05.03.1963
Efri deild: 52. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í B-deild Alþingistíðinda. (531)

130. mál, atvinna við siglingar

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Það er alveg rétt, sem hv. 4. þm. Vesturl. sagði hér, að skipin stækkuðu og þess vegna dugðu raunverulega ekki þessi námskeið, sem hér hefur verið talað um og veita réttindi til 120 tonna skipstjórnar, þau nægðu ekki til þess að fara með þau stærri skip, sem nú er algengast að smíða. En þeir sem hafa fjallað um þessi mál mest, bæði skólastjórar og kennarar stýrimannaskólans, bæði fyrrv. skólastjóri og núv., telja, að það sé ekki varlegt, að þessi stóru, nýju skip verði fengin í hendur mönnum með hinu minna prófi eða kannske með litlu viðbótarprófi. Þau eru orðin svo stór, að þau geta farið á milli landa og gera það mörg. En þessi námskeiðsréttindi, sem sett eru, ná alls ekki til slikra siglinga, enda þurfa menn að læra þá miklu meira í siglingafræði en þeir gera á þessum námskeiðum.

Það, sem þess vegna er eðlilegast að mínu viti, er, að ef menn hafa námskeiðsréttindi, þessi 120 tonna réttindi, þá fari þeir í hið meira fiskimannapróf og geti lokið því á einu ári. Það veitir þeim réttindi til þess að fara með öll fiskiskip bæði í innanlands- og utanlandssiglingum. Þessu nýju, stóru skip eru orðin dýr og þýðingarmikið þess vegna, að þau séu ekki látin í hendur þeirra manna, sem kunna ekki til fulls með þau að fara. Ég held þess vegna, að þetta 120 tonna mark, sem hefur verið sett, þó að það nái ekki til nema tiltölulega fárra af hinum stóru, nýju skipum, verði látið gilda núna fyrst um sinn, og ef menn vilja fá sér réttindi til hinna stærri skipa, þá taki þeir hið meira fiskimannapróf, sem taka má á einu ári eða einum vetri, eftir að þeir hafa stundað nám á þessum námskeiðum.

Annars er þetta mál mjög vandmeðfarið og erfitt, því að hagsmunirnir rekast nokkuð mikið á. Það er ekki óalgengt, að ýmsir beztu fiskimennirnir hafi lítil eða takmörkuð réttindi, og er því oft sótt fast á að fá fyrir þá undanþágu. En hið æskilegasta hlýtur að verða það, að menn sæki skólann, sem stofnaður er til þess að veita mönnum eðlilega fræðslu, og fái sín fullu réttindi, eins og skólinn veitir, og þá rétt til að sigla bæði utan lands og innan á öllum fiskiskipum, bæði smáum og stórum.