14.03.1963
Efri deild: 56. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 989 í B-deild Alþingistíðinda. (962)

196. mál, almannatryggingar

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Ég þarf ekki mörgu að svara þeim hv. þm., sem hér hafa tekið til máls um frv., því að höfuðefnið í ræðum þeirra beggja var það að fara viðurkenningarorðum um frv. í heild sinni. Og þó að einstök atriði megi náttúrlega ævinlega deila um, þá var viðurkennt af þeim báðum, að heildarstefnan, sem í frv. kæmi fram, sé rétt og málið gott og þarft.

Hv. 9. þm. Reykv. byrjaði sitt mál á því að láta í ljós óánægju sina, verð ég að segja þó, yfir því, að sú n., sem með málið fór, hafi verið stjórnskipuð, en ekki þingkjörin, og taldi, að það væri næstum því að segja alveg öruggt, að verk þannig skipaðrar n. hlyti að vera lakara en þingskipaðrar n., sem hefði fengið málið til meðferðar. Ég er honum alls ekki sammála um þetta. Ég held, að það, sem á mestu velti í þessu sambandi, sé það, að þarna komi fram þekking á þeim málum, sem um er fjallað, og vilji til þess að leysa þau á þann skynsamlegasta hátt, sem fyrir hendi er. Ég er ekki í vafa um það, að ef kosið hefði verið í n. eftir pólitískum styrkleika flokkanna hér á Alþ., þá hefði ekki verið trygging fyrir því að fá jafnhæfa menn til starfa eins og hafa fengizt. Ég tel, að með þeim, sem um málið hafa fjallað, bæði ráðuneytisstjóranum í félmrn., forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins og formanni Sjúkrasamlags Reykjavíkur og tveimur konum, sem gerþekkja það verkefni, sem hér liggur fyrir, þá sé það ein sú sterkasta samsetning á n., sem hægt sé að hugsa sér, ég hef enga ástæðu til þess að ætla, að málinu hefði verið betur ráðið til lykta, þó að n. hefði verið kosin eftir pólitískum línum hér á hv. Alþ. Það má náttúrlega segja, að þar standi fullyrðing á móti fullyrðingu, en ég held þó, að þarna hafi komið fram í starfi n. þeir beztu kraftar, sem völ var á til þess að leysa málið. Og til viðbótar má svo geta þess, að þarna áttu líka hlut að tryggingafræðingur Tryggingastofnunar ríkisins, Guðjón Hansen, sem var með n. alla tíð og hefur reynzt mjög þarfur maður og mjög fróður um alla þá hluti, sem hér koma til greina. Loks má geta þess, til þess að öllu sé til skila haldið, að með n. starfaði að einum málaflokki fulltrúi atvinnurekenda, framkvæmdastjóri þess félagsskapar, sem ekki var talið óeðlilegt og raunar sjálfsagt, þar sem atvinnurekendur greiða allan kostnaðinn við slysatryggingastarfsemina, og þess vegna ekki óeðlilegt, að hann kæmi þar að. En ég tel, að með þessu fólki öllu hafi verið gerð tilraun til þess að fá þann bezta árangur, sem hægt var í málinu.

Þá minntist hv. sami þm., hv. 9. landsk., á ýmislegt í frv., sem hann taldi til mikilla bóta, eins og raunar báðir hv. þm. gerðu, sem til máls tóku, en svo minntist hann á nokkur atriði, sem hann felldi sig þó ekki við. Stærsta atriðið, sem hann minntist á, var það, að bótagreiðslur almannatrygginganna væru ekki vel tryggðar, eða m.ö.o., að það væri á hverjum tíma ekki tryggt, að bótagreiðslurnar til bótaþeganna hefðu sama verðgildi. Út af þessu skal ég aðeins segja það, eins og raunar kom fra,m í ræðu hv. 3. þm. Norðurl, v., að þegar horfið var frá því að safna í sjóði, eins og upphaflega var gert, og faríð inn á þá braut, sem nú er, að jafna niður eða greiða allar bæturnar jafnóðum og þær falla til greiðslu, þá er ekki eins hættulegt, að hér séu ekki verðtryggðar upphæðir, eins og annars mundi hafa verið, enda sýnir það sig, að bara á síðustu tveim árum hafa farið fram mjög verulegar hækkanir á bótagreiðslunum í hlutfalli við þær hækkanir, sem opinberir starfsmenn hafa fengið á sín laun á þessu tímabili. Í fyrra skiptið voru með l.. nr. 95 1961 hækkaðar bæturnar um 13.8% frá 1. júlí 1961 að telja og um 4% í viðbót 1. júní 1962. En í síðara skiptið var hækkunin 7%, sem tók gildi frá 1. júní 1962, en að vísu tók einnig til elli- og örorkulífeyrisins, vegna þess að þessi endurskoðun, sem hér liggur fyrir, stóð þá yfir. M.ö.o.: það hefur verið regla að leitast við að hafa bæturnar eða bótagreiðslurnar með svipuðu álagi og laun opinberra starfsmanna hafa fengið. Það er að vísu ekki verðtrygging í þeim skilningi, sem hv. ræðumaður vildi vera láta, en það er þó, að mér finnst, komin á það nokkurs konar hefð, að bótagreiðslurnar hækki svipað og laun almennt í landinu hafa hækkað, eða verðlagið skulum við kannske heldur segja — í landinu hefur hækkað.

