26.03.1963
Efri deild: 62. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í B-deild Alþingistíðinda. (507)

60. mál, hámarksþóknun fyrir verkfræðistörf

Landbrh. (Ingólfur jónsson):

Herra forseti. Seinni spurningin er: Getur ráðh. sagt hv. dm. það, hversu lengi þessi lög verði í gildi? Þetta er nú dálítið einkennileg spurning. Spurningin er fram borin vegna ákvæðis, sem sett var inn í lögin í hv. Nd., þar sem kveðið er svo á, að ákvæði l. skuli gilda, þar til nýir samningar um kaup og kjör verkfræðinga, sem starfa hjá ríkisstofnunum, hafa tekið gildi. Það er náttúrlega, þótt ríkisstj. sé öll af vilja gerð til þess að semja, þá getur hún ein út af fyrir sig ekki ákveðið það, hvenær samningar takast. Hér er um tvo aðila að ræða, sem verða að talast við, áður en samningar takast, og það er vitanlega undir báðum þessum aðilum komið, hversu fljótt samningarnir verða gerðir. Eitt get ég upplýst hv. fyrirspyrjanda um, og það er það, að ríkisstj. er vitanlega hvenær sem er til viðræðu við verkfræðinga um samninga. En hitt er vitanlega eðlilegt, úr því sem komið er, að samningar við verkfræðinga, sem starfa hjá ríkinu, bíði, þar til séð verður, hvað gerist í samningum um kaup og kjör almennt hjá starfsmönnum ríkisins. Ég geri mér í hugarlund, að samningar, sem gerðir verða við verkfræðinga, yrðu á einhvern hátt sniðnir í samræmi við það, sem gerist ekki seinna en 1. júlí á þessu ári í sambandi við kaupgjaldsmálin. En hv. fyrirspyrjanda til huggunar vil ég segja það, að ríkisstj. vill vitanlega koma þessum málum á fastan grundvöll og semja við verkfræðinga, þegar þeir tjá sig tilbúna til að semja í samræmi við það, sem launakjörin almennt eru í landinu.

Fyrri spurningin var um það, hvort erlendum verkfræðingum hafi verið greiddar 1075 kr. um tímann. Ég get því miður ekki upplýst það. Mér þykir ósennilegt, að svo hafi verið. Hitt er vitað mál, að 1957, þegar vinstri stjórnin sat að völdum, voru teknir upp samningar við bandarískt firma um athugun á okkar virkjunarmálum, og þetta firma hefur haft yfirumsjón með athugun á virkjun Þjórsár og Dettifoss undanfarin ár. Þetta firma mun hafa tekið þetta að sér að nokkru leyti í ákvæðisvinnu, og ég hygg, að það liggi alls ekki ljóst fyrir, hversu hátt tímakaupið hefur verið, vegna þess að þetta hefur að einhverju leyti a.m.k. verið í ákvæðisvinnu. Það má vel vera, að taxtar, sem verkfræðingar vinna eftir, séu hærri í Bandaríkjunum, og hefur oft verið vitnað til þess, heldur en hér, og þessir verkfræðingar erlendu, sem hafa unnið hér að okkar virkjunarmálum undanfarið, hafi fengið hærra kaup en íslenzkir verkfræðingar. Ég get því miður ekki sagt um það, hver munurinn er, en það má vel vera, að hann sé einhver. En það hefur verið álitið óhjákvæmilegt, ekki aðeins af núv. ríkisstj., heldur einnig fyrrv., að fá þekkt útlent firma til þess að starfa að þessum málum, áður en við færum að ráðast í stórvirkjanir, sem kosta kannske milljarða ísl. kr., því að það munu vera skilyrðin til þess, að unnt sé að fá lán í Alþjóðabankanum til þessara framkvæmda, að heimsþekkt firma hafi gert athuganirnar og setji sinn stimpil á áætlanirnar. Þetta er ekki sagt vegna þess, að íslenzkir verkfræðingar geti ekki unnið þetta. Þá vantar aðeins það að vera þekktir og hafa starfað undir firmamerki, sem er heimsþekkt og viðurkennt.

Ég hef í rauninni ekki meira um þetta að segja. Það er reyndar spurt, hversu margir erlendir verkfræðingar starfi hér nú. Þeir eru áreiðanlega mjög fáir, ég veit ekki um aðra en þessa, sem ég nefndi, frá þessu fyrirtæki, og þeirra verki er nú að verða lokið að þessu sinni. Áætlunargerðinni er að verða lokið. Þeir hafa setið við nú að undanförnu, okkar verkfræðingar og einhverjir frá þessu fyrirtæki, til að reikna út síðustu tölurnar í þeim áætlunargerðum, sem fram hafa farið um Dettifossvirkjun og Þjórsárvirkjun. Ef ráðizt verður í stórvirkjun, þá býst ég við, að við þurfum enn á þessu fyrirtæki að halda að einhverju leyti. En ég vil aðeins upplýsa það, að eins og er munu þessir verkfræðingar vera mjög fáir, ég gæti trúað einn eða tveir, sem hægt væri að segja að hafi verið í starfi hér nú síðustu mánuðina, en eru að ljúka störfum að sinni. Og þar sem verkið hefur verið tekið á nokkurn hátt í ákvæðisvinnu, þá býst ég við, að það sé mjög erfitt að finna út, hversu tímakaupið hefur verið hátt.