27.02.1963
Sameinað þing: 33. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í D-deild Alþingistíðinda. (3341)
160. mál, bygging þverárbrautar á Vestmannaeyjaflugvöll
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Ég skal ekki blanda mér mikið inn í mál Vestmanneyinga ag flugsamgöngur milli Reykjavíkur og þeirra Vestmanneyinga. En ég veitti því athygli, að hæstv. flugmrh. nefndi í ræðu sinni hér áðan væntanlegt flug Björns Pálssonar og þá staði, sem hugsað er, að hann fljúgi til. Hann nefndi þ. á m. allmarga flugvelli á Vestfjörðum, sem þyrfti að lagfæra, til þess að Björn Pálsson gæti hagnýtt sér hina nýju flugvél. Ég skildi hæstv, ráðh. svo og trúi því, að ég hafi ekki misskilið hann, að hann telji þetta rétta stefnu, að hagnýta sér þá tækni, sem þarna kemur fram, og undirbúa flugvellina undir þetta væntanlega flug. Ég tel, að hæstv. ráðh. hafi hér alveg rétta stefnu og hér sé um mikilsverða nýjung að ræða, sem sé skylt að viðurkenna, og hæstv. ríkisstj. hefur tekið vel undir.
Ég flutti á undanförnum þremur þingum í röð þáltill. þess efnis, að rannsakaðir væru möguleikar á því að fá til landsins vél, sem hefur hæfileika til að lenda á stuttum flugvöllum. Þessum till. mínum var alltaf vel tekið, og allar voru þær samþ. Alþingi hefur því alltaf sýnt skilning á því, að það ætti að notfæra sér þessa tækni, þ.e. að taka í þjónustu flugsins flugvélar, sem þyrftu stutta flugvelli. Þetta er ekkert hégómamál fyrir þjóðina í heild. Það sparar ekki millj., það sparar tugi millj., ef vel tekst til um þessar tilraunir. Ég benti á ákveðna flugvél, sem hefur verið framleidd í Bandaríkjunum. Nú hefur Björn Pálsson kamið auga á nýja tegund flugvéla, sem hefur flesta kosti þeirrar amerísku, og hann hefur ákveðið að hefja áætlunarflug, a.m.k. til Vestfjarða, jafnvel til fleiri staða í þessari væntanlegu flugvél, sem kemur eftir örstuttan tíma, og ég skil hæstv. ráðh. svo og bið hann að leiðrétta það, ef það er ekki rétt hjá mér, að hæstv, ríkisstj. muni styðja að því, að þessi tækni verði hagnýtt, og ég kann hæstv. ríkisstj. þakkir fyrir það.
Það er kvartað undan því, að Vestmanneyingar hafi ófullnægjandi ítugsamgöngur, og ég skal ekkert rengja það. En hvað mega þá Vestfirðingar segja? Þar er heill landshluti,sem missti allar sínar flugsamgöngur í einu, þegar sjóflugvélarnar lögðust niður, og hefur nú loksins aðeins einn flugvöll og hann með einni braut fyrir sínar flugsamgöngur. Ég vona því, að hæstv. ríkisstj. eða hæstv. flugmrh. haldi áfram í þessa stefnu, sem hann hefur nú lýst, að styðja að því, að þessar nýju tilraunir Björns Pálssonar komi að sem mestum notum og að hinir litlu flugvellir víða á Vestfjörðum og víða annars staðar verði lagfærðir í þessu skyni, því að af því leiðir ekki aðeins þann sparnað, sem er á því að losna við að byggja hina geysistóru og dýru flugvelli, heldur færist flugið út og kemur miklu fleiri héruðum og fleira fólki að gagni, ef þessi tilraun tekst. Þegar það er staðreynd, að aðeins 500–600 m flugbrautir geta fultnægt vél, sem getur flutt 16 manns, þá er þetta ekkert hégómamál fyrir flugsamgöngur íslendinga.
Ég vil því fagna því og þakka hæstv. flugmrh. fyrir það, hversu vel hann hefur tekið undir þessa nýju tilraun, og treysti því, að hann hviki ekki frá því að láta hana heppnast að því leyti, sem hann getur við það ráðið, og stuðli þar með að sparnaði í flugvallagerð og aukningu flugsamgangna í landinu.