26.03.1963
Neðri deild: 60. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 881 í B-deild Alþingistíðinda. (828)
219. mál, framboð og kjör forseta Íslands
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Samkv. gildandi lögum er svo ákveðið, að kjör forseta skuli fara fram samkv. kjörskrám yfir alþingiskjósendur. Á þeim tíma, sem þessi lög voru sett, var kjörskrá alþingiskjósenda samin árlega. Nú hefur hins vegar lögum um það efni verið breytt, þannig að þær kjörskrár eru samdar aðeins þegar alþingiskosningar eiga að fara fram. Af þessu leiðir, að nauðsynlegt er að breyta ákvæðum um framboð og kjör forseta, til þess að tryggt sé, að kjörskrá verði ævinlega til taks, þegar það kjör á að fara fram.
Um þetta eru fyrirmæli þessa frv., og tel ég ekki ástæðu til að fylgja því úr hlaði með fleiri orðum.
Ég legg svo til, herra forseti, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.