15.03.1963
Neðri deild: 54. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 735 í B-deild Alþingistíðinda. (604)

172. mál, byggingasjóður aldraðs fólks

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég átti fyrir nokkrum árum sæti í mþn., sem fjallaði um málefni öryrkja. Sú n. kynnti sér m.a. fjárhag happdrættanna, sem koma þar við sögu, og gerði sér grein fyrir því, hvort hún vildi leggja til, að breytingar yrðu gerðar á happdrættunum, t.d. happdrætti S.Í.B.S., og enn fremur kynnti n. sér happdrætti D.A.S. í þessu sambandi. Þá fékk mþn. þær upplýsingar frá forráðamönnum happdrættis D.A.S., að stefna þeirra væri sú að styðja byggingu sjómannaheimila, sem jafnframt gætu orðið almenn elliheimili, utan Reykjavíkur í framhaldi af byggingu Hrafnistu.

Okkur, sem áttum sæti í þessari mþn., leizt mjög vel á þessar fyrirætlanir forráðamanna D.A.S. og sýndist vera mikil nauðsyn á því einmitt að koma upp dvalarheimilum fyrir aldraða sjómenn, sem aðrir gætu þá einnig notið góðs af úti um landið, í framhaldi af því myndarlega átaki, sem gert hefur verið í Hrafnistu. Okkur sýndist vera ærið verkefni þarna fyrir hendi og engin ástæða til að skerða í neinu tekjur af happdrætti D.A.S. Það mundi ekki af því veita á næstu árum til þess að byggja upp úti um landið slík dvalarheimili.

Nú sé ég, að hér er komið fram frv, um að skerða tekjur D.A.S. af happdrættinu og leggja 40% af þeim tekjum til þess að styðja að því að lána öldruðu fólki til að koma upp íbúðum. Ég get ekki lýst ánægju minni yfir því, að skertar eru þannig tekjur D.A.S., því að ég býst við, að verkefni þess séu ærin, eins og ég hef þegar drepið á. Samt sem áður mun ég fylgja þessu eindregið, vegna þess að ég tel, að það sé svo mikil nauðsyn að veita sérstök lán til þess að greiða fyrir byggingum aldraðs fólks, að ég vil ekki á einn eða annan hátt verða meinsmaður þess.

En ég verð að segja, að ég sé eftir því, að það skuli hafa verið talið nauðsynlegt að skerða tekjur D.A.S. í þessu skyni og menn skuli ekki hafa treyst sér til að afla á annan hátt tekna til þess að styðja að byggingum aldraðs fólks. En samt sem áður mun ég ekki beita mér á móti þessu.

Þá vil ég í þessu sambandi minnast á það, sem kom hér áðan fram hjá hv. 12. þm. Reykv. (PS), sem mun, eftir því sem mér skildist á honum, vera í stjórn D.A.S. eða stjórn Hrafnistu eða hafa eitthvað með þetta að gera a.m.k. Mér skildist á honum, að þetta mundi verða til þess, að það yrði að fella niður fyrst um sinn a.m.k. allar fyrirætlanir um að byggja dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn utan Hrafnistu eða utan Reykjavíkur. Og eiginlega rökstuddi hann þetta þannig, að þar sem meir en helmingur af öllum tekjum D.A.S. kæmi hér af Faxaflóasvæðinu, þá væri í raun og veru öllu fullnægt með því, að Hrafnista fengi þessi 60%, sem eftir verða, og þessi 40%, sem eiga þá að ganga til að styðja byggingar aldraða fólksins, ættu þá að vera hlutur annarra byggðarlaga. Þessi hugsanagangur er náttúrlega ekki réttur, vegna þess að að sjálfsögðu nýtur aldrað fólk alls staðar að af landinu, bæði frá Faxaflóasvæðinu og annars staðar, góðs af þessari nýju lánastarfsemi. Það verður ekki bundið við neitt byggðarlag, heldur verður það almennt fyrir þá, sem eftir því sækjast.

Ég vil eindregið beina því til forráðamanna D.A.S. og þ. á m. þessa hv. þm., að þessi stefna verði ekki höfð á oddinum, heldur verði reynt að brjótast í því, jafnvel þó að D.A.S. missi nú þessi 40%, að reisa sjómannaheimili utan Reykjavíkur. Auðvitað verður miklu minna hægt að gera, vegna þess að tekjurnar verða stórkostlega skertar. En samt sem áður mundi ég telja það holl ráð til forráðamanna sjómannasamtakanna að halda þessari stefnu samt sem áður og reyna að klífa þrítugan hamarinn til að gera líka einhverjar framkvæmdir úti á landi til viðbótar við það, sem þeir svo myndarlega hafa gert hér við Faxaflóa með Hrafnistu.

Ég er ekki nógu kunnugur til þess að vita, hve mikið má gera með þeim 60%, sem eftir verða, en mér skildist á hv. þm., að það mundi kannske verða nokkrum erfiðleikum bundið að halda stefnunni. En ég held það sé ákaflega nauðsynlegt fyrir þessi samtök að sýna fullan lit á því að hafa einnig framkvæmdir á sínum vegum annars staðar en á Faxaflóasvæðinu, og ég stóð upp til að undirstrika þetta eða beina því til hv. þm., sem þarna ræður sjálfsagt nokkru, að þetta verði gert þrátt fyrir þessa tekjuskerðingu.

En ég endurtek, að það er náttúrlega mjög slæmt að þurfa að skerða tekjur D.A.S. í þessu sambandi, því að við þóttumst sjá það á þeim upplýsingum, sem við fengum í þessari mþn., sem ég var í, að það væru ærin verkefni fram undan í þessu efni og þetta gæti líka hjálpað til þess að leysa elliheimilavandamálið víðs vegar um landið, ef D.A.S. fengi að halda óskertum tekjum sínum.

En þrátt fyrir allt þetta mun ég ekki beita mér á móti þessu frv., vegna þess að ég óttast, að þá strandi þessi tilraun, sem á nú að gera til að byrja að lána til að koma upp íbúðum fyrir aldrað fólk.