21.03.1963
Neðri deild: 57. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 775 í B-deild Alþingistíðinda. (683)
5. mál, lögreglumenn
Frsm. (Einar Ingimundarson):
Herra forseti. Frá því, að þetta frv. var síðast til umr. hér í þessari hv. d., hefur allshn. komið saman og athugað þær brtt., sem bornar voru fram við frv. Mun ég síðar skýra frá því. Ég vil einnig geta þess, að þegar frv. þetta var síðast til umr. hér í d., benti hv. 3. þm. Norðurl. e. á, að í einni af brtt. allshn. á þskj. 409 væru felld niður lög nr. 45 frá 1956, þegar frv. þetta öðlaðist Lagagildi, en það ákvæði hefði hins vegar ekki verið tekið í frv., eins og það var lagt fram í upphafi. Þetta er alveg hárrétt athugað hjá hv. þm. Þetta ákvæði féll af vangá niður úr frv., eins og það var lagt fram hér í upphafi í þessari hv. d. Hins vegar tel ég, að ákvæði þessara laga, þ.e.a.s. laga nr. 45 frá 1956, en það er breyt. á gildandi l. um lögreglumenn, sem eru nr. 50 frá 1940, séu tekin upp í frv. því, sem hér er til umr. Ákvæðið um sumarlögreglu er í 2. mgr. 4. gr. frv., þar sem rætt er um sérstaka löggæzlu á vertíðum, og ákvæðið um löggæzlu ríkislögreglumanna á samkomum er að finna í niðurlagi 1. mgr. 3. gr. frv., þar sem segir, að hlutverk ríkislögreglumanna sé m.a. að halda uppi almennri löggæzlu og reglu.
Í sambandi við það, sem hv. 3. þm. Norðurl. e. sagði, þegar málið var síðast til umr., vil ég einnig taka fram, að sumarlöggæzla eða vertíðarlöggæzla, eins og hún mun einnig vera kölluð nú, hefur um margra ára skeið verið kostuð af framlögum, sem veitt eru til hennar á fjárl, hverju sinni, þannig að það er engin breyting frá því, sem verið hefur, þótt gert sé ráð fyrir því og ákveðið í frv., að vertíðarlöggæzlu skuli haldið uppi eftir því, sem fé er veitt til á fjárlögum. Ég vona, að hv. 3. þm. Norðurl. e. taki þessi rök gild, en hann hafði tjáð mér, að hann mundi e.t.v. flytja brtt. við frv. fyrir 3. umr. málsins út af þessum atriðum.
Meiri hl. allshn. getur ekki fallizt á 2. brtt. hv. 11. landsk. þm., sem prentuð er á þskj. 410, en þar segir, að aldrei skuli ákveða fleiri lögregluþjóna en sveitar- eða sýslufélag hefur ákveðið. Með þessu væri, ef samþykkt yrði, opnuð leið fyrir sveitarstjórn eða sýslunefnd til að fækka lögregluþjónum, jafnvel niður í ekki neitt, án minnsta samráðs við ríkisvaldið eða viðkomandi lögreglustjóra, og sjá vitanlega allir, sem um það hugsa, hvað af slíku gæti leitt. Rétt er einnig að hafa í huga að í ákvæði 1. gr. frv. segir: „allt að einum lögregluþjóni á hverja 500 íbúa“, og er þetta ákvæði alls ekki bundið við, að þessu 500 íbúa marki hafi endilega verið náð, og engin ástæða virðist til þess að gera ráð fyrir, að tilhneiging verði til þess af ríkisvaldsins hálfu að þrýsta óhóflega á í þessu efni.
1. og 3. brtt. hv. 11. landsk. þm., sem prentuð var upphaflega á þskj. 410, er allshn. hins vegar efnislega samþykk og flytur, brtt. við frv., sem eru þessum tveim brtt. hv. þm. efnislega shlj. Þeim brtt. mun nú nýlega hafa verið útbýtt hér í d. og munu vera á þskj. 436. Hv. 11. landsk. hefur beðið mig um að taka fram, að hann tæki þar með aftur 1. og 3. brtt. sína á þskj. 410.