27.02.1963
Sameinað þing: 33. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í D-deild Alþingistíðinda. (3330)

148. mál, launakjör alþingismanna

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég skal nú ekki blanda mér í þessar almennu umr. um málið, en tilefnið til þess, að ég vildi segja hér nokkur orð, voru ummæli hæstv. forsrh. í fyrri ræðu hans, þar sem hann orðaði það svo, að þm. hefðu fengið nokkra launauppbót á s.l. ári. Það a.m.k. getur orkað tvímælis, hvort á að nefna það því nafni. Ég vil telja það frekar leiðréttingu á kostnaði, sem þm. þurfa að standa straum af. Annara vegar voru hækkaðir nokkuð svokallaðir uppihaldspeningar þeirra þm., sem búsettir eru utan Reykjavíkur, og hækkunin var miðuð við það, sem hæstv. ríkisstj. hafði þá samið um fyrir nokkru um dagpeninga til nokkurra vinnuflokka, bæði við síma og vegagerð. Það munaði nokkru á þeim samningum, og var ekki farið lengra fyrir þm. en í lægri taxtann. Þetta katta ég í raun og veru ekki launabót, heldur leiðréttingu.

Önnur leiðrétting var það, að þm. var ákveðin viss upphæð vegna ferðakostnaðar um kjördæmin. Það hefði mátt segja, að slíkur ferðakostnaður hafi verið réttmætur fyrr en hann var ákveðinn, en það skar náttúrlega úr, eftir að kjördæmin voru gerð svo stór sem nú er. Það var því ákveðið, að þm. skyldu fá vissa upphæð til þess að standa straum af þeim kostnaði, sem þeir þurfa árlega að hafa af að ferðast um sín kjördæmi. Ég hygg, að það hafi verið gengið svo frá þeim málum, að það ha.fi verið heimilt að greiða hverjum þm. slíka fjárhæð án tillits til búsetu. En ég vil fullyrða, að þeir þm., sem eru búsettir utan Reykjavíkur, geti ekki talið þetta launabót, heldur náttúrlega leiðréttingu, eins og ég sagði, á nauðsynlegum, útlögðum kostnaði. Ef nokkrum væri slíkt launabót, þá væru það eðlilega helzt þeir þm., sem hér eru búsettir og eru þm. Reykjavíkur og þurfa þess vegna ekki um eins stór svæði að fara á milli sinna kjósenda. Ég nefni þetta án þess að telja það eftir. En ég sem sagt tel, að þetta sé ofmælt hjá hæstv. forsrh., að það hafi verið um launabót að ræða í fyrra, þegar þessar greiðslur voru auknar að nokkru.