18.03.1963
Neðri deild: 55. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í B-deild Alþingistíðinda. (461)

141. mál, Iðnlánasjóður

Frsm. meiri hl. (Jónas G. Rafnar):

Herra forseti. Hingað til hefur iðnaðurinn ekki haft aðgang að neinni lánsstofnun, sem teldi það sérstakt verkefni sitt að veita honum hagstæð framkvæmdalán. Að sjálfsögðu hefur iðnaðurinn í mjög mörgu notið fyrirgreiðslu bankanna og án þess væri hann ekki nú orðinn það stórveldi í íslenzku athafnalífi, sem hann er í dag. Einnig má geta þess og viðurkenna, að Framkvæmdabankinn og atvinnuleysistryggingasjóður hafa veitt lán til uppbyggingar iðnaðarfyrirtækja.

Það hefur lengi verið áhugamál forsvarsmanna iðnaðarins, að hann eignaðist stofnun, sem með tímanum gæti orðið honum að svipuðu liði og fiskveiðasjóður er fyrir sjávarútveginn og stofnlánadeild landbúnaðarins er fyrir landbúnaðinn í landinu. Með frv. því, sem hér er til umr., er stefnt að þessu marki, þar sem lagt er til að breyta iðnlánasjóði í stofnlánasjóð, sem láni út á fasteignir og vélar. Í grg. frv. er saga sjóðsins rakin og verkefnum hans lýst. Sjóðurinn var fyrst stofnaður með l. nr. 12 frá 1935, en á þeim voru gerðar nokkrar breytingar á árunum 1941. og 1946. Frá upphafi hefur það verið verkefni iðnlánasjóðs að lána iðnrekendum og iðnaðarmönnum til kaupa á vélum og stærri áhöldum, einnig til rekstrar, en sú heimild mun sárasjaldan hafa verið notuð. Fjárráð sjóðsins hafa jafnan verið lítil, þar sem hann hefur ekki haft aðrar tekjur utan vaxtatekna en ríkissjóðsframlagið, sem fyrst var 25 þús. kr. á ári, en hefur síðan farið hækkandi upp í 2 millj. kr. Framlög ríkisins til sjóðsins hafa samtals numið rúmum 14 millj. kr. A árinu 1961 hlaut iðnlánasjóður fyrir milligöngu iðnmrh. 15 millj. kr. af svonefndu PL–480 lánsfé, sem hann endurlánaði síðan. Upphæð veittra lána úr iðnlánasjóði mun nema samtals um 32.6 millj. kr.

Skv. frv. verða helztu breytingarnar á verkefni og fyrirkomulagi iðnlánasjóðs þessar: Skv. 1, gr. frv. verður tilgangur iðnlánasjóðs að styðja iðnað Íslendinga með hagkvæmum stofnlánum. Sjóðnum er ætlað að veita stofnlán, þ.e.a.s. samningsbundin lán til lengri tíma, til véla- og tækjakaupa, til byggingar verksmiðju- og iðnaðarhúsa og til endurskipulagningar iðnfyrirtækja. Sjóðnum verður einnig heimilt, ef sérstakar ástæður mæla með að mati sjóðsstjórnar, að lána iðnfyrirtækjum til fasteignakaupa. Í frv. eru ýtarlegri ákvæði en í gildandi lögum um tryggingar fyrir lánum og kveðið á um lánskjörin og fleira, sem lánveitingar varðar.

Í öðru lagi er lagt til, að iðnlánasjóður fái 0.4% gjald, er innheimtist af iðnaðinum í landinu og skal lagt á sama stofn og aðstöðugjald er á lagt samkv. III. kafla l. nr. 69 frá 28. apríl 1962, um tekjustofna sveitarfélaga. Undanþeginn gjaldi þessu er allur kjöt- og fiskiðnaður; mjólkurbú, en þær atvinnugreinar hafa nú aðgang að lánum úr stofnlánasjóðum landbúnaðar og sjávarútvegs. Eins og fram er tekið í grg. fyrir frv., þótti óhjákvæmilegt að tryggja sjóðnum árlegar tekjur umfram ríkisframlagið og vexti af stofnfé. Eftir að leitað hafði verið álits stjórnar Landssambands iðnaðarmanna og stjórnar Félags ísl. iðnrekenda, var ákveðið að leggja til, að lagt yrði gjald á iðnaðinn sjálfan, sem miðast við aðstöðugjaldstofn hvers greiðanda. Bent var á, að stofnlánasjóður landbúnaðar og sjávarútvegs hafi nú árlegar tekjur frá viðkomandi atvinnuvegum.

Miðað við upplýsingar ríkisskattstjóra er áætlað, að tekjur þessar nemi ekki undir 7 millj. kr. árlega, en sennilega verða þær mun meiri. Þá er gert ráð fyrir óbreyttu ríkisframlagi eða 2 millj. kr. á ári. Í þriðja lagi, þar sem líklegt þykir, að iðnlánasjóð muni skorta fé á næstu árum til þess að geta veitt nauðsynleg lán, er í frv. tekin upp heimild fyrir sjóðinn til þess að taka allt að 100 millj. kr. lán eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt. Erlent fé, sem sjóðurinn kann að taka, má ekki lána út nema með gengisákvæði.

Eins og fram er tekið á þskj. 394, var iðnn. ekki sammála um afgreiðslu frv., en meiri hl. n. leggur til, að það verði samþ. óbreytt. Þeir nm., sem flytja brtt. við frv., skila sérálitum.