Þá minntist hv. þm. á, að fjölskyldubætur og barnalífeyrir hefðu lækkað samkv. frv. Það er að vísu rétt, að það má kalla það lækkun. En það er í báðum tilfellunum þannig, að það eru teknar tölur, sem standa á heilu hundraði í staðinn fyrir eyri eða brot úr eyri áður. Barnalífeyririnn lækkar um 10.11 kr. samkv. frv., en hann var áður, að ég ætla, 710.11 kr., en er nú færður niður í 700 kr. á mánuði. Og að tala um það sem hækkun eða lækkun í þessu sambandi finnst mér ekki koma til mála, heldur lagfæringu til þess að hafa betri tölur að reikna með. Kannske munar eitthvað um þetta, en ég tel, að það sé svo lítið, að það þurfi ekki að taka með í reikninginn, og það er þá til athugunar fyrir þá hv. n., sem fær þetta til meðferðar, að breyta þessu og taka upp greiðsluna í aurum, eins og áður var, ef menn vilja það heldur og telja það skipta máli.

Þá gat hv. þm. þess líka, að mæðralaunin til konu með eitt barn séu felld niður. Það er rétt að forminu til, að mæðralaunin eru felld niður. En það koma aðrar bætur þar í staðinn, þannig að útkoman, sem hún fær út úr þessu, hækkar á hverjum mánuði um 100 kr., eða um ca. 12%, þannig að heildarbæturnar, sem greiddar eru, verða á ári 12% hærri en þær eru nú með því fyrirkomulagi, sem hér er lagt til að haft verði. En að þetta er gert svona að till. n., kemur af því, að árið 1953, þegar tekið var að greiða fjölskyldubætur með 2. og 3. barni í fjölskyldu, komu fram kröfur um það, að fjölskyldubætur til einstæðra mæðra yrðu líka teknar upp. Alþ. féllst á þetta, en ekki sem fjölskyldubætur, heldur voru það kölluð mæðralaun, þannig að raunverulega voru komnar á með þeirri samþykkt Alþingis, sem gerð var 1953, fjölskyldubætur handa barni einstæðra mæðra, en bara kallaðar öðru nafni. Ég hygg, að það sé þetta, sem hafi vakað fyrir n., en ekki það að vilja skerða hlut þessara aðila, og síður en svo, því að eins og ég sagði hækka bæturnar um 12% til þeirra, hvaða nafni sem þær eru kallaðar, svo að það er út af fyrir sig engin tekjusvipting eða lækkun í bótum, heldur þvert á móti.

Ég skal almennt um frv. segja það, að það er flutt alveg óbreytt eins og n. lagði til að það yrði, og rn. hefur ekki breytt í því einum stafkrók, enda átt náttúrlega nokkurn hlut að samningunni, þar sem ráðuneytisstjórinn var með í því. En sjálfsagt eru þessi atriði, bæði þessar krónur af barnalífeyrinum og fjölskyldubótunum og þessi niðurfelling að formi til á mæðralaunum einstæðra mæðra með eitt barn, þannig, að það kemur náttúrlega vei til athugunar að rannsaka, hvort það er æskilegt eða nauðsynlegt að lagfæra það. Og ég hef síður en svo á móti því, að tilfærslur verði á þessu gerðar, sem ekki skerða megintilgang frv. og eru heldur til bóta en hitt.

Þá minntist hv. þm. á ríkisframfærsluna, og það er alveg rétt, hún var til athugunar í n. Hún er orðin á eftir tímanum, og það er þörf á að breyta henni. En n. treysti sér ekki til þess að athuguðu máli, og hún lagði þess vegna til, að ríkisframfærslan héldist óbreytt um sinn, eins og það er orðað í grg., en væntir þess, að á þessum málum reynist innan skamms unnt að finna viðunandi lausn. Og ég er þessu sammála. Það er þörf á að breyta ríkisframfærslunni í verulegum atriðum, og það mál verður þá til athugunar síðar hjá þeim, sem um það kunna að fjalla eða eiga að fjalla.

Hv. 3. þm. Norðurl. v. fór viðurkennandi orðum um frv., og ég er honum þakklátur fyrir það. En annars fór hann nokkuð út í það að ræða flokkslega afstöðu til málsins fyrr og siðar, og ég get ekki komizt hjá því að svara því með nokkrum orðum, vegna þess að mér fannst hann finna Alþfl. það til foráttu, að hann hefði eignað sér heiður af málinu, sem honum bæri ekki, heldur hefðu aðrir flokkar tekið undir það. Og að sumu leyti get ég á það fallizt, að það hafi verið gert, sérstaklega nú upp á síðkastið, því að það er nú svo komið, sem betur fer, að nú vilja allir Lilju kveðið hafa. Lögin hafa fengið þann hljómgrunn og sú starfsemi, sem á þeim er byggð, hefur fengið þann hljómgrunn, að nú vill enginn flokkur andmæla því, sem til bóta horfir í þessu máli. En þetta hefur sannarlega ekki alltaf verið tilfellið og langt frá því. Ég held, að ég fari þar með rétt mál, og það er ekki til þess að mikla Alþfl. sérstaklega, en bara til þess, að það komi fram, að Alþfl. átti frumkvæðið að þessum l. í upphafi. Hann hefur líka átt frumkvæðið að ýmsum breyt., sem á hafa verið gerðar, og sumum þeim mikilvægustu. Stundum hefur Framsfl. fylgt þessum málum fram, en stundum hefur hann líka ekki gert það, og er þar skemmst að minnast höfuðbreytingarinnar, sem gerð var 1945, þegar megnið af flokknum eða næstum því allir sátu hjá við atkvgr. um málið, treystust ekki til þess að fylgja því.

Ég segi þetta ekki til þess að fara að deila hér við einn eða neinn um það, hverjum beri að þakka framgang þessara mála. Það hafa upp á síðkastið allir flokkar staðið að þeim aðalbreytingum, sem gerðar hafa verið, og ég er út af fyrir sig þakklátur fyrir það, en afstaða flokkanna til þessara mála hefur ekki alltaf verið sú.