26.03.1963
Neðri deild: 60. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í B-deild Alþingistíðinda. (693)
5. mál, lögreglumenn
Halldór Ásgrímsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. með því að fara að ræða efnishlið þessara brtt. Hv. fyrri flm., 3. þm. Norðurl. e., hefur gert það svo, að ekki verður um bætt. En ég get ekki orða bundizt út af þeim svörum, sem komu fram frá hv. form. allshn. um þá hógværu ósk fyrra flm., að hv. allshn. vildi verja nokkrum augnablikum til þess að líta á þessar brtt. Þetta finnst mér líka því óvæntara og í raun og veru því óvenjulegra, þegar litið er á málsmeðferð þessa þingmáls á þessu þingi. Málið er lagt fyrir hv. Nd. 15. okt. s.l. og vísað þá til hv. allshn. Hv. allshn. skilar nál. 19. þ. m., ég hygg, að ég fari þar rétt með, og sama dag mun hafa farið fram umr. um nál. og málinu visað til 3. umr.
Það var lögð áherzla á það að hraða umr., og það var gefið í skyn, eins og hv. 3. þm. Norðurl. e. vék að, að það væri ekki ástæða til að tefja umr. við 2. umr., þótt nál. væri nýframkomið, vegna þess að það ætti að geta gefizt kostur á athugun á brtt. fyrir 3. umr. Ég skal ekki fullyrða, að form. hv. allshn. hafi beint tekið undir þetta, en þeirri ábendingu var ekki mótmælt. Svo kemur sú brtt., sem hér er til umr., og þá lýsir form. hv. allshn. því yfir, að hann fyrir n. hönd sé ekki til viðtals um að líta á þessa brtt., og upplýsir svo, að hann hafi á bak við sig meiri hl. n. Það er sem sagt, að eftir alla þá yfirlegu í þessu efni í allan vetur er ekki einu sinni hægt að kalla saman n. til þess að líta á brtt., þegar loksins gefst tækifæri til að gera slíkar till. Það var þetta, sem ég vildi lýsa undrun og óánægju yfir, og ég vildi óska þess, að hv. form. allshn. vildi endurskoða þetta viðhorf og kalla saman n. nokkur augnablik til þess að líta á till. og dæma hana þá úr leik, ef svo vill verkast.