01.04.1963
Neðri deild: 63. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 817 í B-deild Alþingistíðinda. (746)

206. mál, tónlistarskólar

Óskar Jónsson:

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. frá menntmn. með þessu frv., var ég ekki viðstaddur afgreiðslu þess. Ég vil taka það strax fram, að ég tel þetta mikinn og merkilegan stuðning, sem hér kemur til móts við tónlistarskólana í landinu, en þess var sannarlega þörf. Tónlistarnám hefur átt erfitt uppdráttar víða úti um landið, og tónmenningu og söngmenningu hefur hrakað þar verulega um langt bil og hefur orðið langt á eftir ýmissi annarri mennt úti um land. Þetta er mikill skaði, vegna þess að tónlistarnám og tónlist öll göfga vissulega þjóðlífið og eru eitt af aðalmenningareinkennum þjóðfélagsins, þar sem hægt er að halda uppi lifandi og öflugri tónmenningu.

Ég endurtek, að ég þakka það, sem hefur áunnizt með frv. þessu frá því, sem áður var. Hitt er mér fullkomlega ljóst, að það hefði, úr því að þessi mál voru tekin endanlega til meðferðar, að mínu viti átt að ganga lengra en frv. gerir ráð fyrir, og mundi ég í því tilfelli vera fullkomlega samþykkur brtt., sem 4. þm. Norðurl. e. flytur hér, í sambandi við það, að framlag frá ríkissjóði hefði átt að nema allt að helmingi í rekstrarkostnaði skólanna. Ég er ekki viss um, að sveitarfélögunum þætti þetta svo verulega aukin byrði. Tónlistarskóli Árnessýslu hefur starfað lengi undanfarið, og sveitarfélagið þar greiddi á s.l. ári t.d. 50 þús. kr. til skólans á móti 10 þús. kr. frá ríkissjóði, svo að ég er ekki viss um, að þeir hefðu ekki sætt sig vel við þann hlut, þó að þeir hefðu átt að borga allt að helmingi. Mér er það vel ljóst og hefur verið það vel ljóst, að hin háu skólagjöld hafa hamlað mjög frá því, að unglingar sæktu þessa skóla eins og vera skyldi. Þeir hafa ekki haft fjármagn til þess að borga um 1800 kr. og upp undir 2000 kr. í skólagjöld.

Ég ætla ekki að fara að rökstyðja þetta neitt nánar. Mér finnst bara eðlilegt, að þessi menningargrein, sem tónlistarlífið vissulega er, ætti að njóta skilnings og stuðnings ríkisins ekki síður en annað nám í landinu. Og ég veit, að því yrði mjög fagnað í mínu héraði, ef það yrði hægt að hækka það sem mest. Hitt er annað mál, að það er þakkarvert, það sem áunnizt hefur með frv., og enn betra væri það þó, ef brtt. hv. 4. þm. Norðurl. e. yrði samþ.