09.04.1963
Efri deild: 70. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (651)

173. mál, happdrætti dvalarheimilis aldraðra sjómanna

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Á þessu frv. var gerð lítils háttar breyt. í hv. Nd. Þessi breyt. er eingöngu í því fólgin, að á eftir 1. gr., sem áður var í frv., komi ný gr., sem hljóði svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Ráðh. setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þ. á m. um endurskoðun ársreikninga happdrættisins og afhendingu fjárins til byggingasjóðsins.“

Þetta þótti rétt að hafa, þar sem þessi byggingasjóður aldraða fólksins og stjórn dvalarheimilis aldraðra sjómanna eiga að vera saman um þann arð, sem happdrætti dvalarheimilis aldraðra sjómanna gefur af sér..