16.04.1963
Efri deild: 72. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í B-deild Alþingistíðinda. (880)

230. mál, lántaka fyrir raforkusjóð

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Efni þess frv., sem hér liggur fyrir, er það, að ríkisstj. verði heimilað fyrir hönd raforkusjóðs að taka lán til raforkuframkvæmda, allt að 150 millj. kr. Um ástæðurnar fyrir því, að frv. þetta hefur verið lagt fram, má vísa til grg. fyrir frv.

Eins og nál. á þskj. 632 ber með sér, hafa allir nm., sem viðstaddir voru á þeim fundi, þegar málið var afgr., verið sammála um að mæla með því, en einn hv. nm., hv. 5. þm. Norðurl. e., var fjarstaddur, þegar n. afgreiddi málið.