08.11.1962
Neðri deild: 13. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í B-deild Alþingistíðinda. (76)

2. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Um margra ára skeið hafa á hverju ári verið samþykkt lög um framlengingu á ýmsum gjaldaviðaukum, og er það einnig meginefni þessa frv. Hér er um að ræða viðauka við stimpilgjald, leyfisbréfagjöld, gjöld af innlendum tollvörutegundum, bifreiðaskatt, innflutningsgjald, vörumagnstoll, verðtoll o.fl. Þetta er allt saman óbreytt frá því, sem verið hefur um margra ára skeið. Sama er um heimild í niðurlagi 4. gr. að fella niður tiltekin aðflutningsgjöld.

Í 5. gr. segir svo:

„Gilda skulu til ársloka 1963 ákvæði um 8% viðbótarsöluskatt á innfluttum vörum, sem innheimtur hefur verið síðan á árinu 1960.“

Loks er í niðurlagi 5. gr. svo ákveðið, að lög nr. 90 frá 1961, um lækkun aðflutningsgjalda af ýmsum vörum, skuli gilda til ársloka 1963.

Í nóvember s.l. var samþ. á Alþingi frv. um verulega lækkun á ýmsum aðflutningsgjöldum. Var það gert í tilraunaskyni og ákveðið, að þau lög skyldu gilda til ársloka 1962. Tilgangur þeirra laga var annars vegar að lækka verðlag á ýmsum vörum, sem há aðflutningsgjöld höfðu verið á, og hins vegar að reyna að draga úr ólöglegum innflutningi, sem talinn var verulegur á ýmsum þeim vörutegundum. Reynslan af þessum tollalækkunarlögum hefur orðið mjög góð, þannig að þrátt fyrir þessar miklu lækkanir hafa aðflutningsgjöld til ríkissjóðs orðið töluvert meiri á fyrra helmingi þessa árs en þau voru á fyrra missiri ársins 1961. Það bendir að sjálfsögðu til þess, að stórum hafi dregið úr ólöglegum innflutningi þessara vara og meira komi nú inn af þeim að löglegum leiðum.

Þetta frv. hefur verið til meðferðar í hv. Ed. og var samþykkt þar óbreytt við þrjár umr. Ég legg til, að frv. verði vísað til 2, umr. og hv. fjhn.