13.03.1963
Sameinað þing: 38. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í D-deild Alþingistíðinda. (3357)

184. mál, endurskoðun laga um byggingarsamvinnufélög

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Af því að svo vildi til, að ég var fyrri flm. þeirrar þáltill., sem á sínum tíma var samþ. hér í Alþingi um endurskoðun 1. um byggingarsamvinnufélög, vildi ég aðeins leggja örfá orð í belg í sambandi við umr. þessar.

Ég vil taka alveg efnislega undir rök hv. fyrirspyrjanda um nauðsyn þess að endurskoða þessi lög og þær breyttu aðstæður, sem eru orðnar, frá því að lögin upphaflega voru sett, sem valda því, að aðilar að byggingarsamvinnufélögum bera í rauninni í dag óeðlilegar skyldur og á þeim hvíla óeðlilegar kvaðir, miðað við þau hlunnindi, sem þeim eru veitt með þæsum lögum. Ég þarf því ekki að endurtaka þau rök.

Það er hins vegar rétt, að það var gert ráð fyrir því í þál. á sínum tíma, að lögin væru endurskoðuð í samráði við stærstu byggingarsamvinnufélögin, og það er því ekkert óeðlilegt, þó að n., sem fékk málið til meðferðar, kynnti sér skoðanir samvinnufélaganna, því að vitanlega, var hugsunin með þessu sú, að þessi samvinnufélög, sem mörg hafa orðið langa reynslu í þessum efnum og einmitt hafa rekið sig á ýmsa annmarka í sambandi við löggjöfina, gætu komið að sínum sjónarmiðum. Og ég verð sannast sagna að láta í ljós undrun yfir því, að byggingarsamvinnufélögin skuli ekki hafa brugðizt betur við þessari endurskoðun og í rauninni tekið því fegins hendi, að þeim væri gefinn kostur á því, að lögin væru endurskoðuð og fá að koma sjónarmiðum sínum fram í sambandi við þessa endurskoðun. En það virðist vera staðreynd málsins, að áhugi þeirra í þessu efni sé ekki mikill. Ég tel eins og hv. fyrirspyrjandi, að það megi ekki verða þess valdandi, að lögin séu ekki endurskoðuð og reynt að lagfæra þá annmarka, sem tvímælalaust eru á þeim orðnir nú, þótt ég verði að afsaka þá, n., sem að þessu hefur unnið, að þetta hafi dregizt nokkuð, einmitt með hliðsjón af því, að hún hefur ekki fengið þessa aðstoð, sem vænta mátti að hún fengi.

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta. Ég vil aðeins taka undir það með hv. fyrispyrjanda. að bera fram þá, ósk, að hvað sem líður því, hvort samvinnufélögin eru fús til samvinnu um þetta eða ekki, þá verði málinu efnislega haldið áfram ag endurskoðun framkvæmd á grundvelli þeirra atriða, sem sérstaklega hefur verið bent á að séu gölluð í þessum lögum.