14.03.1963
Efri deild: 56. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (959)
196. mál, almannatryggingar
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Undanfarin 3 ár hafa verið gerðar mjög veigamiklar breytingar á almannatryggingalögunum. Það hófst með hækkun bótanna 1960 í sambandi við efnahagsráðstafanir ríkisstj., þar sem t.d. var fjölgað þeim, sem fjölskyldubóta nutu, og bætur yfirleitt mjög hækkaðar frá því, sem var áður. Síðan hefur á árinu 1960 verið gerð sú breyting, að skerðingarákvæðið svokallaða hefur verið afnumið, en þetta ákvæði var heldur illa þokkað af gömlu fólki, sem ellilífeyris átti að njóta. En þetta ákvæði í gömlu tryggingalögunum var á þann hátt, að þegar tekjur viðkomandi ellilífeyrisþega höfðu náð vissu marki, byrjuðu lífeyrisgreiðslurnar að skerðast, síðan þegar tekjur viðkomandi manns eða konu höfðu náð öðru marki, hurfu þessar lífeyrisgreiðslur með öllu. Afnám þessara ákvæða var svo í því fólgið, að gömlu fólki var heimilað átölulaust og án nokkurrar skerðingar á lífeyrisgreiðslunum að vinna, eftir því sem það mátti og án þess að ellilífeyririnn skertist. Þetta var mjög mikil bót frá því, sem áður var, og vel séð af ellilífeyrisþegum.
Þriðja stórbreytingin, sem gerð hefur verið á 1., var svo gerð á þessu þingi, þegar afnumin var skiptingin í verðlagssvæði, sem áður hafði verið í gildi. En skv. fyrri lögum var landinu skipt í tvö verðlagssvæði, annars vegar þéttbýlli staðina og hins vegar þá staði, þar sem byggð var ekki eins samanþjöppuð. Bæði voru greiðslur til trygginganna frá þessum stöðum og bótagreiðslur frá tryggingunum til þeirra allverulega mismunandi eftir því, á hvoru svæðinu menn áttu heima. Þetta ákvæði mun upphaflega hafa verið sett inn í l. vegna þess, að það hafði verið mismunur á framfærslukostnaði á þessum stöðum, á þéttbýlli stöðunum og hinum, þar sem dreifbýlið var meira. Nú má segja, að þessi munur á framfærslukostnaði, hafi hann yfirleitt nokkurn tíma verið nokkur að ráði, þá sé hann að mestu eða öllu niður fallinn og þess vegna ekki réttlátt að gera mönnum svo mishátt undir höfði eins og gert var með því að skipta landinu á þennan hátt í 2 verðlagssvæði.
Allar þessar breyt. hafa verið undirbúnar af sérstakri n., sem skipuð var á árinu 1960 og í áttu sæti ráðuneytisstjórinn í félmrn., Hjálmar Vilhjálmsson, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, Sverrir Þorbjarnarson, Gunnar Möller hrl., frú Jóhanna Egilsdóttir og frú Sigríður J. Magnússon. Þessi n. hefur haft það verk með höndum að undirbúa þessar þörfu breytingar, sem gerðar hafa verið, samtímis því sem n. hefur unnið að gagngerri endurskoðun á öllum almannatryggingunum, og það er það frv. frá n., sem hér liggur nú fyrir þessari hv. d. til 1. umr. Eins og hv. dm. hafa séð, fylgir frv. mjög ýtarleg grg., þar sem hvert einstakt atriði er rakið, gerð nákvæm grein fyrir hverri gr. frv. og lýst öllum aðdraganda að samningu frv. og rökunum, sem til breyt. liggja, sem gerðar eru.
Ég sé út af fyrir sig ekki ástæðu til þess að fara mjög langt út í þetta mál, en skal aðeins leyfa mér að rekja helztu efnisatriði frv.
