14.03.1963
Efri deild: 56. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 955 í B-deild Alþingistíðinda. (936)

54. mál, lyfsölulög

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, var samþ. í Nd, með tiltölulega lítilvægum breyt., og var þar ekki ágreiningur um meginefni málsins, heldur einstök aukaatriði, sem ástæðulaust er að rekja. En allir dm. virtust sammála um, að mikil þörf væri á þeirri löggjöf, sem hér um ræðir. Þó að þeim kæmi ekki öllum saman um þessi aukaatriði, sem ég minnist á, þá töldu þeir mikinn feng í því að fá löggjöfina í heild. Frv. er ávöxtur áratuga undirbúningsvinnu, sem margir góðir menn hafa að komið og ástæðulaust er að rekja að þessu sinni. Má það telja mikið afrek, sem unnizt hefur, ekki sízt fyrir forgöngu núv. landlæknis, dr. Sigurðar Sigurðssonar, að að lokum hefur náðst svo víðtækt samkomulag um málið sem raun ber vitni. Mörg frv. þessa efnis hafa áður verið lögð fram og ætíð strandað á því, að þeir aðilar, sem hér eiga mests í að gæta, bæði vegna starfa sinna, sérfræði og hagsmuna, hafa verið ósammála um meginatriði málsins. Nú eru þessi viðfangsefni leyst, og tel ég því, að það megi vænta þess, að frv. fái einnig hér greiðan framgang. Lyfsölulöggjöf er nú mjög í brotum, sumt þar í að minnsta kosti tveggja alda gamalt og á engan veginn við um nútímastarfshætti, og jafnvel þau ákvæði, sem til eru, svo sundurlaus og ófullkomin, að lítt verður við unað nú á dögum.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða meir um málið, en legg til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.