16.11.1962
Efri deild: 17. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í B-deild Alþingistíðinda. (94)

98. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Alfreð Gíslason læknir:

Herra forseti. Aðeins örfá orð. — Hæstv. heilbrmrh. sagði í upphafi ræðu sinnar áðan, að þetta mál hefði verið rætt á þingi áður og þess vegna ekki verið talin ástæða til að rekja gang þess nánar nú. Víst var þetta rætt í tilefni fsp. fyrir skömmu í Sþ. En málið var ekki rætt efnislega, og ég man mjög greinilega, að hæstv. dómsmrh. tók fram einu sinni eða oftar, að hann gerði það með vilja að forðast að rekja efnisatriði málsins að þessu sinni. Ég veit, að þessi hæstv. ráðh. hefur gott minni og þessi eigin orð man hann áreiðanlega. M.ö.o.: efnisatriði málsins, forsagan, hafa aldrei verið rakin hér á Alþingi.

Hæstv. heilbrmrh. vitnaði til formanns Læknafélagsins. Mér skildist, að hann vildi halda því fram, að formaðurinn væri eftir atvikum ekki óánægður með þessa niðurstöðu, og bætti því við: enda þótt vitað væri, að læknar hefðu ekki fengið allt fram með þessari niðurstöðu. En mér er spurn: Hafa læknarnir fengið nokkuð fram af því, sem þeir óskuðu? Ég mótmæli því algerlega. Þeir hafa ekki fengið neitt fram af sínum kröfum enn í dag. Og enginn veit nú, hvort þeir fá það nokkru sinni í sambandi við þetta.

Ég vil aðeins undirstrika það enn á ný, að ég ávíta hæstv. ríkisstj. fyrir alla hennar framkomu í þessu máli. Ég tel, að hún hafi gert allt mögulegt í þessu máli, en allt annað en það, sem henni bar að gera. Ef hún vildi ekki hækka laun þessara manna eða bæta þeirra kjör, sem út af fyrir sig var' afstaða, þá bar henni að gera það eitt að sleppa þessum mönnum frá nauðung og auglýsa stöðurnar lausar með þeim kjörum, sem henni sýndist. Þetta var það eina, sem hæstv. ríkisstj. bar að gera sem lýðræðislegri stjórn, sem metur frelsi þegna sinna einhvers. En það eina gerði hún ekki.