01.11.1962
Neðri deild: 10. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 612 í B-deild Alþingistíðinda. (479)

60. mál, hámarksþóknun fyrir verkfræðistörf

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, er flutt til staðfestingar á bráðabirgðalögum, sem út voru gefin 2. maí s.1., en það er um hámarksþóknun fyrir verkfræðistörf. Í bráðabirgðalögunum segir:

„Forseti Íslands gerir kunnugt: Ríkisstj. hefur tjáð mér, að greiðslur fyrir flest störf verkfræðinga í þágu ríkisins hafi undanfarið verið ákveðnar með hliðsjón af tímakaupi skv. gjaldskrá Verkfræðingafélags Íslands frá 19. apríl 1955 með síðari verðlagsuppbótum skv. lögum. Verkfræðingafélag Íslands hafi nú gefið út nýja gjaldskrá, sem gildir frá 1. þ.m., þar sem tímakaupi er ætlað að hækka allt að 320%, auk þess sem þóknun fyrir ákvæðisvinnu er ætlað að hækka verulega. Slík hækkun á kaupi verkfræðinga mundi óhjákvæmilega valda stórvægilegri röskun á launamálum bæði hjá ríki og öðrum aðilum og auk þess óeðlilegum kostnaðarauka við margvísleg rannsóknarstörf og framkvæmdir. Því telur ríkisstj. brýna nauðsyn bera til, að komið verði í veg fyrir, að nefnd gjaldskrá komi til framkvæmda. Fyrir því eru hér með sett bráðabirgðalög skv. 28. gr. stjórnarskrárinnar, á þessa leið:

1. gr. Þóknun verkfræðinga fyrir verkfræðistörf, unnin í ákvæðisvinnu eða tímavinnu, skal eigi vera hærri en ákveðið er í gjaldskrá Verkfræðingafélags Íslands frá 19. apríl 1955, að viðbættum löglegum uppbótum. Leggi verkkaupandi til vinnuaðstöðu verkfræðings, skal sú vinnuaðstaða teljast til 40% þóknunar skv. fyrrnefndri gjaldskrá, frá 19. apríl 1955.

2. gr. Með brot gegn lögum þessum skal farið að hætti opinberra mála og varða brot sektum.

3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Þessi lög þurfa ekki mikilla skýringa við. Ég á ekki von á því, að hv. þm. færi fram rök gegn þeirri nauðsyn, að þessi lög voru sett, þar sem um það var að ræða, að hækkun á gjaldskrá Verkfræðingafélags Íslands nam allt að 320%. En vegna þess að það hefur sézt oftar en einu sinni í blöðum, að þetta væri ekki rétt, að gjaldskráin hækkaði svona mikið, þykir mér hlýða að nefna hér dæmi. Sé ég ekki ástæðu til þess að geyma mér það, þar sem ég á ekki von á, að því verði mótmælt hér á hv. Alþingi. Það er hér t.d. eitt dæmi, sem ég get nefnt af mörgum úr hinni nýju gjaldskrá.

Tímakaup skv. nýju gjaldskránni skal vera, ef verkfræðingur, sem vinnur verkið, hefur reynslu, 350 kr. á klukkustund, að viðbættum 40%, þegar um er að ræða efnaverkfræðinga, fyrir venjulegar efnagreiningar og efnaprófanir, sem gerir þá 140 kr., og verður þá tímakaupið hjá. þessum verkfræðingi 490 kr., en skv. gildandi gjaldskrá kr. 116.72. Hækkun er því 319.8 % .

Það má nefna annað dæmi um þessa gjaldskrá. Þegar um það er að ræða, að verkfræðifirma tekur að sér störf og lætur annað starfsfólk á skrifstofunni vinna störfin, þá er gert ráð fyrir að taka aukaþóknun af árskaupi þess manns, sem vinnur verkið. Tökunt dæmi, að maður vinnur í verkfræðifirma og hefur 100 þús. kr. laun, þá skal reikna 1.2% af árskaupinu, sem gerir þá 120 kr. á tímann. Það tekur því aðeins 833 klst. að borga árskaup þessa manns. Hins vegar er gert ráð fyrir, að lágmarksvinnustundafjöldi þessa manns yfir árið séu 2200 tímar og jafnvel 2500 tímar. Ef við reiknum aðeins með 2200 tímum á 120 kr., fær verkfræðifirmað fyrir vinnu þessa manns 264 þús. kr., eða álagningin á vinnu þessa manns verður þá 164 þús. kr. skv. nýju gjaldskránni. Ég á ekki von á því, að nokkur hv. þm. mótmæli því, að komið var í veg fyrir, að þessi gjaldskrá gæti tekið gildi.

En nú skal ég nefna hér þriðja dæmið, sem verkfræðingarnir telja sennilega að sé byggt á sanngirni, en gæti komið ónotalega við. Við skulum t.d. taka það, að verkfræðingafirma væri falið að teikna brú skv. nýju gjaldskránni, þá verður tímakaupið 309 kr. í staðinn fyrir 142 kr. áður — hækkun 118%. Þetta er eitt af lægstu dæmunum úr nýju gjaldskránni.

Ég hef nefnt hér af handahófi aðeins þrjú dæmi til rökstuðnings fyrir því, að nauðsynlegt var að koma í veg fyrir, að þessi nýja gjaldskrá Verkfræðingafélagsins tæki gildi. Og í viðtölum við ýmsa verkfræðinga hef ég heyrt það, að þeir margir hverjir eru alls ekki ánægðir með þessa gjaldskrá, enda hafa verkfræðingar tekið bráðabirgðalögunum með skynsemi, og er alls ekki svo, að þeir undir niðri telji margir hverjir óeðlilegt, að ríkisstj. skyldi grípa hér inn í. Það er því enn unnið eftir gömlu gjaldskránni. En því ber ekki að neita, að það hefur orðið dálítið bagalegt hjá einstökum stofnunum, að verkfræðingum hefur fækkað, þeir hafa hætt vinnu. Þó hefur þetta ekki verið bagalegra en svo, að hægt hefur verið að halda áfram hinum verklegu framkvæmdum á þessu ári, sem fyrirhugaðar voru.

Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta mál. Mönnum er áreiðanlega ljóst, hvernig það liggur fyrir, og ég legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. og til hv. allshn.