03.04.1963
Sameinað þing: 44. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í D-deild Alþingistíðinda. (3394)

224. mál, útgáfa lagasafnsins

Fyrirspyrjandi (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans. Ég hélt nú jafnvel, að útgáfa laga: safnsins væri lengra undan en hann upplýsti, og er það vel, að það getur svo farið, að ný útgáfa komi á þessu eða næsta ári, ég fagna því.

Ég gerði mér ljóst, að það væru vafalaust

mikil vandkvæði á því að gefa út reglugerðasafn, og heyrði ég, að það er einnig skoðun hæstv. ráðh. Ég tel, að það væri áreiðanlega mjög mikið notað ritsafn, ef hægt væri að gefa það út, en vafalaust þyrfti að gefa það út ekki sjaldnar en á þriggja, fjögurra ára fresti.

Ég er líka sammála hæstv. ráðh. um það, að ef fjárhagsástæður leyfðu, þá væri mjög æskilegt, að lagasafn væri gefið út með ekki lengra millibili en t.d. á fimm ára fresti. Nú höfum við ekki lagasafn, sem gildir lengra en til 1954, og er þá komið þarna 9 ára löggjafartímabil, sem menn verða að leita til Stjórnartíðinda um, og það er, eins og hæstv. ráðh. sagði, mjög áhandhægt, jafnvel í leit að einstökum smáatriðum.