22.11.1962
Neðri deild: 20. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (58)

99. mál, framkvæmdalán

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Ég fæ ekki séð, að það séu heppilegri vinnubrögð í þessu máli, að frumkvæðið sé hjá fjvn. heldur en hjá ríkisstj. Ég geri ráð fyrir því og að sjálfsögðu felst það í þessu orðalagi frv., eins og það er nú, að samráð verður haft við fjvn., að hún getur auðvitað fengið þau gögn og upplýsingar, sem hún óskar eftir, og komið að þeim aths., óskum og brtt., sem hún vill. l;g held, að það sé affarasælast fyrir málið að gera ráð fyrir því, eins og það er orðað nú í frv., að ríkisstj. og fjvn. hafi samráð.