21.03.1963
Neðri deild: 57. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (858)
177. mál, aðstoð við kaupstaði og kauptún vegna landakaupa
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þegar þetta frv. var á döfinni, var það eitt af þeim atriðum, sem ýtarlega voru rædd, hvort verðhækkunarskattur skyldi fylgja þessu frv. eða ekki. En mönnum kom saman um, að það væri svo mikið mál og ekki alveg skylt þessu, að það þyrfti þess vegna að koma fram í sérstöku frv., ef afgr. ætti, ella mundi sjálfu þessu frv. stefnt í hættu. Ég segi þess vegna nei.