14.03.1963
Neðri deild: 53. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í B-deild Alþingistíðinda. (849)

177. mál, aðstoð við kaupstaði og kauptún vegna landakaupa

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég mun ekki verða því andvígur, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, nái fram að ganga sem lög á þessu þingi. En mér þykir það ofmælt og að því megi ekki vera með öllu ómótmælt, sem ýmsir ræðumenn hafa sagt, bæði við 1. umr. og sérstaklega við þessa umr., að þessi löggjöf sé, að því er skilja mátti, eingöngu til bóta fyrir þau sveitarfélög, sem þurfa að eignast lönd, og að hin eldri lög frá 1941 hafi verið pappírsgagn, því að hvorugt er rétt. Með ákvæðum þessa frv., ef að lögum verður, eru

sveitarfélögum ætluð lakari kjör á fé, sem þau taka að láni til landkaupa, heldur en verið hefur, bæði lánstíminn styttri og vextir hærri. Og lögin frá 1941 hafa ekki verið pappírsgagn, því að heimild þeirra hefur nokkrum sinnum verið notuð til þess að kaupa lönd eftir ósk hreppsfélaga. Ástæðan til þess, að þetta frv. er lagt fram, er hins vegar sú, að eins og nú er komið, þá hefur reynzt erfitt að fá framkvæmda heimildina frá 1941. Stjórnarvöld hafa ekki treyst sér til þess að framkvæma hana. Lönd hafa hækkað mjög í verði í seinni tíð og fleira breytzt í sambandi við lánamál og annað. Og fleiri en fyrr óska nú eftir því eða eru líklegir til að óska eftir því, að lönd verði keypt. Þessi er ástæðan til þess, að þetta frv. hefur verið flutt, og eftir atvikum mun ég, eins og ég sagði áðan, ekki leggjast gegn því, að þetta frv. verði samþ., og þá í trausti þess, að þá gangi greiðlegar fyrir þau hreppsfélög, sem í hlut eiga, að koma skipulagi á sín mái á þessu sviði, jafnvel þó að með lakari kjörum sé en áður var. Er þess þá að vænta, að á það verði litið síðar, ef hreppsfélögunum reynist erfitt að standa undir þeim byrðum, sem á þau falla af þessum sökum.

Ég hef haft til athugunar að flytja brtt. við eina gr. frv., en mun ekki gera það við þessa umr, og íhuga það nánar, hvort ég tel nauðsynlegt að flytja þá brtt. við 3. umr.