19.12.1962
Sameinað þing: 24. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 498 í B-deild Alþingistíðinda. (333)

1. mál, fjárlög 1963

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég vil mjög taka undir það með hv. þm., að ekki má til þess koma, að ekki verði unnt að halda uppi fræðsluskyldu í Kópavogskaupstað eins og öðrum skólahéruðum landsins á næsta skólaári, og ég vil ekki trúa því, að svo þurfi að fara. Sú athugun, sem ég hef látið fara fram á því með aðstoð embættismanna fræðslumálastjórnarinnar, leiðir og í ljós, sem betur fer, að á því þarf ekki að vera hætta.

Hv. þm. lét í ljós óánægju yfir því, að í till. hv. fjvn. skuli ekki vera gert ráð fyrir því, að byrjað sé nema á einni barnaskólabyggingu í Kópavogskaupstað á næsta ári. Að sjálfsögðu hafa verið uppi nú eins og endranær margar óskir um það, að skólahéruð fái leyfi til þess að byrja á nýbyggingu skóla. En ég held, að það sé rétt að undirstrika það, sem allir hv. þm. þó án efa hafa gert sér ljóst þegar við 2. umr. þessa máls, að till. hv. fjvn., gerðar í samráði við ríkisstj., eru með þeim hætti, að aldrei hefur verið gert ráð fyrir jafnmiklu fé til að byrja nýbyggingu skólahúsa og gert er ráð fyrir í till. hv. fjvn. um fjárl. ársins 1963. Sú tala, sem n. og ríkisstj. hafa gert ráð fyrir að verði í fjárl. næsta árs til nýbyggingar skólahúsa, er hærri en nokkurn tíma áður hefur þekkzt í sögu Alþingis. (Gripið fram í: Krónan er nú svolítið minni líka.) Það er um að ræða 8.5 millj. kr. til nýbyggingar barnaskólahúsa og 3.2 millj. kr. til nýbyggingar gagnfræðaskólahúsa, eða samtals um 11.7 millj. kr. til nýrra skólahúsa, og eru þá ótaldar fjárveitingar til menntaskóla, kennaraskóla og annarra slíkra stofnana, sem ríkið byggir eitt. Þessar tölur taka eingöngu til þeirra skólabygginga, sem sveitarfélög og ríkið byggja í sameiningu. Ég endurtek og undirstrika, að þetta er langhæsta talan, sem nokkurn tíma hefur verið samþykkt í fjárl. til nýbyggingar skóla, og er svo miklu hærri en nokkur önnur tala í fjárl. áður, að hún markar tímamót, sem betur fer, í skólabyggingasögunni.

Hv. þm. lét orð liggja að því, að það, að ekki væri gert ráð fyrir nema einum nýjum skóla í Kópavogskaupstað á næsta ári, væri verk fjvn, eða ríkisstj., en till. embættismanna ríkisstj. eða ríkisvaldsins og þá væntanlega fyrst og fremst fræðslumálastjóra hafi verið með öðrum hætti. í þeim till., sem fræðslumálastjóri gerði um byggingu nýrra barnaskóla, þar sem hann raðaði upp 20 skólum, sem hann taldi mesta þörf á að byrja á, var einn barnaskóli í Kópavogi. Af þessum 20 till. hefur fjvn. tekið fjórtán skóla og því sem næst í þeirri sömu röð, sem fræðslumálastjóri lagði til í till. sínum. Það hefur aldrei komið fyrir áður, að teknir hafa verið til greina 14 skólar af 20, sem nefndir eru í till. fræðslumálastjóra.

Um byggingu gagnfræðaskóla er það að segja, að þar nefndi fræðslumálastjóri 6 gagnfræðaskóla, sem þörf væri á að byggja. Af þessum 6 skólum er gagnfræðaskóli í Kópavogi númer fimm. Tekið var tillit til byrjunar á þrem nýjum gagnfræðaskólum og auk þess veitt fé til bygginga á tveim héraðsskólum.

Það er því á ókunnugleika byggt hjá hv. þm., ef hann stendur í þeirri meiningu, að með þessum till. fjvn. sé með einhverjum sérstökum hætti gengið á snið við hugmyndir æðstu embættismanna fræðslumálastjórnarinnar, þ.e.a.s. fræðslumálastjóra, um þessi efni. Ég hefði mjög gjarnan kosið, að hægt hefði verið að hafa í till. um nýbyggingu nýjan áfanga gagnfræðaskóla í Kópavogi. En öllum óskum er ekki hægt að sinna, eins og að líkum lætur og engum hv. þm. þarf að koma á óvart. Höfuðástæða þess, að ekki þótti fært að taka annan skóla í Kópavogi, gagnfræðaskóla né heldur annan barnaskóla, í þessar till., er sú, að með þeirri fjárveitingu, sem nú er gert ráð fyrir að gangi til nýs barnaskóla, v erða fjárveitingar ríkisins til byggingar skóla í Kópavogi á næsta ári 1464393 kr., eða nær 11/2 millj. kr.

