14.03.1963
Neðri deild: 53. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 900 í B-deild Alþingistíðinda. (850)

177. mál, aðstoð við kaupstaði og kauptún vegna landakaupa

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Hvað snertir brtt. þá, sem lögð hefur verið fram skrifl. af hv. 4. landsk., og þau ummæli, sem hann hafði um sína brtt., þá kom þar ekkert nýtt fram frá því, sem kom fram í n., og raunverulega frá því, sem ég skýrði frá í minni framsöguræðu, N. hafði hins vegar ekki haft tækifæri til þess að sjá sjálfa till. eða orðalag hennar. Mér þætti því eðlilegast, að hv. 4. landsk. vildi taka till. aftur til 3. umr. Í því felst ekkert loforð frá minni hálfu um það, að n. fallist á till., mér finnst það eðlileg vinnubrögð, af því að n. hefur ekki sjálf séð orðalagið. Ég hygg, að eins og ég tók fram i minni framsöguræðu, þá fáist ekki meiri hl. alþm. til þess að fylgja till. sem brtt. við þetta frv., og vil ég ekki taka þá áhættu að tefja málið við umr., sem kynnu út af því að spinnast. Hins vegar er þetta slíkur vandi, eins og ég lýsti í minni ræðu, að ég tel, að málið þurfi að undirbúa vel, áður en það er lögfest, og einkum og sér i lagi vegna þess, að það er talið, að það sé mjög varhugavert að setja slíkan skatt eingöngu á takmörkuð lóða- eða landssvæði, eins og hér er gert ráð fyrir í till.

Það er alveg á misskilningi byggt hjá hv. þm., að þetta atriði eigi eins heima í því frv., sem hér um ræðir, eins og ákvæðið um vinnudeilur sem sérstakur kafli í lyfsölulögunum, vegna þess að þar var enginn ágreiningur á milli vinnuveitenda og vinnuþiggjenda um það atriði. Báðir aðilar óskuðu þess eindregið, að sá kafli væri settur inn í löggjöfina. Að öðrum kosti hefði sjálfsagt ekki meiri hl. heilbr.- og félmn. fallizt á, að svo væri gert, svo að það er ekki alveg jöfnu saman að jafna í þessum tveimur málum. Ég skal að öðru leyti ekki ræða þessi atriði.

Um aths. frá hv. 3. þm. Norðurl, e. taldi hann sér þörf á að mótmæla því, sem hér hefði verið sagt um löggjöfina frá 1941, að hún hafi verið eingöngu pappírsgagn og þessi löggjöf, sem nú sé á ferðinni, sé miklu betri en sú löggjöf. Þessum tveimur atriðum óskar hann að mótmæla. Frá mér höfðu ekki komið þau ummæli, að 1. frá 1941 hafi verið pappírsgagn, og þá er það þeirra að svara til þess, sem það hafa látið frá sér fara. Hitt er mín skoðun, að þessi löggjöf sé hollari fyrir sveitarfélögin en löggjöfin frá 1941, og skal ég færa fyrir því nokkur rök og er sá dómur minn engan veginn neinn hæstaréttardómur í þessu ágreiningsmáll milli mín og hv. 3. þm. Norðurl. e. Hann hefur þar sína skoðun og ég mína. En ég vil aðeins benda á, að I. frá 1941 gera ráð fyrir því, að ríkið kaupi landið og leigi það með 41/2 % sveitarfélögum. En í þessu frv. hér er ákveðið að aðstoða sveitarfélögin til þess að kaupa landið, og lánið, sem veitt er til aðstoðar, ber aðeins 5% vexti. Það er því sýnilegt, að með þessu móti nýtur sveitarfélag allrar þeirrar verðhækkunar, sem kynni að verða á landinu, eftir að það hefur eignazt það, en það nýtur ekki, ef ríkissjóður er eigandi að landinu samkv. l. frá 1941. Og þegar litið er á, að það hefur einnig verið sótt mjög fast á að selja lönd, sem ríkið á, til sveitarfélags, eins og t.d. í Vestmannaeyjum, þá er sýnilegt, að hér er betur gert við sveitarfélögin en með l. frá 1941, a.m.k. að mínu áliti.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til þess að ræða þær aths., sem hér hafa verið gerðar. Ég hef ekki séð brtt. frá hv. 3. þm. Norðurl, e., en verði hún komin nægilega snemma fram hér, áður en málið kemur til 3. umr., mun ég að sjálfsögðu reyna að leita eftir áliti n. á efni tillögunnar.