04.04.1963
Efri deild: 67. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 677 í B-deild Alþingistíðinda. (533)

130. mál, atvinna við siglingar

Frsm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv, það, sem hér um ræðir, hefur þá efnisbreytingu eina inni að halda, að gert er ráð fyrir, að hið minna fiskimannapróf haldi enn um sinn áfram, og er gert ráð fyrir með þessu frv., að heimild ráðh. verði til að halda þessum námskeiðum áfram til ársloka 1965 samkv. því, sem ákveðið er á þskj. 307 og 330 eftir 2. umr í hv. Nd. Sjútvn. þessarar d. hefur rætt og yfirfarið frv. og mælir einróma með samþykkt þess.