03.04.1963
Sameinað þing: 44. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í D-deild Alþingistíðinda. (3392)
224. mál, útgáfa lagasafnsins
Fyrirspyrjandi (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Það þykir nú kannske skrýtið svona rétt fyrir kosningar, að þm. séu að bera fram fsp. um alópólitísk efni, en ég hef nú samt leyft mér að gera það og tel, að málið, sem um er spurt, snerti það marga í þjóðfélaginu, að ástæða sé til að fá upplýsingar frá réttum aðilum um, hvað því málefni liði.
Fsp. á þskj. 468 er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
1) „Hvað veldur sífelldum drætti á nýrri útgáfu lagasafnsins?
2) Er ný útgáfa lagasafnsins væntanleg innan langs tíma?
3) Hefur nokkuð verið athugað um útgáfu reglugerðasafns jafnframt útgáfu lagasafnsins eða sérstaklega, og ef svo er, hvað líður þá undirbúningi þess máls?“
Fyrir löngu var gefið út í nokkrum bindum Lagasafn alþýðu, og naut það ritsafn mikilla vinsælda. Þá var gefin út útgáfa af lagasafni 1932, ný útgáfa kom 1947, og seinasta útgáfa af lagasafninu kom út 1955.
Það gerast miklar breytingar í lagasetningu á hverju tíu ára tímabili, og mikil og margvísleg ný lagasetning kemur til, mörg eldri lög eru úr gildi felld eða þeim breytt, en Stjórnartíðindi hins vegar fremur óhandhæg heimild, a.m.k. í höndum alþýðu manna. Lagasafnið er því bók, sem er í höndum margra, einstaklinga, fyrirtækja og stofnana, og til þess leitað daglega.
Þegar 2. útgáfa af lagasafninu, þessi útgáfa, sem kom út 1947, var undirbúin, munu hafa liðið a.m.k. fimm ár, frá því að ráðh. fól sérfræðingum að hefja verkið, þangað til því var lokið. Mér er það fyllilega ljóst, að hér er um mikið verk að ræða, vandasamt nákvæmnisverk, og þetta verk fer vaxandi, og má því búast við, að það taki lengri tíma og þurfi að fá fleiri hæfa sérfræðinga til að vinna að undirbúningi nýrrar útgáfu lagasafns, þó að nokkuð sé auðvitað unnið með fyrri útgáfum.
Ég þykist raunar vita, að ráðstafanir hljóti að hafa nú þegar verið gerðar til þess að undirbúa nýja útgáfu af lagasafninu, en fsp. mín er einkum íram borin til þess að fá vitneskju um, hvað verkinu sé langt komið, hvað því líði og hvenær megi vænta nýrrar útgáfu af þessari mjög svo nauðsynlegu almenningshandbók. Með fsp. mundi ég þá líka vilja stuðla að því, að hert verði á framkvæmd verksins og því hraðað, ef það skyldi eiga alllangt í land enn.
Ég skal ekki fara fleiri orðum um nauðsyn þess, að nýtt lagasafn komi. Ég held, að það liggi í augum uppi og allir séu um það sammála.
Síðasti liður fsp. minnar er svo um það. eins og ég áðan las upp, hvort unnið hefði verið að undirbúningi að útgáfu reglugerðasafns, jafnframt útgáfu lagasafnsins eða sérstaklega. Svo sem kunnugt er, hefur reglugerðasafn ekki, svo að ég viti, verið gefið út fyrr, en ég tel, að það mundi verða enn meira hagræði og almennari fyrirgreiðsla að því, að allar gildandi reglugerðir væru til í einu ritsafni, því að ég hygg, að þeir séu fáir, sem hafa yfirsýn yfir það, hvaða reglugerðir séu í gildi, en þær segja, eins og kunnugt er, nákvæmar fyrir um það í einstökum atriðum, hver sé og hafi orðið framkvæmd laga. En oft og tíðum skiptir ekkert minna máli að vita góð skil á því, hvaða reglugerðir séu í gildi á grundvelli settra laga, heldur en að vita um löggjöfina sjálfa.
Ég játa, að reglugerðir eru jafnvel enn þá meira á hverfanda hveli, verða fyrir enn þá tíðari breytingum en lög, og það kann því að skapa erfiðleika við það að búa út ritsafn með gildandi reglugerðum. Það mundi kalla á tíðari útgáfur af því ritverki heldur en af lagasafni, ef það ætti að mega treysta slíku safni í aðalatriðum. En mikið er þó af reglugerðum, sem hafa verið í gildi um áratugi og kannske aldir, og tilskipanir, sem hafa lagagildi, sem erfitt er þó fyrir fólk að henda reiður á, nema menn séu þá lögfróðir í betra tagi og fylgist vel með.
En hins vegar er það, þó að þetta sé erfiðleikum bundið og ég telji, að það muni kannske orka tvímælis, hvort það þætti tiltækilegt að ráðast í útgáfu reglugerðasafns, sem sjálfsagt yrði mikið verk og vandasamt að undirbúa, þá, tel ég líka, að það yrði enn þá meira notað og þætti enn þá þýðingarmeiri handbók fyrir almenning og fyrir stofnanir og fyrirtæki heldur en jafnvel lagasafnið sjálft, og væri því kannske enn þá meiri þjónusta gerð við mikinn fjölda þjóðfélagsþegna, ef fært þætti að gefa út auk lagasafns einnig reglugerðasafn.
Ég vil svo vænta, að hæstv. dómsmrh. vilji svo vel gera að gefa upplýsingar um, hvað framkvæmdum þessa máls líði.