Fyrsta meginbreytingin, sem gerð er, er sú, að allir lífeyrissjóðir verði frá gildistöku l. viðbótarsjóðir, þ.e.a.s. allir fái bætur almannatryggingalaganna frá 1. jan. 1964 og bætur lífeyrissjóðanna verði viðbótarbætur við bætur almannatryggingalaganna. Gert er ráð fyrir, að uppgjör eigi sér stað fyrir liðinn tíma á milli hvers lífeyrissjóðs og almannatrygginganna. Enn fremur dragast baetur almannatrygginganna frá bótum lífeyrissjóðs til einstakra bótaþega, unz bótaákvæði sjóðanna hafa verið endurskoðuð og greiðsla farið fram til almannatrygginganna til þess að jafna það, sem vangreitt hefur verið í þær, vegna þess að viðkomandi aðilar að lífeyrissjóðunum hafa ekki greitt full framlög til trygginganna. Þegar ýmsir lífeyrissjóðanna voru stofnaðir, var enn skerðingarákvæði almannatryggingalaganna í gildi, þannig að ef þeir hefðu haldið áfram að greiða til almannatrygginganna eins og aðrir, þá hefðu þeir þó í flestum tilfellum ekki fengið neinar greiðslur frá þeim, vegna þess að skerðingarákvæðið kom í veg fyrir það, og tekjurnar frá hinum sjóðunum, sérsjóðunum, urðu meiri en þurfti til þess, að skerðingin kæmi að fullu fram.
Þetta mun vera ástæðan til þess, að flestir sjóðanna, sem áður voru stofnaðir, fengu til þess heimild hjá stjórn almannatrygginganna að leggja niður mjög verulegan hluta eða um 70% af venjulegu iðgjaldi til trygginganna, og þá um leið ákveðið, að þeir nytu ekki bóta frá þeim á vissum sviðum, þ.e. ekki úr lífeyristryggingunum. Með breytingu þeirri, sem gerð var, þegar skerðingarákvæðið var afnumið, sem ég minntist á í upphafi, breyttist þessi staða mjög verulega, þ.e.a.s. ef menn héldu áfram að greiðu til almannatrygginganna sín iðgjöld, þó að þeir væru meðlimir í sérsjóðunum, þá fengu þeir bætur úr báðum stöðunum, eftir að skerðingarákvæðið var numið úr gildi. Og það hefur líka orðið reynslan, að eftir að þetta var gert, eftir að skerðingarákvæðin voru felld niður, hafa yfirleitt þeir lífeyrissjóðir, sem stofnaðir hafa verið síðan, ekki sótt um að verða undanteknir iðgjaldi almannatrygginganna og þar með vitandi vits farið inn á þá braut að greiða til tveggja sjóða og fá þá lífeyrisgreiðslu frá þeim báðum.
Náttúrlega verða nokkrir erfiðleikar á því fyrir þessa sérsjóði að borga upp iðgjaldamismuninn, sem orðið hefur við það, að þeirra meðlimir voru undanþegnir iðgjaldagreiðslu til almannatrygginganna, en það er skýrt ákvæði l. um, að það skuli gert, og bæturnar ekki að fullu greiddar frá báðum aðilum, fyrr en þetta hefur komið til framkvæmda. Þetta verða að vísu nokkur útgjöld, og hjá sumum sérsjóðunum verða þau allmikil, en í frv. er líka gert ráð fyrir nokkru tímabili, sem hægt verði að dreifa þessum greiðslum á, eða 10 ára bili, sem hægt verði að semja um mest, til þess að gera upp sakirnar á milli sérsjóðanna og almannatrygginganna. Þetta er mjög veigamikil breyt. fyrir þá, sem aðilar eru að sérsjóðunum, þar sem þeir eftir gildistöku laganna fá fulla lífeyrisgreiðslu frá almannatryggingunum til viðbótar því, sem sérsjóðirnir greiða.
Önnur meginbreytingin er sú, sem nú er gert ráð fyrir, að fjölskyldubætur verði greiddar með öllum börnum. En nú eru fjölskyldubætur, eins og kunnugt er, ekki greiddar með börnum, sem njóta barnalífeyris eða eiga rétt til meðlags. Fjölskyldubætur eru nú rétt rúmar 3000 kr. á ári með hverju barni, sem þeirra nýtur. Í frv. er gert ráð fyrir, að sú upphæð verði nálega óbreytt, eða sléttar 3000 kr. N. taldi eðlilegt, að fjölskyldubætur væru greiddar vegna allra barna, annaðhvort sem sjálfstæð greiðsla eða innifaldar í öðrum bótum. Til athugunar kom hjá n. að lækka barnalífeyri vegna þessara breytinga, en með hliðsjón af því, að barnalífeyrir er ekki hærri hér á landi en eðlilegt má telja, taldi n. ekki fært að leggja til, að hann yrði lækkaður, svo að neinu næmi. Þau börn, sem meðlög eru skilvíslega greidd með af barnsföður, njóta engra fjölskyldubóta, eins og nú er, og fá engar bætur í stað fjölskyldubóta. Hér er um að ræða misrétti, sem nauðsynlegt var talið að lagfæra, og er á þennan hátt lagfært nú, að öll börn, hvort sem þeim er greiddur barnalífeyrir eða þau njóta meðlagsgreiðslna frá föður, sem er utan fjölskyldunnar, fá þær eins og aðrir.
