15.10.1962
Efri deild: 3. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (64)
2. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Það er aðeins eitt atriði, sem ég vildi spyrja hæstv. fjmrh. um í tilefni af því, að hann skýrði svo frá, að um leið og tollskráin hin nýja kæmi, yrði 8% söluskatturinn lagður niður. Á að leggja þennan skatt niður þannig að kalla hann öðru nafni, eða á að leggja hann raunverulega niður? Ég hef heyrt því fleygt, að það eigi að sameina þennan söluskatt verðtolli og hann eigi að heita tollur. Er það þannig, sem á að leggja söluskattinn niður?