22.11.1962
Neðri deild: 20. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í B-deild Alþingistíðinda. (56)

99. mál, framkvæmdalán

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Við 1. umr. þessa frv. lét ég orð falla hér um það, að ég teldi að vísu nokkra bót í þeirri breyt., sem gerð var á frv. víð afgreiðslu þess í Ed., þar sem ákveðið var, að skipting lánsfjárins skyldi gerð í samráði við fjvn. En ég hefði þó talið mun betra, að ákveðið hefði verið, að fjvn. gerði till. um skiptinguna til ríkisstj., þannig að hér væri ekki aðeins um ómerkilegt formsatriði að ræða gagnvart fjvn., þar sem þessi orð segja í sjálfu sér svo litið, hvað liggur á bak við þetta: „í samráði við.“ Ég vildi því leyfa mér að flytja hér skrifl. brtt. um þetta atriði, sem er á þá leið, að upphaf 2. mgr. 2. gr. orðist svo:

„Ríkisstj, ákveður skiptingu lánsfjárins að fengnum till, fjvn. Alþingis“ o.s.frv.

Ef hæstv. fjmrh, lýsti því hér yfir, að hann mundi vilja viðhafa þessa aðferð, sem gert er ráð fyrir í till. minni, um framkvæmdir í þessum efnum, mundi ég að sjálfsögðu draga till. til baka. En ég tel, að hér sé allverulegur munur á, og vildi því leyfa mér að flytja svona till. og fá úr því skorið, hvort ekki er ætlunin, að fjvn, geri beinlínis till. um skiptinguna til ríkisstj., svo að þingnefnd íái virkilega að fjalla um málið og þannig að skoða öll þau gögn, sem till. verða raunverulega byggðar á. Ég vildi leyfa mér að leggja fram þessa skriflegu brtt. og óska, að hún verði tekin fyrir.