14.03.1963
Efri deild: 56. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 985 í B-deild Alþingistíðinda. (961)
196. mál, almannatryggingar
Ólafur Jóhannesson:
Herra forseti. Ég skal ekki á þessu stigi fjölyrða um það merkilega löggjafarmálefni, sem hér liggur fyrir. Ég vil aðeins leyfa mér að láta í ljós ánægju mína yfir því, að þetta frv. er hér fram komið. Ég skal játa, að mér hefur ekki unnizt tími til að lesa frv. þetta gaumgæfilega yfir, enda er hér um að ræða mikinn og ýtarlegan lagabálk. En ég þykist þó hafa séð það við fljótlegan yfirlestur frv., að það geymi ýmsar breyt. frá núgildandi löggjöf, – breytingar, sem horfa til bóta.
Það þarf sjálfsagt ekki að eyða orðum að því hér, hversu þýðingarmikil löggjöf almannatryggingalöggjöfin er. Almannatryggingarnar eru nú viðurkenndar af öllum mjög mikilsverðar. Þær hafa veitt og veita öldruðu fólki og öryrkjum ómetanlegan stuðning. Jafnframt gegna þær nú orðið mjög þýðingarmiklu þjóðfélagslegu hlutverki, eins og hæstv. ráðh. kom inn á í sinni framsöguræðu. Það er m.a. ljóst, að vegna almannatrygginganna hefur sú breyt. á orðið hér á landi, að mikið af þeirri framfærslu, sem áður var nefnd fátækraframfærsla, hefur færzt yfir í tryggingaform og tryggingakerfi, og munu flestir eða ég hygg nær allir, sem til þekkja, ljúka upp einum munni um, að það hafi verið til mikilla bóta. Ég held þess vegna, að það blandist engum hugur um það nú, að með setningu l. um almannatryggingar eða alþýðutryggingar í öndverðu hafi merkilegt spor verið stigið. En sú löggjöf var, eins og kunnugt er, í öndverðu sett fyrir atbeina Alþfl. og Framsfl., eða samstjórn þeirra flokka átti á sínum tíma frumkvæði að þeirri löggjöf.
Eins og eðlilegt var um frumsmíð, komu í ljós á þeirri löggjöf ýmsir annmarkar, sem úr þurfti að bæta. Það er þess vegna ofur eðlilegt og skiljanlegt, að það hafi smám saman þurft að gera ýmsar breyt. á þessari löggjöf, og það hefur líka verið gert. Löggjöfin hefur þannig smám saman verið löguð eftir breyttum þörfum og að fenginni reynslu. Ég hygg, að það megi segja um þær breyt., sem löggjöfin hefur þannig tekið, að þær hafi yfirleitt horft til bóta, en þó getur að sjálfsögðu orkað tvímælis um sumar þeirra. Og einkanlega gátu auðvitað á sínum tíma verið skiptar skoðanir um þá stefnubreytingu í þessum málum, sem átti sér stað, þegar horfið var frá því sjónarmiði, sem tryggingalöggjöfin var upphaflega byggð á, sem sé sjóðsmyndun, og að niðurjöfnunarkerfi. Ég skal hins vegar játa, að eins og tímarnir hafa breytzt og aðstæður eru allar nú og vegna þess, hve peningagengið hefur verið hér á hverfanda hveli, þá hefði verið erfitt að halda við hið upphaflega form um myndun sjóða. En þrátt fyrir það, að það hafi þannig getað verið skiptar skoðanir um þvílíkar breyt. í þessum efnum, þá held ég, að það sé rétt hjá mér, að menn hafi hér á hv. Alþ. yfirleitt, oftast nær a.m.k., viljað styðja þær breyt. á almannatryggingalögunum, sem til bóta hafa miðað og stefnt hafa í þá átt að gera almannatryggingakerfið fullkomnara en þat var áður.
Ég skal ekki á þessu stigi fara út í það að ræða um einstakar breyt. í þessu frv., en eins og ég sagði áðan, sýnist mér við lauslegan og fljótlegan yfirlestur þess, að þar sé um að ræða ýmsar breytingar, sumar meiri háttar, aðrar ef til vill minni háttar, sem til bóta horfa. Að vísu er það svo, að það má segja, að sumar þær meginbreyt., sem felast í þessu frv. miðað við heildarlöggjöfina áður, eru þegar komnar í lög og hafa verið settar í lög á þessu eða á síðustu alþingum, eins og hæstv. félmrh. gerði grein fyrir, svo sem afnám skerðingarákvæðisins og afnám skiptingar landsins í mismunandi verðlagssvæði, en þessar breyt. eru teknar upp í þetta frv., og þessu frv. er ætlað þar með að staðfesta þær. Ég álít, að þær breyt. hafi báðar miðað í rétta átt, og kom það fram af hálfu Framsfl., þegar þau mál voru hér til umræðu á sínum tíma, að ég hygg.
Um aðrar þær meginbreytingar, sem þetta frv. hefur að geyma, eins og þá að breyta hinum sérstöku lífeyrissjóðum, sem löggildingu hafa fengið, í viðbótarsjóði við almannatryggingarnar, þá er það að segja, að ég held, að sú breyt. sé tvímælalaust til bóta, enda hefur verið horfið að því á allra síðustu árum, að sú löggjöf, sem þá hefur verið sett um sérstaka viðbótarsjóði, eins og t.d. um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum, hefur verið við það miðuð, að þar væri um að ræða viðbótartryggingu. Ég hygg sem sagt, að sú breyt. sé til bóta. Hins vegar vildi ég leyfa mér í því sambandi að vara við ótímabærri bjartsýni um það, að þessi breyt., sem þarna er gerð, muni leiða til verulegs sparnaðar á 18. gr. fjárlaga. Að sjálfsögðu mun það sýna sig seinna meir, hvort það verður eða ekki, en vissulega má orða það, að það gæti komið frekar til mála að stöðva eitthvað þá þróun, sem þar hefur átt sér stað, eftir að þessi breyt. hefur verið gerð á almannatryggingalögunum.
