07.03.1963
Neðri deild: 50. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 686 í B-deild Alþingistíðinda. (565)

102. mál, stofnlánadeild landbúnaðarins

Frsm. meiri hl. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til 2. umr., er stjórnarfrv, og fjallar um aukinn stuðning ríkisins til þeirra, sem stofna nýbýli, og til þeirra bænda á eldri lögbýlum, þar sem ræktað land er enn í minna lagi, eða eiga eftir að byggja viðunandi íbúðarhús á jörðum og hafa örðugan fjárhag.

Landbn. d. varð ekki á eitt sátt um afgreiðslu málsins, svo sem nál. bera með sér. Hv. fulltrúi Framsfl., Ágúst Þorvaldsson, klauf sig frá, og mun hann gera grein fyrir áliti sínu hér á eftir. Er þar þó ekki að ræða um ágreining um gildi málsins, heldur vill hann ganga nokkru lengra eða gera nokkurt yfirboð.

Meiri hl. n. flytur nokkrar brtt. á þskj. 350. Við 1. gr. er orðalagsbreyt., sem betur þótti fara. Önnur brtt. er, að inn komi ný gr., sem kveður á um hækkun á óafturkræfu framlagi til íbúðarhúsa á nýbýlum úr 40 í 50 þús. kr., og má raunar segja, að þá breyt. hafi af vangá vantað í frv. upphaflega. En í framhaldi af þeirri breyt. er svo 3. brtt. um skýrari ákvæði í 63. gr. stofnlánadeildarlaganna um skilyrði fyrir þessu framlagi til þeirra, er rétt eiga á því til íbúðarhúsbygginga á eldri jörðum, sem enn hafa ófullnægjandi íbúðarhús. Þessi styrkur hefur verið veittur nú síðustu ár, en hefur raunar vantað nægilega skýr ákvæði fyrir nýbýlastjórn að vinna eftir við veitingu hans. Orðin: „örðugan fjárhag“ eða það hugtak er bersýnilega mjög teygjanlegt, en það er vitanlega ætlazt til, að hér sé um stuðning að ræða til hinna efnaminni til þess að draga úr aðstöðumun.

Það hefur nokkuð borið á góma, í hvers konar formi aukinn stuðningur við ræktunina í landinu væri hagfelldastur og sanngjarnastur. Litlu býlin, þau sem hafa lítil tún, eru eitt af stóru vandamálum landbúnaðarins. Ég tel því hagfellt og skynsamlegt, svo sem gert er í þessu frv., að beina auknum ræktunarstuðningi til smærri býlanna og þess vegna er lagt til að beina honum skv. þessu frv, að 5 hekturunum milli 10 og 15, en sú ræktunaraukning breytir mjög til batnaðar búskaparaðstöðu þessara býla.

Meiri hl. n. leggur sem sagt til, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem fluttar eru á þskj. 350.