08.04.1963
Neðri deild: 67. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (904)

234. mál, tannlækningar

Frsm. (Guðlaugur Gíslason):

Hæstv. forseti. Heilbr.- og félmn. hefur haft frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 234, til athugunar og leggur n. einróma til, að það verði samþ. óbreytt.

Lög um tannlækningar eru frá 14. júní 1929, og eru þau orðin nær 34 ára gömul og því ekki nema eðlilegt, að þau þurfi einhverra breyt. við. Gera l. frá 1929 ekki ráð fyrir sérmenntun tannlækna í tilteknum sérfræðigreinum, eins og lagt er til í frv. því, sem hér liggur fyrir. En frv. þetta gerir ráð fyrir, að ráðh. staðfesti reglur um nám sérfræðinga í þessari gr. samkv. till. n., sem skipuð sé prófessor í tannlækningum við læknadeild háskólans ásamt tveim aðilum öðrum, sem tilnefndir skulu af Tannlæknafélagi Íslands. Skulu tannlæknar öðlast rétt til að kalla sig sérfræðinga, ef þeir sanna fyrir nefnd þeirri, sem hér um ræðir, að þeir hafi lokið tilskildu sérfræðinámi í sérgrein, sem viðurkennd er samkv. reglum þeim, sem ráðh. hefur sett þar um, og meðmæli landlæknis fyrir leyfisveitingunni liggja fyrir.

Eins og fram kemur í grg., hefur frv. verið borið fram að ósk Tannlæknafélags Íslands, og hefur það verið borið undir landlækni og læknadeild Háskóla Íslands, og hafa báðir þessir aðilar fallizt á efni þess. Leggur heilbr: og félmn. til, að það verði samþ. óbreytt.