13.03.1963
Sameinað þing: 38. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í D-deild Alþingistíðinda. (3366)
251. mál, dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Hv. 1. þm. Austf., sem talaði hér síðast, taldi sjálfsagt að athuga, hvort ekki væri hægt að fjölga þessum rannsóknarferðum, ef þær að dómi fiskifræðinganna væru of fáar. Þetta er mjög eðlileg ályktun. En eins og kom fram í mínu fyrsta svari við fsp., þá var upplýst í bréfi atvinnudeildarinnar, að á árunum 1924 –1939 var farin ein rannsóknarferð á ári, en á s.l. 10 árum, frá árinu 1953 og til dagsins í dag, hafa verið farnar 4 rannsóknarferðir á hverju ári. Kannske eru þær of fáar, ég skal ekki dæma um það, en ég vil aðeins taka fram, að það hefur ekkert komið fram hjá fiskifræðingunum um það að fá þeim fjölgað. (EystJ: Mér fannst einkum það koma fram í bréfinu, að þeim fyndist þær of fáar.) Það held ég ekki. En ég vildi aðeins bæta því við, að ef það kæmi fram hjá fiskifræðingunum, að þeir teldu, að með fleiri ferðum á ári mætti komast nær því að fá árangur, þá mun áreiðanlega ekki standa á því, að þeir fengju leyfi til þess. En ,ég minnist þess ekki, að það hafi komið fram í þeirra orðræðum, a.m.k. ekki við mig, að ferðirnar væru of fáar, en það, sem mér skilst að velti á, sé að gera upp, hve mikið af þessum sveiflum í aflamagninu stafi af breyttum fiskigöngum og hve mikið stafi sérstaklega af þessari veiðiaðferð, sem hér er um að ræða. Og áður en málið er gert upp og áður en teknar eru ákvarðanir eða dregnar ályktanir, eins og mér virðist, að hv. 4. þm. Vesturl. sé búinn að gera á undan fiskifræðingunum og þurfi hreint ekkert á þeim að halda, þá held ég nú fyrir mitt leyti, að það væri réttara að hinkra svolítið við, áður en maður dregur of fljótfærnislegar ályktanir á þessu sviði.
Hv. fyrirspyrjandi undirstrikaði það mjög greinilega í sinni fsp., að hann væri ekki að hefja neinar málefnalegar umr. um dragnót eða ekki dragnót, heldur aðeins að hann vildi fá dregnar fram upplýsingar um það, hver hefði orðið árangurinn af hinum vísindalegu athugunum, og það finnst mér á þessu stigi vera rétt, að einskorða sig við það. Hins vegar tók hv. 4. þm. Vesturl. hér upp málefnalegar umr. um dragnótaveiðar eða ekki dragnótaveiðar. Það skal ég 1 láta bíða, þangað til hans frv. kemur til umr. í d., en á þessu stigi sé ég ekki ástæðu til að fara lengra út í það. Ég vil aðeins vara við því, eins og fiskifræðingarnir gera, að draga of fljótfærnislegar ályktanir, áður en maður veit meira.