20.03.1963
Sameinað þing: 41. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í D-deild Alþingistíðinda. (3377)

195. mál, hafnargerðir við Dyrhólaey og í Þykkvabæ

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Fsp. sú, sem hér er til umr., er um framkvæmd á till., sem ég ásamt hv. 5. þm. Sunnl. flutti á árinu 1961 um rannsókn á möguleika fyrir byggingu hafna við Dyrhólaey og í Þykkvabæ. Þær umr., sem hér hafa farið fram, hafa mjög beinzt að hagsmunum þess fólks, sem á þessu svæði býr, og einskorðazt nokkuð við það. Ég þakka hæstv. sjútvmrh. fyrir hans skýrslu um málið, og sérstaklega vil ég þakka hans umsögn um það, að hingað til lands yrði fenginn sérfræðingur til frekari athugunar á. möguleikum um hafnarbyggingu á þessu svari, sem þar um ræðir. En það er eitt atriði í sambandi við þetta, sem ekki hefur komið fram í þessum umr., sem ég tel mjög mikilsvert, en það er, að höfn við Dyrhólaey mundi verða lífhöfn fyrir alla strandlengjuna frá Hornafirði að Þorlákshöfn eða hafnar innan við Reykjanes. Þetta er einhver erfiðasta siglingarleið hér við land, og það hefur oft borið þannig að, að það hefur augljóslega komið í ljós, að brýna nauðsyn ber til þess að vinna að hafnarbyggingu á þessu svæði til þess að skapa öryggi fyrir þann mikla skipafjölda, sem á þessu svæði siglir. Ég benti á þetta í minni framsöguræðu um málið, þegar það var hér til umr. 1961, að önnur meginástæðan fyrir því, að þarna væri nauðsynlegt að byggja höfn, er, að það vantar lífhöfn fyrir þann skipafjölda, sem á þessu svæði siglir. Ég vildi láta þetta koma fram hér við þetta tækifæri, þar sem það hafði ekki komið fram hjá þeim hv. þm., sem um þetta hafa rætt nú. En þetta er önnur meginástæðan fyrir því að mínu áliti, að nauðsynlegt er að hraða því eins og unnt er, að þarna komi upp höfn.