19.04.1963
Sameinað þing: 51. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í D-deild Alþingistíðinda. (3402)
254. mál, Siglufjarðarvegur
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð, því að ræða hv. fyrirspyrjanda gefur ekki tilefni til mikilla ræðuhalda. Ég skil hann vel. Hann er búinn að vera mörg ár hér í þinginu. Hann hefur haft áhuga á því að koma þessu máli fram. Það er langt síðan hann heyrði talað um það hér í hv. Alþingi, að það þyrfti að hrinda þessu máli fram, og þetta hefur verið draumur hjá honum, fjarlægur draumur, sem hann hefur tæplega búizt við að gæti rætzt. Og þess vegna er eðlilegt, að hann eigi erfitt með að átta sig á því, að þetta mikla hagsmunamál Siglfirðinga er nú að verða að veruleika, að draumurinn er að rætast. Þetta finnst mér allt saman skiljanlegt.
Það er mesti misskilningur hjá hv. fyrirspyrjanda, að hér sé um kosningaloforð að ræða. Þetta er ekkert kosningaloforð. Þetta mál er tekið upp í framkvæmdaáætlunina, og þetta á að framkvæma. En hitt er svo annað mál með tæknilegan undirbúning. Mér virtist hv. þm. jafnvel efa, að það væri hægt að ljúka tæknilegum undirbúningi á þeim tíma, sem gert er ráð fyrir í bréfi vegamálastjóra. Ég held nú, að hv. fyrirspyrjandi sé ekki fær að dæma um það, eigi yfirleitt að táta vegamálastjóra um það, á hve löngum tíma hann treysti sér til þess að ljúka hinum tæknilega undirbúningi. Ég held, að það fari bezt á því, og ég treysti því, að vegamálastjóri fari þar með rétt mál, og eins að vegamálastjóri og verkfræðingar hans hafi nægilega verkþekkingu til að gera sér grein fyrir því, hversu langan tíma þarf til að sprengja göngin.
Það er rétt, sem hv. fyrirspyrjandi sagði hér áðan, að hv. 4. þm. Norðurl. v. hefur haft áhuga á þessu máli og unnið að því, og hann hefur ekki gert það með því að hrópa eða kalla. Hann hefur unnið að þessu máli, og aðalatriðið frá hans sjónarmiði er, að verkið komist í framkvæmd, og ég hygg, að þegar hann tók afstöðu til frv. hv. fyrirspyrjanda o.fl. hér í vetur um lántöku til framkvæmdanna, þá hafi hann á raunhæfan hátt athugað, hvort það út af fyrir sig nægði til þess að koma málinu fram. Það var ekki það, sem nægði til að koma málinu fram, að fá einhverja lántökuheimild, heldur að vinna að málinu, eins og gert hefur verið á skipulegan hátt, gera sér fulla grein fyrir, hvað það kostaði, hversu langan tíma þyrfti að vinna, hversu mikið fé þyrfti á hverju ári o.s.frv. Og það er með þessum hætti, sem hv. 4. þm. Norðurl. v. hefur viljað vinna að málinu, og það er ánægjulegt, að með þeim vinnubrögðum hefur hann komið málinu í nöfn.