Þetta eru tvær aðalefnisbreyt. frv. En til viðbótar eru svo nokkur atriði, sem að vísu eru þýðingarmikil, en þó ekki eins og þessi tvö höfuðatriði, sem í frv. er fjallað um. Fæðingarstyrkur er nú 2500 kr. rúmar, en í frv. er lagt til, að hann verði hækkaður upp í 4000 kr. Hækkunin á að nokkru leyti rót sína að rekja til þess, að daggreiðslur á sjúkrahúsum hafa hækkað og á fæðingarstofnunum, en líka til hins, að þessi styrkur var alltaf talinn tiltölulega lágur. Hann hækkar, eins og ég sagði, úr 2500 kr. upp í 4000 kr., eða um 56%.
Þá er líka lagt til, að ekkjulífeyrir verði nokkuð hækkaður frá því, sem nú er, enda eru þessar bætur tiltölulega með því lægsta, sem greiddar eru af almannatryggingunum. Þá eru ákvæði um, að dánarbótum vegna slysa verði breytt, þannig að greiðslur í einu lagi til ekkju eða ekkils, eins og nú er, verði felldar niður, en í staðinn komi bætur, sem greiddar verði mánaðarlega í samtals 8 ár. Auk þessara breyt. á greiðslumátanum er lagt til, að bætur þessar verði hækkaðar mjög verulega.
Þá eru ákvæði um, að lágmark sjúkradagpeninga verði hækkað mjög verulega, og ákvæðin rýmkuð að því er varðar bótaþegana, sem dagpeninganna njóta. Þessir sjúkradagpeningar nema nú kr. 28,40 fyrir einhleypa og kr. 7.10 til viðbótar vegna eiginkonu og barns allt að þremur. Þessi dagpeningagreiðsla er hækkuð með frv. upp í 68 kr. fyrir kvænta menn og giftar konur, og 60 kr. fyrir aðra, og er þar um tvöföldun dagpeninganna að ræða frá því, sem nú gildir.
Þá er í frv. það nýmæli, að því er varðar greiðslur slysa- og sjúkradagpeninga, að það er lagt til, að slíkar bætur verði greiddar til atvinnurekanda, ef hlutaðeigandi launþegi er á launum hjá honum á þeim tíma, sem bæturnar eru greiddar. Það hefur tíðkazt mjög upp á síðkastið að semja um dagpeningagreiðslur, bæði vegna slysa og veikinda, í ýmsum fyrirtækjum, þannig að atvinnurekandi borgar nú í sumum tilfellum allt að því full daglaun, ef menn verða veikir eða verða fyrir slysi, en þá fellur um leið niður greiðslan frá Tryggingastofnun ríkisins á því tímabili. Og atvinnurekendur hafa borið fram þá ósk, sem virðist sanngjörn, að þeir fái þá að njóta dagpeningagreiðslunnar í þeim tilfellum, sem þeir borga þá, þegar sá slasaði eða sjúki nýtur þeirra ekki heldur, því að Tryggingastofnunin borgar ekki þessa dagpeninga, eins og ég sagði, þegar viðkomandi atvinnurekandi greiðir.
Þá er ákv æði í frv. um það, að verksvið héraðssjúkrasamlaga verði aukið, þannig að þau greiði kostnað vegna sjúkrahúsvistar þeirra samlagsmanna, sem lengri sjúkrahúsvistar þurfa en 30 daga á hverju ári. Einn meginerfiðleikinn víð sjúkrasamlögin er sá, að mörg þeirra eru svo fámenn og vanmegnug, að lendi þau í því að þurfa að borga lengi með einhverjum meðlim sínum, getur það orðið þeim um megn. Með ákvæðunum um héraðssamlög, sem ekki er mjög langt síðan sett voru í lög, var meiningin sú, að innan hvers sýslufélags væri jafnað út kostnaðinum á milli hinna einstöku samlaga, þar sem mörg smásamlög eru, og á þann hátt reynt að hjálpa þeim fámennustu, ef til mikillar bótagreiðslu þyrfti að koma af þeirra hálfu. Þetta ákvæði hefur, að því er ég bezt veit, aldrei komið til framkvæmda. En það er nú ætlað, að þessi starfsemi færist inn í þann farveg, að héraðssamlagið kosti sjúkrahúsvist þeirra samlagsmanna, sem þurfa að hafa lengri sjúkrahúsvist en einn mánuð á ári, og má segja, að á þann hátt sé líka orðið við þeim upprunalega tilgangi héraðssamlaganna að jafna byrðarnar á milli þeirra, sem vanmegnugastir eru á svæðinu, og hinna, sem betur mega.
