20.03.1963
Sameinað þing: 41. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í D-deild Alþingistíðinda. (3375)

195. mál, hafnargerðir við Dyrhólaey og í Þykkvabæ

Óskar Jónsson:

Herra forseti. Ég má til að koma hér aðeins til þess að leiðrétta þann leiða misskilning, sem hæstv. sjútvmrh. viðhafði um það, að ég hefði sagt, að það væri hvergi hægara á Íslandi að byggja höfn en við Dyrhólaey, — ég sagði: frá hagrænu sjónarmiði. Mér er ljóst, að tæknilegu erfiðleikarnir eru miklir, en ég veit, að það hefði meiri þjóðhagslega þýðingu en nokkurn mann gæti grunað, ef höfn væri komin við Dyrhólaey. Það var þetta, sem ég hélt fram. En tæknilegu hliðina á málinu minntist ég ekki á í því sambandi. Mér er ljóst, að þar er mikill vandi á ferðum, en mér er líka ljóst, að hér er ekki um áróðursmál að ræða í sambandi við höfn í Dyrhólaey. Þetta er fullkomið alvörumál, lífsspursmál fyrir fjölda fólks á Suðurlandi, í Vestmannaeyjum og á Austfjörðum. Því er það skylda fulltrúa þessa fólks að bera fram einmitt svona mál, til þess að reyna að ýta þeim áleiðis. Þetta mál hefur verið alvörumál fyrr. Vil ég benda á í því sambandi, að á tímum nýsköpunarstjórnarinnar var mjög að því hugað af nýbyggingarráði að koma upp landshöfn við Dyrhólaey, og það voru a.m.k. sumir menn í nýbyggingarráði, sem lögðu það til, en aðrir vildu það ekki, svo að úr þeim hugleiðingum varð ekkert. Ég er sannfærður um, það væri óvíða. sem það hefði meiri þýðingu að koma upp hafnaraðstöðu en einmitt við Dyrhólaey. Ég er ekki að vanþakka það, sem miðar í áttina með Þorlákshöfn. Það er vissulega ánægjulegt, að þar miðar í áttina, og ber vissulega að þakka það. En vegna þess, hve hér er um stórt og mikið mál að ræða og þarf nákvæmrar og mikillar rannsóknar við, þá er fullkomlega tímabært að halda uppi öflugum rannsóknum á því, hvort ekki sé unnt og með hvaða hætti sé hægt að byggja höfn við Dyrhólaós, og ég vildi mega vona það, að hv. Alþingi styddi að því með ráðum og dáð, að svo mætti verða sem allra fyrst. Ég benti einmitt á það í fyrri ræðu, að með hinni nýju tækni, sem nú er komin upp í sambandi við sandinn, einmitt í sambandi við sandinn, þá er vandamálið um sandinn að minnka og verða mjög lítið, sbr. það, að fyrir u.þ.b. einum tug ára var talið óhugsandi að ráða við sandinn í Vestmannaeyjahöfn. Hvað kom á daginn? Þetta er bara svo auðveit, að það er ekki nema leikur einn að ráða við hann. Og svona gæti ég trúað að færi einnig við Dyrhólaey.

Ég læt svo máli mínu lokið.