09.04.1963
Efri deild: 70. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í B-deild Alþingistíðinda. (771)
113. mál, virkjun Sogsins
Frsm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Frv. þetta er til staðfestingar á brbl., sem gefin voru út á s.l. sumri, til þess að afla heimildar til lántöku vegna Sogsvirkjunarinnar. Svo sem kunnugt er, þá er ríkissjóður meðeigandi Sogsvirkjunarinnar ásamt Reykjavíkurborg og þar af leiðandi sem slíkur ábyrgur fyrir skuldbindingum virkjunarinnar. En með hliðsjón af þeim framkvæmdum, sem unnið er að í sambandi við stækkun Írafossvirkjunarinnar, var óumflýjanlegt að afla þessarar heimildar til lántöku vegna þeirrar framkvæmdar.
Iðnn. hefur athugað frv. og leggur einróma til, að það verði samþ.