem hér um ræðir, eins og aðstaða er til og nokkur kostur er á á hverjum tíma. Ég mundi telja það ófyrirgefanlegt með öllu, ef sú ógæfa henti okkur íslendinga, að nú, þegar við höfum fengið umráð yfir stórum hluta af landgrunninu og nær öllum stærstu og þýðingarmestu fiskimiðum bátaflotans, að hin fengsælu mið við strendur landsins yrðu uppurin eða þau eyðilögð á annan hátt með ofnotkun veiðarfæra. Ég tel mjög eðlilegt, að Alþingi og alþjóð fái á hverjum tíma sem gleggsta vitneskju um framvindu þessara mála, og af þeirri ástæðu er fsp. sú, sem hér liggur fyrir, fram borin.