Mér hefur að vísu ekki gefizt tími til að ganga nákvæmlega úr skugga um, hvað veitt er til hvers einstaks skólahéraðs á landinu í heild, en ég held þó, að ég fari ekki með rangt mál, þegar ég segi, að ekkert skólahérað á landinu eigi að fá jafnháa fjárhæð á næsta ári, nema Reykjavík. Ég hygg, að með þessu móti sé Kópavogur það skólahérð, sem fái næsthæsta fjárveitingu í heild frá ríkinu til sinna skólabygginga, á eftir Reykjavík. Það er að sjálfsögðu eðlilegt vegna þess mikla vaxtar, sem hefur verið í Kópavogi. Ég segi þetta ekki til þess að telja þetta eftir, heldur þvert á móti vil ég undirstrika, að þetta er eðlilegt, en vil hins vegar, að menn geri sér grein fyrir, að staðreyndin er sú, að á árinu 1963 gera þessi fjárl. ráð fyrir því, að Kópavogur fái næsthæstu fjárhæðina til skólabygginga, sem veitt er til skólahéraða á landinu, komi næst á eftir sjálfri höfuðborginni, Reykjavík. Af þessu vona ég, að hv. þm. geti dregið þá ályktun, að því fer víðs fjarri, að af hálfu hv. fjvn. eða fræðslumálastjórnarinnar hafi verið ríkjandi eða sé ríkjandi vanræksla eða skilningsleysi á málefnum Kópavogskaupstaðar. Það, sem hér er um að ræða, er sú einfalda staðreynd, sem oft og einatt reynist sár, að ekki er hægt að verða við óskum allra.

Ég get að lokum ekki stillt mig um að láta þess getið, að ef ástand í skólamálum Kópavogskaupstaðar er sérstaklega slæmt, á það ekki rót sína að rekja til þess, að ekki hafi verið vel séð fyrir fjárveitingu til skólabygginga í Kópavogi á næsta ári og ekki heldur á því ári, sem nú er að liða, heldur er þá skýringin sú, að of lítið fé hefur verið veitt til skólabygginga í Kópavogskaupstað á undanförnum árum. í þessu sambandi hef ég litið á fjárveitingar til skólabygginga í Kópavogskaupstað undanfarin ár eða frá árinu 1956. Ég held, að fróðlegt væri fyrir hv. þm. að kynna sér þær. Af því að þetta mál hefur verið gert að alveg sérstöku umræðuefni hér í sérstakri ræðu, og ég fann, að hv. ræðumanni var það mál, sem hann flutti, mikið hjartans mál, þá er mér það líka áhugamál að sýna honum og hv. þm. fram á, að sú tillögugerð, sem nú er uppi höfð um skólabyggingu í Kópavogi, byggist ekki á skilningsleysi á þörfum þessa skólahéraðs. Fjárveitingar til skólabygginga í Kópavogi hafa síðan 1956 verið svo sem hér segir, með leyfi hæstv. forseta: 1956 235 þús., 1957 400 þús., 1958 723 þús., 1959 1116 þús., 1960 1147216, 1961 952810, 1962 1109485, og á árinu 1963 er gert ráð fyrir, að fjárveitingin verði hærri en nokkru sinni áður, 1464393 kr.

Það er sérstaklega athyglisvert í þessu sambandi, að ef um vandræðaástand er að ræða, er það ekki vegna þess, að á þessu ári né á næsta ári hafi verið of lítið fé veitt, heldur of lítið fé veitt á undanförnum árum. Í þessu sambandi get ég ekki stillt mig um að benda á, að fjárveitingar á þeim þremur árum, sem við hv. síðasti ræðumaður vorum sameiginlegir stuðningsmenn ríkisstj., þ.e. á árunum 1956, 1957 og 1958, voru veittar samtals til skólabygginga í Kópavogi 1 millj. 358 þús. kr. A þessum þremur árum, stjórnarárum vinstri stjórnarinnar svokölluðu, var veitt til (Gripið fram í: Á að taka 1956 með?) Það var hálft árið þá. Þess vegna tel ég það. Það verður enn minna, ef ég sleppi 1956. (Gripið fram í: Það voru aðrir búnir að samþykkja.) Það er alveg rétt, en vinstri stjórnin sat að völdum í 21/2 ár, og ekki ætti það að spilla að reikna henni þrjú ár, þriggja ára fjárveitingu, en þriggja ára fjárveiting 1956, 1957 og 1958 er samtals 1 millj. 358 þús., en fjárveiting á næsta ári, 1963, samkv. okkar till. verður 1464 393 kr. Á einu ári, þ.e. á næsta ári, er gert ráð fyrir, að fjárveitingin verði 100 þús. kr. hærri en hún var á þremur árum, þegar við hv. síðasti ræðumaður hefðum þó sameiginlega átt að geta haft talsverð áhrif til að auka fjárveitingar til skólabygginga í Kópavogi. En árangurinn var því miður ekki meira en þetta, og enginn skal játa fúslegar en ég, að þessar fjárveitingar voru allt, allt of litlar, því miður. Þær voru svo litlar, að fyrir því erum við að finna nú. En ég hef haft og við fleiri mikinn áhuga á því að bæta úr því, sem vangert var á árunum 1956, 1957 og 1958. Það var gert í ár með fjárveitingu, sem var á aðra milljón, og það verður enn gert á næsta ári með fjárveitingu, sem nemur 11/2 milljón.