13.03.1963
Sameinað þing: 38. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í D-deild Alþingistíðinda. (3355)
184. mál, endurskoðun laga um byggingarsamvinnufélög
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Eins og hv. fyrirspyrjandi tók fram, var þessi þál. um endurskoðun lagaákvæða um byggingarsamvinnufélög samþ. á Alþingi 18. jan. 1961 og send félmrn. nokkru síðar. Þar sem þá var starfandi nefnd við endurskoðun húsnæðismálastjórnarlaganna og laganna um verkamannabústaði, þótti eðlilegt, að þessari nefnd væri falið að athuga um þessa endurskoðun ag framkvæma hana, og 1. febr. 1981 var formanni þeirrar n. sent svo hljóðandi bréf:
„Hér með sendist yður, herra alþingismaður,“ — þ.e. alþm. Eggert G. Þorsteinsson, sem er formaður n., — „ályktun Alþingis 16. jan. um endurskoðun lagaákvæða um byggingar samvinnufélög. Með bréfum 9. og 20. sept. s.l. skipaði rn. nefnd, sem þér eruð formaður í, til þess að endurskoða gildandi lög um húsnæðismálastofnun ríkisins, byggingarsjóð ríkisins, sparnað til íbúðabygginga og opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum. Það er því í verkahring þessarar n. að framkvæma endurskoðun þá, sem um ræðir í meðfylgjandi ályktun Alþingis, og samkv. ályktuninni ber n. að hafa samráð við stærstu byggingarsamvinnufélögin um endurskoðun gildandi ákvæða um byggingarsamvinnufélög.“
Frá formanni n. hef ég nú fengið grg. um málið, sem ég — með leyfi forseta — vildi lesa upp. Hún er svo hljóðandi:
„Með bréfi, dags. 9. sept. 1960, skipuðuð þér, herra félmrh., fimm menn í nefnd til að endurskoða þágildandi lög um húsnæðismálastofnunina o.fl. og opinbera aðstoð við byggingu íbúðarhúsa í kauptúnum, þ.e. verkamannabústaði, og skömmu eftir næstu áramót á eftir, eða 16. jan. 1961, var samþ. á Alþingi till. til þál., þar sem segir m.a.: „Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta í samráði við stærstu byggingarsamvinnufélögin í landinu endurskoða gildandi lagaákvæði um byggingarsamvinnufélög.“ Með bréfi, dags. 1. febr. 1961, fóluð þér n. að taka einnig til endurskoðunar lög um byggingarsamvinnufélög, sbr. fyrrgreinda ályktun Alþingis. Þegar bréf yðar varðandi endurskoðun byggingarsamvinnufélagalaganna barst n., hafði hún hafið allumfangsmikla gagnasöfnun um hið upphaflega verkefni sitt varðandi húsnæðismálastofnunina og verkamannabústaði. Þar sem áherzla var á það lögð af hálfu rn., að n. hraðaði störfum, svo sem kostur væri á, var ákveðið að láta hin upphaflegu störf sitja í fyrirrúmi, til þess að tími ynnist a.m.k. til að skila bráðabirgðayfirliti um þau. Þegar því verkefni var lokið, þ.e. skilað hafði verið bráðabirgðayfirliti um húsnæðismálastofnunina og vei á veg komið frv. um verkamannabústaði, þá samþykkti n. að senda stærstu byggingarsamvinnufélögunum bréf, sem dags. var 25. maí 1961 og hér með fylgir afrit af.“
Ég held, að það sé rétt, að ég lesi upp þetta bréf til byggingarsamvinnufélaganna, sem n. sendi út. Það er örstutt og hljóðar þannig:
„Á s.l. vetri fól félmrn. n. þeirri, er nú vinnur að endurskoðun l. um húsnæðismál, að vinna einnig að framkvæmd ályktunar Alþingis frá 16. jan. 1961, en þar segir svo“ — og síðan kemur ályktunin. „Með hliðsjón af framansögðu er þess hér með óskað, að þér látið álit yðar í ljós á því, hvað helzt sé ábótavant í núgildandi lögum um byggingarsamvinnufélög. Aths. yðar eruð þér beðnir að senda nefndinni“ o.s.frv. „N. væntir þess, að þér takið mál þetta til athugunar og sendið álit yðar á öllu því, er þér teljið, að til úrbóta megi verða í þessum málum.“
Þetta bréf var sent öllum stærstu byggingarsamvinnufélögunum, sem samkv. bréfi Sambands ísl. byggingarfélaga, dags. 19. maí 1961, voru innan vébanda. þess. En svör við þessari málaleitun bárust aðeins frá 2 félögum. Eitt félag bað um frest til að svara fyrrgreindum bréfum n., og var sá frestur fúslega veittur, en frekari svör bárust n. ekki.
Eins og fyrr er frá greint, hefur n. þegar skilað fullnaðarafgreiðslu á l. um verkamannabústaði og bráðabirgðabreytingum á l. um húsnæðismálastofnunina o.fl., en hvort tveggja er nú að meginefni orðið að lögum. N. mun halda áfram endurskoðun sinni og mun þá að sjálfsögðu einnig m.a. vinna áfram að endurskoðun l. um byggingarsamvinnufélög, þrátt fyrir framangreinda, erfiðleika um það að vita almennan vilja viðkomandi byggingarsamvinnufélaga til breyt. á hinum gildandi lögum.“
Ég hef raunverulega mjög litlu við þetta að bæta. Það er rétt, að það hefur orðið nokkur dráttur á, að þessi endurskoðun færi fram, en þar er tvennu um að kenna að mínu áliti. Annað, að n. hafði til að byrja með ærið verkefni í endurskoðun verkamannabústaðalaganna og húsnæðismálastjórnarlaganna, sem nú er að verulegu leyti lokið, og dróst þess vegna nokkuð, að hún hæfi störf sín um það mál, sem þál. fjallar um, en þó voru það ekki meir en 2–3 mánuðir röskir, frá febrúar til maí 1961, og þá sendi hún út sitt bréf til byggingarsamvinnufélaganna allra, en fær ekki líflegri undirtektir en í bréfi formannsins kemur fram, og hefur það að sjálfsögðu valdið nokkru um þann drátt, bæði seinkað störfum n. og tafið þau að öðru leyti. — ég vænti, að hv. fyrirspyrjandi telji þetta svar fullnægjandi.