03.04.1963
Sameinað þing: 44. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 519 í D-deild Alþingistíðinda. (3393)

224. mál, útgáfa lagasafnsins

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Skv. l. nr. 48 frá 1929 er gert ráð fyrir, að lagasafn skuti gefið út að nýju a.m.k. á tíu ára fresti. Hið fyrsta lagasafn eftir setningu laganna kom út snemma árs 1933 með lagaefni til ársloka 1931. Störf að næstu útgáfu lagasafns voru hafin í árslok 1942, og var handritið tilbúið vorið 1943, en vegna ýmissa orsaka, aðallega erfiðleika á prentun, dróst það mjög og varð ekki lokið fyrr en síðla árs 1947 með lagaefni til vors 1945. útgáfa sú, sem nú er í notkun, inniheldur lagaefni til vorsins 1954 og kom út snemma árs 1956.

Snemma á s.l. ári var hafinn undirbúningur að nýrri útgáfu lagasafnsins, og er nú handrit tilbúið til prentunar, og byrjunarfjárveiting til að standa straum af kostnaði við útgáfuna er á fjárl. 1963. Ef nægilegt fé verður lagt til útgáfunnar, er ekkert því til fyrirstöðu, að lagasafnið komi út á þessu ári eða í byrjun næsta árs með lagaefni til loka yfirstandandi Alþingis.

Ekki er í undirbúningi að gefa út reglugerðasafn jafnhliða lagasafninu. Það er ekki ljóst, hvort hagnýtur grundvöllur sé fyrir útgáfu og notkun reglugerðasafns. Slíkt heildarsafn reglugerða mun ekki þekkjast hjá nágrannalöndum okkar, sem við sníðum okkar lagasöfn eftir, og það þó að þeir aðilar hafi af augljósum ástæðum tök á að leggja miklu meira fé í slík verk og gefa þau út örar en hér er talið fært.

Tilvitnanaskrár lagasafnsins hafa orðið fullkomnari með hverri útgáfu lagasafnsins og eru handhægar til hagnýtingar á reglugerðasafni Stjórnartíðinda. Efnisyfirlit Stjórnartíðinda eru einnig hentug sem leiðarvísir um þetta efni, ekki sízt eftir að sérútgáfa efnisyfirlits Stjórnartíðinda er ýtarlegri en áður. Svo sem gert var í síðasta efnisyfirliti fyrir árabilið 1936–1950. Nýtt einisyfirlit yfir Stjórnartíðindi fyrir árabilið 1951–1961 mun koma út síðar á þessu ári.

Þetta er skýrsla dómsmrn. um málið. Ég vil einungis bæta því við, að ég hygg mig muna það rétt, að Ólafur Lárusson hafði á sínum tíma nokkuð undirbúið og safnað efni í útgáfu reglugerðasafns, hann hafi skýrt mér eitt sinn frá því, en hann treysti sér ekki til að ljúka verkinu. Á því eru mjög margir annmarkar, m.a. þessir, sem hv. fyrirspyrjandi gat um, að reglugerðum er svo oft breytt, að mjög lítil stoð er í slíku safni varðandi ákaflega mörg þýðingarmikil efni. Hitt er rétt, að aðrar reglugerðir standa lengi. En það getur verið mjög villandi fyrir allan almenning að fá slíkt safn í hendur, ef mikill hluti þess, sem þar er prentaður, er þegar fallinn úr gildi eða fellur úr gildi, jafnskjótt og bókin kemur í hendur þeirra manna, sem hana eiga að nota.

Ég játa, að það væri æskilegt, ef hægt væri að gefa út reglugerðasafn. En ég hygg þó, að það sé misskilningur, að það mundi koma að nándar nærri sömu notum og lagasafnið. Að hinu bæri miklu frekar að keppa, að reyna að gefa lagasafn út oftar. Í öðrum löndum eru slík söfn gefin út hvert einasta ár, og vel er þessu ekki fyrir komið, fyrr en við gætum haft þann sama hátt á, því að það er ákaflega erfitt að eiga að nota lagasafn og þurfa að hafa heilan bunka af Stjórnartíðindum við hliðina til þess að fylgjast með því, hvaða breytingar hafa átt sér stað. Við höfum hins vegar ekki treyst okkur til þess af fjárhagsástæðum, líka af mannaskorti, eins og oft vill verða, en það hlýtur að sækja í það horf, að reynt verði að koma út lagasafni oftar en á tíu ára fresti, og mér er ljóst, að það er of langt bil.