20.12.1962
Sameinað þing: 25. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í B-deild Alþingistíðinda. (352)

1. mál, fjárlög 1963

Gísli Jónsson:

Með till. þessari, ef samþ. yrði, er heimilað að taka 9 millj. 500 þús. kr. lán til vegaframkvæmda á Vestfjörðum og Austurlandi. Þessu er ekki skipt í till., og má gera ráð fyrir, að ef till. yrði samþ., færu 4 millj. og 750 þús. í hvorn landshluta. A fjárlagafrv. því, sem nú er verið að afgreiða, er veitt til Vestfjarðakjördæmis 6 millj. 490 þús. kr. til vegaframkvæmda. Helmingur af þeirri upphæð, sem hér um ræðir, væri því ekki jafnhár og það framlag, sem nú er veitt á fjárl. á þessu ári, og mundi engan veginn leysa þau vandkvæði, sem hér er að glíma við. Ég segi því nei.