01.04.1963
Efri deild: 65. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í B-deild Alþingistíðinda. (702)
5. mál, lögreglumenn
Alfreð Gíslason læknir:
Herra forseti. Eins og hæstv. ráðh. tók fram, voru gerðar á þessu frv. nokkrar breyt. í Nd. Satt að segja þótti mér þetta frv. nokkuð gallað, þegar það kom fram hér á þingi fyrst í vetur, en sem betur fer hafa fengizt a.m.k. tvær eða jafnvel fleiri veigamiklar breyt. til bóta. Ég nefni það sérstaklega, að nokkuð var gengið til móts víð réttmætar kröfur Reykjavíkurborgar um þátttöku í kostnaði við lögreglukostnað þar, og eins þá breyt., sem gerð var í sambandi við skyldu tollgæzlumanna til að annast lögreglustörf. Þetta eru breyt., sem ég tel mjög til bóta.
Ég stend aðeins upp hér til þess að benda á eina áberandi veilu í þessu frv. enn og til þess að skora á þessa hv. d. að gera þar breyt. á. En það er í upphafi frv., þar sem ákveðið er, að ríkisstj. hafi heimild til án samþykkis viðkomandi sveitarfélags að ákveða tölu lögreglumanna upp í visst hámark. Ég tel þetta ákvæði, eins og það er nú í frv., algerlega óviðunandi og óréttmætt í garð sveitarfélaganna. Hér þarf að koma ákvæði um, að ríkisstj. sé heimilt að ákveða tölu lögreglumanna að fengnu samþykki sveitarfélaganna. Það er ekkert eðlilegra og sjálfsagðara en að sá aðili, sem á að bera kostnað af viðkomandi ráðstöfun, verði að láta sitt samþykki fylgja, áður en þeim kostnaði er skellt á.