Allar þessar breyt. hafa eðlilega í för með sér allverulegan kostnað. Í frv. eða í grg., sem frv. fylgir, er á bls. 48 og 49 gerð ýtarleg grein fyrir þeim kostnaðarauka, sem leiðir af þeim breyt., sem í frv. felast. Það er talið, að þessi kostnaður verði í heild 54 millj. kr. rúmar. Sá kostnaður skiptist á ríkissjóð, hina tryggðu og sveitarsjóðina og atvinnurekendur. Ríkissjóður mun koma til með að borga 31.4 millj., hinir tryggðu 10.7 millj. kr., sveitarsjóðirnir 5.8 millj. kr. og atvinnurekendurnir 6,2 millj. kr., eða samtals 54.1 millj. kr. Og það er líka gerð grein fyrir, hvernig þessi kostnaður skiptist á slysatryggingar, sjúkratryggingar og lífeyristryggingar.
Þá ber að geta þess, að á móti þessari útgjaldaaukningu getur komið væntanlega hjá ríkinu nokkur fjárhæð, sem kynni að sparast á 18. gr. fjárlaga. Á þá grein hafa verið teknar ýmsar viðbótarupphæðir við lífeyristrygginguna, sem ríkissjóður hefur greitt beint til þeirra manna, sem fjvn. og Alþ. hafa álítið, að þess væru verðugir og hefðu þörf fyrir það. Þegar nú full greiðsla frá almannatryggingunum kemur í viðbót við greiðslurnar úr lífeyrissjóði, t.d. lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og fleirum, þá má vænta þess, að það verði ekki eins mikil þörf fyrir viðbótargreiðslur úr ríkissjóði beint á fjárlögum, eins og verið hefur, og gæti þá farið svo, að mjög veruleg upphæð sparaðist einmitt á greiðslu skv. 18. gr. af þessum orsökum.
Þetta, sem ég hef nú rakið, er meginefnið í því frv., sem hér liggur fyrir. En í frv. eru líka teknar upp þær breyt., sem gerðar hafa verið upp á síðkastið, og felldar inn í meginmál laganna. Sömuleiðis eru margar greinar, sem breytt er, afleiðing af þeim breyt., sem þegar hafa verið gerðar, og er allt það rakið í grg. með frv. Gildistaka laganna er miðuð við 1. jan. næsta ár, og kemur frv. eða lögin, ef frv. verður að lögum, sem ég vil vænta, ekki til framkvæmda fyrr en þá. Er þetta fyrst og fremst vegna þess, að á fjárl. er ekki ætlað fé til þessarar breyt. eins og að undanförnu hefur verið ætlað til þeirra breyt., sem þá voru gerðar, og því verður að taka upp þessar fjárfúlgur, sem ríkissjóði er ætlað að greiða, á fjárlagafrv. 1964, og þess vegna ekki ætlað að láta þau taka gildi fyrr en í ársbyrjun næsta ár.
Ég þarf ekki orðum að því að eyða, hversu geysiþýðingarmikil almannatryggingalögin eru, ekki einasta fyrir þá, sem bótagreiðslu njóta, heldur einnig fyrir allt efnahagskerfi þjóðarinnar. Það mun nú vera svo, að bótagreiðslur trygginganna nemi í dag að óbreyttum lögum 834 millj. kr. rúmum, og er það sú mesta tilfærsla á fjármunum, sem þekkist í landinu til þeirra, sem sjúkir eru, gamlir, hafa orðið fyrir slysum eða veikindum eða einhverju þess háttar, og má segja, að lögin, sérstaklega eins og þau nú verða með þeim breyt., sem hér er lagt til að gerðar verði, eru orðin nokkurn veginn á borð við það, sem bezt þekkist annars staðar.
Ég held, að ég þurfi svo ekki að hafa um þetta fleiri orð. Grg. er, eins og ég sagði, ákaflega ýtarleg, og þar geta menn lesið sér til um einstök efnisatriði og gang málsins í heild, kostnaðarreikninga og ýmislegt annað, sem dregið er fram til stuðnings þeim till., sem gerðar eru.
Ég vil svo leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.