31.01.1963
Neðri deild: 33. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í B-deild Alþingistíðinda. (361)
3. mál, landsdómur
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Á árinu 1960 samþ. Alþingi áskorun til ríkisstj. um að láta endurskoða lögin um landsdóm. Ríkisstj. leitaði til prófessors Ólafs Jóhannessonar um að taka þetta starf að sér, og jafnframt ákvað ríkisstj. að láta einnig endurskoða lögin um ráðherraábyrgð, sem eru þessu máli náskyld, og fól einnig prófessor Ólafi að annast það verk. Hann leysti bæði verkefnin vel af hendi, skilaði frv. af sér til ríkisstj. á s.l. sumri. Hún tók þau til athugunar, og er það frv., sem hér liggur fyrir, árangur af því starfi og er raunar að meginatriðum óbreytt frá því, sem Ólafur Jóhannesson gerði tillögur um það. Ríkisstj. féllst á það óbreytt, en Ed. gerði á því nokkrar breytingar skv. till. hæstaréttar, að því er ég hygg.
Það má segja, að ekki væri að ófyrirsynju, að lögin um landsdóm voru endurskoðuð. Það er boðið í stjórnarskránni, að landsdómur skuli fjalla um mál, sem Alþingi höfðar á hendur ráðherrum fyrir brot í embætti. En þessi ákvæði hafa verið óvirk lengi, vegna þess að nú eru margir áratugir liðnir frá því að landsdómur hefur verið löglega skipaður. Reglurnar um skipun hans eru svo flóknar og margbrotnar og miðast sumpart við löggjafarástand, sem nú er hjá liðið, að ekki hefur verið unnt að koma skipuninni í lögformlegt form nú í heilan mannsaldur má segja. Það má deila um, hversu mikla þýðingu slík löggjöf um sérstakan landsdóm og einnig sérstök löggjöf um ábyrgð ráðherra hafi, en hvort tveggja er boðið í stjórnarskránni, og úr því að svo er, þá sýnist vera eðlilegast, að það sé í því horfi, að framkvæmanlegt sé.
Um landsdóminn er það svo, að sú löggjöf er með öllu óframkvæmanleg og ekki framkvæmd nú, og löggjöfin um ráðherraábyrgð hefur frá fyrstu tíð verið harla ófullkomin og á alls ekki lengur við, eftir að ráðherrarnir eru orðnir fleiri en einn, sem hefur verið síðan 1917, og er að öðru leyti meingölluð.
1 grg. frv. um landsdóm er ýtarlega rakið, hvernig skipun þessara mála er komið fyrir í ýmsum þeim þingræðislöndum, sem okkur eru skyldust, og skal ég ekki rekja það frekar. En ég hygg, að eftir atvikum séu þessar till., sem hér eru fram bornar, heppilegar og skynsamlegar. Það má endalaust deila um það, hvernig maður vill hafa slíkan dóm skipaðan, hvort þar eigi að vera fyrirvari um aukinn meiri hluta o.s.frv. En eftir atvikum hygg ég, að rétt meðalleið hafi verið rötuð um samningu þessa frv., enda varð Ed. sammála um það efnislega, eins og ég segi, með þeim breytingum, sem voru gerðar skv. till. hæstaréttar. Það kom hins vegar þar fram nokkur ágreiningur út af frv. um breytingu á löggjöf um ráðherraábyrgð. Ég ræði um þetta hvort tveggja, því að það er svo náskylt. Það var ekki vegna þess, að frv. væri út af fyrir sig óheppilegt, heldur af hinu, að einum þm., sem um það ræddi, þótti óeðlilegt að taka upp að nýju ráðagerðir um slíka lögformlega ábyrgð, eftir að hún hefur raunverulega legið niðri svo lengi, eins og ég gerði áður grein fyrir. Þetta er sjónarmið fyrir sig. En á hitt verður að líta, að stjórnarskráin ráðgerir, að slíkur dómstóll sé fyrir hendi og sérstök ábyrgðarlög, og Alþingi hefur sjálft nýlega lagt fyrir, að landsdómslögin yrðu endurskoðuð, og um það varð þá enginn ágreiningur í Sþ., þegar sú ályktun var gerð, og verður því að telja, að viljayfirlýsing Alþingis um að halda þeirri skipan, sem stjórnarskráin ákveður, sé fyrir hendi.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál, heldur legg til, að því verði vísað til 2, umr. og hv. allshn.