Ég tek alveg undir það, sem hv, síðasti ræðumaður sagði um fjölskyldubæturnar, að ég tel þá breyt., sem þar er fyrirhuguð um að láta þær ná til allra barna, vera til hins betra, og sömuleiðis tek ég alveg undir það, sem sagt var um þá hækkun, sem ráðgerð er á fæðingarstyrk og ekkjulífeyri, og sömuleiðis finnst mér sú breyt., sem gerð er varðandi slysapeninga og sjúkradagpeninga, til bóta, og eins það fyrirkomulag, sem gert er ráð fyrir að tekið sé upp á greiðslu eða útborgun dánarbóta.
Það er að sjálfsögðu svo, að þegar um svona umfangsmikinn lagabálk er að tefla, þá geta verið í honum ýmis atriði, sem tvímælis geta orkað, og það er þess vegna sjálfsagt, að þetta frv. sé gaumgæfilega athugað í þeirri n., sem það fær til meðferðar, og að þeirri athugun lokinni liggur að sjálfsögðu ljósar fyrir um einstök atriði í sambandi við þetta mál, og skal ég ekki fara lengra út í þá sálma að ræða einstök atriði frv., og vildi aðeins, eins og ég drap á í upphafi máls míns, láta fram koma þá afstöðu við 1. umr. málsins, að Framsfl. er fylgjandi þeim breyt. á almannatryggingalögunum, sem til bóta horfa. Það hefur hann verið að undanförnu og hefur, eins og ég áðan drap á, tekið undir þær breyt., sem í þá átt hafa stefnt.
Að sjálfsögðu hefur stundum komið fyrir, að skoðanir hafa verið skiptar um það, hvort nógu langt hefur verið gengið. Þar geta menn haft um eitthvað mismunandi sjónarmið, en auk þess hlýtur svo hin hliðin að koma til greina, spurningin um það, hvað getan leyfir. En um leið og ég læt þetta koma fram hér, að við munum fylgja í höfuðatriðum þeim breyt., sem hér er lagt til að gerðar séu á almannatryggingalögunum, og um leið og ég minni á það og undirstrika, að það hefur vissulega ekki staðið á framsóknarmönnum í þessu efni og ekki á stjórnarandstöðunni yfirleitt, að ég held, vek ég athygli á því, að það hefur talsvert borið á því að undanförnu, að núv. hæstv. ríkisstj. hafi alveg sérstaklega fært sér og sinni stjórnarstefnu til gildis þær breyt. á almannatryggingalögunum, sem gerðar hafa verið á þessu stjórnartímabili og fyrirhugaðar eru. Og ekki á það hvað sízt við um flokk hæstv. félmrh. Þegar maður les þær hástemmdu lýsingar, gæti maður álítið, að þar hefði verið við ákaflega ramman reip að draga, það hefði kostað mikil átök og mikla baráttu á þessum undanförnu þingum, á þessu núv. stjórnartímabili, að koma þessum breyt. fram. En sannleikurinn er sá, eins og ég hef þegar drepið á, að það má segja, að endurbætur þær á tryggingalöggjöfinni, sem gerðar hafa verið á þessu tímabili, hafi vissulega ekki verið neitt sérmál núv. hæstv. ríkisstj., heldur hafa, að ég held, allir þingflokkar stutt þau mál. Og ég bendi líka í því sambandi á það, að yfirleitt hafa þau frv., sem um þessi efni hafa fjallað, verið undirbúin af n., að vísu stjórnskipaðri, en þó n., sem í hafa átt sæti menn með ólíkar stjórnmálaskoðanir.
Þegar á þetta er litið, þá held ég, að það sé að vísu skiljanlegt og kannske afsakanlegt, þó að menn vilji eigna sér slíkar fjaðrir til þess að skreyta sig með. En ég held, að það verði naumast með réttu lagi gert, nema þá að láta fylgja með alla söguna, þ.e. að allir hafi stutt þessi mál. Og það er að mínu viti til sóma fyrir Alþingi Íslendinga og fyrir okkur alla, sem hér sitjum, að við höfum yfirleitt getað átt samleið í þessum málefnum, sem eru vissulega góð málefni.
Það er út af fyrir sig, eins og komið er, skiljanlegt, að gildistaka þessara laga sé miðuð við næstu áramót, þar sem ekki hefur verið gert ráð fyrir fjáröflun eða útgjöldum í fjárl. til þess að mæta þeirri útgjaldaaukningu, sem stafar af samþykkt þessara laga. Við því er náttúrlega ekkert að gera, úr því sem komið er. Ég verð þó að segja það, að ég hefði talið æskilegra, að það hefði verið gert ráð fyrir þessu í fjárl. fyrir yfirstandandi ár. Það hefði verið auðvelt vegna þess, að ég hygg, að endurskoðun þessara l. hafi verið það langt komið á því tímabili, þegar fjárlfrv. var undirbúið, að það hefði þá mátt gera sér grein fyrir því, hver útgjöld þar af mundu stafa, og einmitt þess vegna verið hægt að gera ráð fyrir þessum útgjaldapósti í fjárl. og gera ráðstafanir til þess að afla tekna á móti. Þá hefði mátt láta þessar réttarbætur, sem í þessu frv. felast, öðlast gildi þegar í stað. Það hefði verið réttara að mínum dómi. En úr því sem komið er, þá skal ekki um það fengizt.