28.02.1963
Efri deild: 50. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 677 í B-deild Alþingistíðinda. (538)
174. mál, heimilishjálp í viðlögum
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv. er einnig í tengslum við þau tvö frv., sem síðast hafa verið hér til umr., og gerir ráð fyrir þeirri breyt. á l. um heimilishjálp í viðlögum, að nú megi starfrækja heimilishjálp handa öldruðu fólki, eftir því sem nánar er ákveðið í reglugerð.
Í núgildandi l. um heimilishjálp í viðlögum er svo ákveðið, að sveitarstjórnum og sýslunefndum sé heimilt að ákveða, að komið skuli á fót þessari heimilishjálp, eftir því sem þessar sveitarstjórnir eða sýslunefndir ákveða. Hlutverk þessarar heimilishjálpar á að vera að veita hjálp á heimilum, þegar sannað er, eins og það er orðað í 1., með vottorði læknis eða ljósmóður eða á annan hátt, að hjálpar sé þörf. Greiðsla fyrir þessa heimilishjálp skal svo ákveðin með sérstakri gjaldskrá, en ríkissjóður greiðir 1/3 af þeim kostnaði, sem ekki fæst greiddur af þeim, sem hjálparinnar eða aðstoðarinnar njóta.
Í till, þeirrar n., sem getið var hér um í sambandi við byggingarsjóð aldraðs fólks, var gert ráð fyrir því, að annað stigið í aðstoðinni við gamla fólkið væri að aðstoða það á heimilunum, sem þess þyrfti með, því að enn mundu ýmsir geta starfað á ýmsan veg, þó að ekki væri auðvelt að sinna heimilisstörfunum til fulls, og gæti þess vegna verið nauðsynlegt og áreiðanlega þarft, að þessu yrði mætt með hjálp á heimilunum, og þá eðlilegast, að l. um heimilishjálp í viðlögum yrðu aukin á þennan hátt.
Ég leyfi mér að leggja til, herra forseti, að þessu frv. verði einnig vísað til sömu n. og hinum tveimur frv., sem frá n. komu, þ.e.a.s. til heilbr: og félmn., að þessari umr. lokinni.