15.03.1963
Neðri deild: 54. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (640)
173. mál, happdrætti dvalarheimilis aldraðra sjómanna
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þetta mál er flutt í beinu framhaldi af því máli, sem var hér til umr. næst á undan. Í því felst heimild til að framlengja happdrættisleyfi dvalarheimilis aldraðra sjómanna til ársloka 1974 og að hagnaðinum af því verði varið á þann hátt, sem rætt hefur verið við hið fyrra frv., þ.e.a.s. 60%, ágóðans varið til byggingar dvalarheimilís aldraðra sjómanna, en að öðru leyti renni hagnaðurinn í byggingasjóð aldraðs fólks. Ég þarf ekki að hafa um þetta frv. fleiri orð. Það er mjög einfalt og raunar rætt í sambandi við það mál, sem var síðast til umr.
Ég vil leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og til heilbr. og félmn.